Fréttablaðið - 11.05.2013, Side 87
LAUGARDAGUR 11. maí 2013 | MENNING | 55
Leikarinn Tom Hanks er efstur
á lista yfir áreiðanlegasta fólk
í Bandaríkjunum. Þetta kemur
fram á nýjum lista sem fyrir-
tækið The Wagner Group vann
fyrir tímaritið Reader´s Digest.
Í öðru sæti varð leik konan
Sandra Bullock, í því þriðja
Denzel Washington og í því fjórða
varð Meryl Streep. Bandaríski
prófessorinn Maya Angelou náði
fimmta sætinu.
Aðrir sem komust á listann
voru Steven Spielberg, Bill Gates,
Alex Trebek, Melinda Gates og
Julia Roberts.
Athygli vakti að sjálfur Barack
Obama, Bandaríkjaforseti, náði
ekki hærra en í 65. sæti á listan
The Wagner Group.
Tom Hanks er áreiðanlegastur
Leikarinn á toppi listans en Obama Bandaríkjaforseti aðeins í 65. sæti.
TRAUSTSINS VERÐUR Tom Hanks varð
efstur á listanum yfir áreiðanlegasta
fólk Bandaríkjanna.
Katy Perry er sögð vera að semja
hatursfullt hefndarlag sem er
byggt á sambandsslitum henn-
ar og tónlistarmannsins John
Mayer. Perry hefur áður sungið
lög um sambandsslit, eða Ur So
Gay, Peacock og Hot N Cold.
Óvíst er hvort og þá hvenær
þetta nýja lag kemur út. „Katy
notar þetta til að jafna sig á sam-
bandsslitunum. Hún rífur John
í sig fyrir að hafa látið hana
trúa því að hann væri ekki þessi
náungi sem allir segja að hann
sé,“ sagði kunningi söngkonunnar
og átti þar við kvennafar Mayer.
Hefndarlag um
sambandsslit
KATY PERRY Perry varð bálreið þegar
John Mayer hætti með henni.
Vinsældir smellsins Gangnam
Style, sem horft hefur verið á eins
og hálfs milljarðs sinnum á You-
Tube, eru slys ef marka má Psy,
höfund lagsins.
Psy ræddi um Gangnam Style
við nemendur í Harvard-háskól-
anum á fimmtudag og sagði við
það tilefni að lagið sitt væri í
hæsta máta óeðlilegt og að vin-
sældirnar hefðu komið sér á
óvart. Psy viðurkenndi jafn-
framt að hann gerði sér engar
grillur um að nýjasta lagið hans,
Gentlemen, myndi ná viðlíka vin-
sældum og Gangnam Style.
Vinsældirnar eru slys
Höfundur Gangnam Style segir lagið óeðlilegt.
PSY Býst ekki við að nýja lagið verði
jafn vinsælt og Gangnam Style.
MADONNA Söngkonan var mjög
ánægð með upphæðina sem hún fékk
fyrir verkið.
Madonna hefur selt málverk
eftir franska listamanninn
Fernand Léger fyrir 7,2 millj-
ónir dala, eða um 850 milljón-
ir króna. Peningurinn rennur
til góðgerðarsamtaka hennar
Ray of Light sem aðstoða við
menntun fátækra stúlkna víða
um heim.
Söngkonan keypti verkið, sem
heitir Three Women at the Red
Table, fyrir 3,4 milljónir dala,
eða rúmlega tvöfalt lægri upp-
hæð, árið 1990. Verkið var boðið
upp hjá Sotheby´s í New York
á þriðjudag. „Takk allir fyrir
hjálpina,“ skrifaði hin 54 ára
Madonna, hæstánægð á Twitter.
Seldi rándýrt
málverk