Fréttablaðið - 11.05.2013, Qupperneq 102
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 70
LAUGARDAGUR
8.55 FORMÚLA 1 - ÆFINGAR
Stöð 2 Sport og HD
11.40 ASTON VILLA-CHELSEA
Sýndur á Stöð 2 Sport 2 & HD 2
11.50 FORMÚLA 1 - TÍMATAKA
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
15.15 MAN. CITY - WIGAN
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
19.50 ESPANYOL - REAL MADRID
Sýndur á Stöð 2 Sport 3
21.00 MEMPHIS - OKLAHOMA
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
SUNNUDAGUR
11.25 ENSKA B-DEILDIN
Sýndur á Stöð 2 Sport 3
11.30 FORMÚLA 1 - KEPPNIN
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
12.20 STOKE - TOTTENHAM
Sýndur á Stöð 2 Sport 2 & HD 2
13.53 FULHAM - LIVERPOOL
Sýndur á Stöð 2 Sport 3
13.53 SUNDERLAND - SOUTHAMPTON
Sýndur á Stöð 2 Sport 4
13.53 EVERTON - WEST HAM
Sýndur á Stöð 2 Sport 6
13.53 QPR - NEWCASTLE
Sýndur á Stöð 2 Sport 5
14.45 MAN. UTD - SWANSEA
Sýndur á Stöð 2 Sport 2 & HD 2
16.45 ÍBV - BREIÐABLIK
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
16.55 ATLETICO M. - BARCELONA
Sýndur á Stöð 2 Sport 3
19.30 GOLDEN STATE - SAN ANTONIO
Sýndur á Stöð 2 Sport & HD
20.00 SUNNUDAGSMESSAN
Sýndur á Stöð 2 Sport 2 & HD 2
PEPSI-DEILD KARLA SUNNUDAG
17.00 ÍBV - BREIÐABLIK
17.00 ÞÓR - FH
17.00 KEFLAVÍK - KR
17.00 STJARNAN - VÍKINGUR Ó.
FÓTBOLTI David Moyes, stjóri Everton og arftaki Sir
Alex Ferguson hjá Manchester United, hitti fjölmiðla-
menn í fyrsta skipti í gær eftir að hafa verið ráðinn
stjóri Englandsmeistaranna.
„Stuðningsmenn Everton hafa verið frábærir við
mig frá fyrsta degi. Mig langar að byrja þennan
fund á að þakka þeim fyrir mig,“ sagði Moyes.
„Ég var ekki búinn að skipuleggja það að fara
frá félaginu. Samningurinn minn var að renna út
en ég var samt að hugsa um næsta tímabil.“
Moyes hefur verið lengi hjá Everton og hann
mun aðstoða félagið við að finna eftirmann sinn.
„Stjórnarformaðurinn hefur beðið mig um aðstoð og
ég mun að sjálfsögðu hjálpa til eins og ég get. Ég vil
svo taka fram að ég er enn stjóri Everton og þessi
fundur er um Everton,“ sagði Moyes, en liðið mætir
West Ham á morgun. - hbg
Ekki stóð til að yfi rgefa Everton
SNÖGGIR Vettel ræðir hér við Felipe
Massa hjá Ferrari. NORDICPHOTOS/GETTY
FORMÚLA 1 Þeir Sebastian Vettel
og Fernando Alonso kepptust um
að eiga besta tímann í æfingum
dagsins fyrir kappaksturinn í
Barcelona á Spáni sem fram fer
um helgina. Vettel hafði betur
í seinni æfingunni en Alonso í
þeirri fyrri.
Það munaði hins vegar ekki
miklu nú síðdegis því Alonso,
sem er á heimavelli um helgina,
var aðeins 0,017 sekúndum á eftir
heimsmeistaranum þrefalda. Red
Bull-bíllinn virðist vera mjög
fljótur enda átti Mark Webber,
liðsfélagi Vettels, þriðja besta
tíma seinni æfingarinnar, 0,083
sekúndum á eftir Alonso.
McLaren-liðið mætti til Spánar
með mikið uppfærðan keppnis-
bíl síðan í Barein fyrir þremur
vikum. Uppfærslurnar virðast
hins vegar ekki vera að skila
þeim betri hringtímum því Jen-
son Button og Sergio Perez áttu í
basli í tólfta og þrettánda sæti.
- bþh
Alonso og Vet-
tel fl jótastir
SPORT
Það var eftir bikar-úrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar þann 16. febrúar sem Ómar Örn Sævarsson var tekinn í lyfjapróf. Niðurstöður
prófsins sýndu að magn örvandi
efnisins methylhexanamine var
tífalt meira en löglegt er. Efnið er
í fæðubótarefninu Jack 3D en því
hafði verið blandað í Power ade er
Ómar drakk það.
Ómar var því settur í keppnis-
bann frá og með 8. mars síðastliðn-
um. Dæmt var í máli hans síðasta
þriðjudag og þar var staðfest sex
mánaða keppnisbann sem lyfjaráð
ÍSÍ fór fram á. Ómar sættir sig við
dóminn.
Leikmaðurinn hefur frá fyrsta
degi haldið fram sakleysi sínu en
mátti ekki tjá sig fyrr en að dómur
hefði fallið. Hann segist aðeins
hafa fengið sér tvo sopa af orku-
drykk.
„Þessi fæðubótarefni (Jack 3D)
eru ekki seld á Íslandi eftir því
sem ég best veit. Þau eru seld í
Bandaríkjunum. Þessir tveir sopar
nægðu til þess að fella mig. Það
sem drepur mig er að þetta er til-
tölulega nýtt efni og viðmiðunar-
mörkin eru því ansi lág. Þegar efni
hafa verið lengur á lista þá hækka
oft viðmiðunarmörkin en ekki á
öllum efnum samt,“ segir Ómar og
bætir við að efnið sé náskylt efe-
dríni sem sé einnig örvandi efni.
Þar eru viðmiðunarmörkin mun
hærri.
Fékk áfall
„Ég hefði ekki fallið ef þetta hefði
verið efedrín. Ég fékk áfall er ég sá
að ég var tíu sinnum yfir viðmiðun-
armörkunum. Í kjölfarið ræddi ég
málið við lyfjafræðing sem fræddi
mig um þetta. Hann segir að þessi
tvö efni sé mjög svipuð en það sem
ég mældist með er aðeins veikara.
Ég hefði mátt vera með tíu sinnum
meira magn af efedríni en af þessu
án þess að falla.“
Eins og áður segir heldur Ómar
því fram að hann hafi aðeins tekið
tvo sopa af drykknum. Er það trú-
legt að menn mælist svona hátt
yfir viðmiðunar mörkum eftir
aðeins tvo sopa?
„Ég veit ekki hvort það telst trú-
legt eða ekki. Þetta er samt mjög
lág tala sem er í mér þó svo að
ég sé svona hátt yfir viðmiðunar-
markinu.“
Í dómnum kemur fram að liðs-
félagi Ómars hafi átt drykkinn sem
felldi hann en það hefur ekki komið
fram áður. Ekki kemur þó fram
hver leikmaðurinn sé en Ómar
staðfesti það við Frétta blaðið.
„Það var ekki ég sem átti þetta
efni. Það var Ryan Pettinella sem
átti það. Ástæðan fyrir því að ég
kom ekki fram með það hver átti
fæðubótarefnin er sú að liðið mitt
var að spila í úrslitakeppninni og
ég vildi ekki bendla annan mann
við málið á meðan liðið var að
spila. Ég leit svo á að mitt skip
væri sokkið og að það myndi ekki
hjálpa neinum að ég drægi ein-
hvern niður með mér. Ryan gerði
þetta óviljandi. Hann vissi ekki
að hann væri að neyta ólöglegra
fæðubótarefna,“ segir Ómar en var
hann ekki beðinn um að gefa upp
nafn þessa liðsfélaga síns í yfir-
heyrslu hjá lyfjaráði?
Varð að smakka
„Nei. Ég var fyrst í sjokki yfir því
að hafa fallið og áttaði mig ekki
á því hvernig það gat hafa gerst.
Sjálfur nota ég ekki fæðubótarefni.
Íslenska skyrið og harðfiskurinn
hafa dugað mér. Ég var heillengi að
átta mig á því hvað það hefði verið
sem felldi mig. Svo fattaði ég síðar
að ég hefði smakkað drykk hjá
Ryan á leiðinni í bikarúrslitaleik-
inn. Ég sá að hann hafði blandað í
Powerade og spurði hvort það væri
ekki viðbjóðslega vont. Hann sagði
að það væri fínt og þá varð ég að
smakka,“ segir Ómar.
Leikmaðurinn segir að í kjöl-
farið hafi hann og Pettinella farið
að skoða efnið á netinu og komist
að því að það væri ólöglegt.
Þurfti ekki að segja frá
„Svo skeggræddum við okkar á
milli hvað ég ætti að gera. Hann
sagðist vera til í að koma og segja
frá því sem hefði gerst ef það
myndi hjálpa mér. Ég fer svo í
bráðabirgðaviðtal hjá lyfjanefnd.
Kom með efnið með mér og sagði
frá því sem hefði gerst. Spurði svo
flatt út hvort það myndi hjálpa
máli mínu að segja frá eiganda efn-
isins. Einnig spurði ég hvort það
myndi skaða mitt mál ef ég myndi
ekki segja frá því. Þau sögðu að
það myndi ekki skaða mál mitt og
að ég þyrfti ekki að greina frá því.
Þá kaus ég að segja ekki frá því,“
segir Ómar en hann sér ekki eftir
því að hafa tekið þá ákvörðun.
„Það hefði ekki haft nein áhrif
á mitt mál og hefði aðeins dregið
hann með mér. Þau fóru heldur
ekkert fram á það. Ef þau hefðu
sagt að það myndi skaða mig að
segja ekki frá því þá hefði ég sagt
þeim hver ætti efnið. Ég ætlaði
ekki að segja nafn hans bara
til að segja frá því.“
Pettinella átti drykkinn
Körfuknattleikskappinn Ómar Örn Sævarsson hjá Grindavík var í gær dæmdur í sex mánaða keppnisbann
en hann féll á lyfj aprófi . Ómar segist aðeins hafa drukkið tvo sopa af orkudrykk sem liðsfélagi hans átti.
Ómar staðfestir að það hafi verið Ryan Pettinella sem átti drykkinn. Pettinella fór aldrei í lyfj apróf.
DRUKKU SAMA DRYKKINN Drykkurinn sem Ómar drakk af, og felldi hann í lyfja-
prófi, var í eigu Ryans Pettinella, liðsfélaga hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN & VALLI
Sáum ekki hag í að prófa liðsfélagana
Þó svo að Ómar hafi greint frá því að
liðsfélagi hans hafi átt ólöglegu efnin,
og notað þau í meira magni en hann,
ákvað lyfjaráð ÍSÍ að aðhafast ekkert
frekar í málinu.
„Í þessu tilfelli erum við að fá
niðurstöður 4-5 vikum eftir að sýnið er
tekið. Efnið sem þarna fannst hverfur úr
líkamanum einum og hálfum til tveimur
sólarhringum eftir inntöku. Það er
því enginn tilgangur að mæla við-
komandi íþróttamann þá,“ segir
Skúli Skúlason, formaður Lyfjaráðs.
„Þeir voru ekki til í að gefa upp nafn á þeim sem
átti efnið. Við gátum ekki pínt þá til þess að gera
það. Ég held að þeir hafi gert sér grein fyrir alvar-
leika efnisins eftir þetta og farið varlega í kringum
hann. Við sáum því ekki haginn í að prófa þá
enda væri efnið löngu farið úr leikmanninum
nema hann hefði haldið áfram að nota það.“
Skúli segir að það hefði hjálpað máli Ómars
ef hann hefði gefið upp eiganda efnisins. Ómari
virðist þó ekki hafa verið kunnug um það.
„Reglur okkar segja til um að ef menn sýna
samstarfsvilja um að upplýsa lyfjamisferli á víðari
grundvelli þá geta menn fengið mildun á dómi
sínum um allt að helming og jafnvel meira.“
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
HANDBOLTI Hlynur Leifsson og
Anton Gylfi Pálsson munu dæma
undanúrslitaleik Barcelona og
Kielce í Meistaradeild Evrópu í
handbolta. Leikurinn fer fram í Köln
um mánaðamótin en þar fer fram
úrslitahelgin í Meistaradeildinni ár
hvert.
„Þetta verður hörkuleikur og það
er mikill heiður að fá þetta verk-
efni,“ segir Hlynur, sem tilkynnti á
dögunum að hann myndi hætta í
dómgæslu í lok tímabilsins. Líklega
verður þetta hans næstsíðasti leikur
því hann mun væntanlega dæma
landsleik í næsta mánuði.
Hlynur segist hafa verið hvattur
til að endurskoða ákvörðun sína um
að hætta. Hann stendur hins vegar
við sitt. „Ég var búinn að velta þessu
lengi fyrir mér. Það er einfaldlega
of mikið að vera í burtu í allt að tvo
mánuði á ári þegar maður er með
fjölskyldu og í vinnu,“ segir Hlynur
en hann hefði getað dæmt í sjö ár í
viðbót.
„Það hefði verið gaman að dæma
á Ólympíuleikum en það er fleira í
lífinu en handbolti. Nú fær Anton
tíma til að byggja sig upp með nýjum
félaga og vonandi komast þeir á
leikana í Ríó eftir þrjú ár.“
Kiel og Hamburg eigast við í hinni
undanúrslitaviðureigninni. - esá
Hefði verið gaman að fá að dæma á Ólympíuleikum
DÆMIR Í KÖLN Hlynur ræðir hér við
Stellu Sigurðardóttur, leikmann Fram.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL