Fréttablaðið - 11.05.2013, Page 104

Fréttablaðið - 11.05.2013, Page 104
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 72 www.kaupa.is • Sími: 466 1600 Til leigu mjög vel stað- sett verslunar húsnæði á jarðhæð við aðal umferðargötu bæjarins. Húsnæðið er 470m² með lager og með aðkomu bæði frá Glerárgötu og Hvannavöllum. Stórir gluggar með með miklu auglýsingarlegu gildi. Frekari upplýsingar veitir Björn í síma 466 1600 eða bubbi@kaupa.is Verslunarhúsnæði – Akureyri Til SÖLU GLÆSILEGT GISTIHEIMILI Til sölu er glæsilegt og vandað gistiheimili, um er að ræða bæði húsnæði og rekstur. Gistiheimilið er mjög vel staðsett miðsvæðis í Reykjanesbæ, þannig að það er stutt bæði í miðbæinn og á Keflavíkurflugvöll. Aðkoman er mjög góð og næg bílastæði. Fasteignin er vel byggð og í góðu ástandi, stærð hússins er um 406,9 fm. Í húsinu eru 13 herbergi með mögulega gistiaðstöðu fyrir allt að 29 gesti. Rúmgóður borðsalur og setustofa eru í húsinu. Það er möguleiki fyrir rekstraraðila að búa í húsinu. Gistiheimilið er mjög vel búið og er í fullum og góðum rekstri. Hér er um að ræða verðmætan möguleika fyrir rétta aðila. Upplýsingar í síma 896-2822. Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur fasteignasali Fasteignasalan Torg – Garðatorgi 5 – 210 Garðabæ Sími: 520 9595 – Fax: 520 9599 – www.fasttorg.is STÓRGLÆSILEGT LÚXUS SUMARHÚS ÁSAMT GESTAHÚSI, SAUNAHÚSI OG 300m2 VERÖND MEÐ HEITUM POTTI VERIÐ VELKOMIN Í OPIÐ HÚS, SJÓN ER SÖGU RÍKARI. KERHRAUN 54 - GRÍMSNESI Einstaklega glæsilegt og vandað lúxus sumarhús / heilsárshús í Kerhrauni í Grímsnesi sem á fáa sína líka. Mjög vandaðar innréttingar og tæki. Falleg lýsing. 4 svefnherbergi. Eldhús með eyju og stofa eru í einu rými. Húsið stendur á 5200 fm eignarlóð sem skartar afar miklu útsýni til allra átta. Allt innbú getur fylgt með eigninni. Uppl. kort og leiðbeiningar um staðsetningu veitir Edda sölufulltrúi í síma 6-600-700 eða edda@fasttorg.is OPIÐ HÚS LAUGARD. 11. MAÍ KL. 13:00-14:00. MÓBERG 2 - HAFNARFIRÐI TIL SÖLU 230, 2 HA. JÖRÐ - KALDAKINN Í RANGÁRÞINGI YTRA Fjarðargötu 17, Hf. Sími 520 2600 as@as.is www.as.is Eiríkur Svanur Sigfússon lögg. fasteignasali SÉRLEGA FALLEGT 226 fm parhús, þar af er bílskúr 28 fm á GÓÐUM STAÐ í Setberginu. 5 svefnherbergi. Rúmgóðar svalir í SUÐVESTUR. Flott útsýni. Falleg ræktuð lóð, verönd m/ skjólveggjum. Stutt í skóla og leikskóla. Laust fljótlega. Verð 49,5 millj. Brynhildur tekur á móti gestum, s. 565-1372 Jörðin er staðsett á mótum Landvegar og Árbæjarvegs með VÍÐÁTTU ÚTSÝNI. 50 ha ræktað land. Landið er mjög gróið og grasgefið. Tilraunaborun eftir heitu vatni hefur fari fram. Öll tilskilin leyfi fyrir ferðaþjónustu. Veiðiréttindi. Á landinu er gott 110,8 ÍBÚÐAHÚSNÆÐI. 2 GESTAHÚS annað 80,4 fm og hitt 38,2 fm. Gott 327,1 fm HESTHÚS pláss fyrir 12-16 hross og GISTIAÐSTAÐA í efri hæð. 160 fm FJÁRHÚS (skemma). Allar þessar eignir eru í góðu standi byggðar frá 1983 til 2010. VERÐ 90.000.000,- OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 14-15 OP IÐ HÚ S Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali. Suðurgata 7, 101 Reykjavík - www.hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800 - Fax: 585 8808 STÓRAGERÐI 5, REYKJAVÍK OPIÐ HÚS Í DAG, LAUGARDAG MILLI KL. 13:00 og 13:30 Mjög falleg og algjörlega endurnýjuð 80,8 fm 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi með fataskápum, rúmgóða stofu, eldhús og baðherbergi. Flísar á forstofu, eldhúsi og baðherbergi. Harðparket á stofu og herbergjum. Vatns- hita- skólp- og raflagnir eru nýjar. Öll gólfefni og inn- réttingar sem og hurðir eru nýjar. Ný blöndunartæki og ofnar. Eignin verður sýnd í dag, laugardag milli kl. 13 og 13:30 OP IÐ HÚ S FÓTBOLTI Wigan og Manchester City mætast á Wembley-leikvanginum í London í 132. úrslitaleik enska bik- arins á laugardag. City getur unnið titilinn í sjötta skipti og í annað skiptið á þremur árum. Eftir 43 ára bið vann City loks stóran titil á Eng- landi og ári síðar kom Englands- meistaratitillinn eftirsótti í hús. „Ég held að hvorugt liðið sé lík- legra fyrir fram til að vinna bikar- inn,“ segir Roberto Mancini, knatt- spyrnustjóri Manchester City. Ítalinn er líklega sá eini á jörðinni sem heldur slíku fram enda himinn og haf á milli styrkleika liðanna. Fráfarandi Englandsmeistarar City sitja í 2. sæti deildarinnar en Wigan berst fyrir lífi sínu í 18. sæti. City hefur aðeins fengið á sig eitt mark í leikjum sínum sex í keppninni hing- að til en meiðsli hrjá varnarmenn Wigan. Wigan hefur aldrei unnið stóran titil. Stærsta hnossið í 81 árs sögu félagsins er sigur í C-deildinni árið 1999. „Það vita allir að City er lík- legri aðilinn. Hins vegar eru fjöl- mörg dæmi um afar óvænt úrslit ef rýnt er í söguna,“ segir Roberto Martinez, stjóri Wigan. Dave Whel- an, eigandi og stjórnar formaður Wigan, hefur breytt Wigan úr óþekktu neðrideildarliði í enskt úrvalsdeildarlið. Nú er FA bikar- inn handan við hornið en Whel- an spilaði á sínum tíma í úrslitum með Blackburn sem tapaði gegn Wolves. Hann lauk keppni í leikn- um á undan áætlun vegna fótbrots. „Hann þurfti frá að hverfa í úrslitaleiknum árið 1960 og á óunnið verk fyrir höndum á Wem- bley. Við hjálpum honum til þess að hann geti leitt liðið út á völlinn og lokið hringnum,“ segir Martinez um Whelan. Skotinn lyftir sínum síðasta Hvort sem háværir nágrannar Sir Alex Ferguson og félaga í Manchester United fagna bikar- meistaratitli á laugardeginum eða ekki verður borgin máluð rauð á sunnu deginum. United tekur á móti Swansea í síðasta heimaleik Fergu- sons og verður Englandsmeistara- bikarinn afhentur í leikslok. Tilkynnt var í vikunni að Fergu- son myndi hætta sem stjóri Rauðu djöflanna og nú er ljóst að eftir- maður hans verður David Moyes, núverandi stjóri Everton. Tár féllu þegar Ferguson til- kynnti leikmönnum sínum tíðindin og ekki er ólíklegt að svipað verði uppi á teningnum í leikslok á sunnu- dag. Svo skemmtilega vill til að það var einmitt enski bikarinn sem kom Ferguson á kortið hjá Manchester United. Eftir 43 mánaða titla- lausa vertíð sem stjóri United þar sem heitt varð orðið undir sætinu vann United enska bikarinn. Í dag er rauða liðið í Manchester sigur- sælasta lið enskrar knattspyrnu með 20 Englandsmeistaratitla og 11 bikarmeistaratitla. Þar af hefur Ferguson unnið þrettán og fimm. kolbeinntumi@365.is Bikargleði í Manchester? Líklegt er að eintóm fagnaðarlæti brjótist út í Manchester-borg um helgina. Sir Alex Ferguson stýrir United í síðasta skipti þegar félagið fær Englandsmeistarabikarinn afh entan í 20. skipti. Aðeins Wigan getur komið í veg fyrir að ljósblái hluti borgarinnar fagni líka á laugardeginum þegar liðið mætir City í úrslitum bikarsins. VILL BIKARINN Tekst báðum liðunum frá Manchester að vinna titil í ár? GETTY AFREK Tekst Roberto Martinez að láta draum Dave Whelan rætast? GETTY Kenny Dalglish er eini spilandi þjálfarinn sem hefur unnið bikarinn. Það gerði hann með Liverpool 1986. Ashley Cole hefur oftast allra orðið bikarmeistari, sjö sinnum. Didier Drogba hefur oftast allra skorað í bikarúrslitaleiknum, fjórum sinnum. Louis Saha tók sér stystan tíma allra til að skora mark í úrslita- leik, eftir aðeins 25 sekúndur fyrir Everton árið 2009. Curtis Weston er sá yngsti til að spila í úrslitum. Hann var 17 ára og 119 daga í 3-0 tapi Millwall gegn Man. Utd árið 2004. Dave Beasant varð í úrslita- leiknum 1988 fyrsti markvörðurinn til að verja vítaspyrnu. Kevin Moran varð fyrsti leik- maðurinn til að fá rautt spjald í úrslitaleiknum, með Man. Utd gegn Everton árið 1985. Aðeins einu sinni hafa úrslit ráðist í vítaspyrnukeppni. Þá lagði Arsenal lið Manchester United árið 2005. ➜ Sögulegir úrslitaleikir í enska bikarnum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.