Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
AÐSTOÐARREKTOR
Háskólinn á Bifröst byggir á gömlum grunni Samvinnuskólans en
starfar í dag sem háskóli á sviði félags- og hugvísinda. Við skólann
er kennt á þremur sviðum, viðskiptasviði, lögfræðisviði og félags-
vísindasviði, bæði í grunn – og framhaldsnámi. Einnig er við skólann
boðið upp á aðfararnám á framhaldsskólastigi auk fjölbreytts úrvals
símenntunarnámsleiða.
Háskólinn á Bifröst leitar að öfl ugum einstaklingi til að stýra akademískri starfsemi skólans,
kennslu jafnt sem rannsóknum. Aðstoðarrektor ber ábyrgð á gæðum náms, kennslu og
rannsókna gagnvart rektor og háskólaráði og er jafnframt staðgengill rektors í fjarveru hans.
Starfssvið aðstoðarrektors er sveigjanlegt og tekur mið af þörfum og þróun skólans.
Við leitum að karli eða konu sem býr yfi r þessum kostum:
· Háskólagráða sem nýtist í starfi , meistarapróf hið minnsta á þeim
sviðum sem skólinn starfar á. Doktorspróf er æskilegt en ekki skilyrði.
· Þekking á starfsemi háskóla og stjórnunarreynsla.
· Samskiptahæfi leikar og vilji til þátttöku í skemmtilegu
og krefjandi verkefni á góðum vinnustað.
Viðkomandi þarf að geta hafi ð störf 1. ágúst 2013.
Æskilegt er að aðstoðarrektor búi í háskólaþorpinu eða sveitarfélaginu.
Borgarbyggð er fjölskylduvænt samfélag sem býður upp á fyrsta fl okks aðstöðu
fyrir alla fjölskylduna. Íþrótta- og tómstundastarf er öfl ugt og menning og listir
blómstra. Bifröst er náttúruperla í þægilegri fjarlægð frá höfuðborginni.
Umsóknum um starfi ð skal skilað eigi síðar en 2. júní nk. með fylgigögnum
á netfangið rektor@bifrost.is eða með pósti til Bryndísar Hlöðversdóttur
rektors, Háskólanum á Bifröst, 311 – Borgarbyggð.
Með allar umsóknir er farið sem trúnaðarmál.
www.bifrost.is
Sölumaður óskast á rótgróna
fasteignasölu
Traust og rótgróin fasteignasala óskar eftir sölumanni til
starfa. Þóknun er afkastatengd en söluskráin bíður upp á
mikla möguleika fyrir duglegan starfsmann.
Umsóknir sendast á box@frett.is merkt
,,Fasteignasala-1805“
Þjónustumaður
Kælismiðjan Frost ehf. auglýsir eftir
þjónustumanni í Garðabæ.
Nánari upplýsingar er að finna á www.frost.is
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á frost@frost.is
Matreiðslumaður og
sölufulltrúi óskast sem fyrst
Veislan veitingaeldhús á Seltjarnarnesi
óskar eftir að ráða:
• Matreiðslumann sem fyrst í framtíðarstarf.
Dagvinna og helgarvinna önnur hvor helgi eða jafnvel
þriðja hver.
• Sölufulltrúi /Skrifstofustarf.
100% starf dagvinna frá 9-17. Óskast sem fyrst.
Framtíðarstarf
Fáið endilega upplýsingar hjá okkur
í síma 5612031, 8211031
Eða sendið póst á arny@veislan.is
SÉRKENNARI
Fjölskyldusvið Húnaþings vestra auglýsir lausa
til umsóknar stöðu sérkennara í grunnskólum
Húnaþings vestra. Um er að ræða 100% stöðugildi.
Meginverkefni er mótun og umsjón námsvers ásamt allri skipulagn-
ingu á sérkennslu í grunnskólunum þ.m.t ráðgjöf til kennara.
Mikilvægt er að umsækjandi hafi menntun sem grunnskólakennari
og hafi réttindi til starfa sem sérkennari og hafi einnig leyfi til að
leggja fyrir helstu skimanir og greiningarpróf. Einnig er mikilvægt að
umsækjandi hafi til að bera góða samskiptahæfni, ríkt frumkvæði og
samstarfsvilja til þverfaglegs samstarfs.
Laun eru greidd skv. samningum KÍ og sveitarfélaganna.
Frekari upplýsingar veitir skólastjóri Sigurður Þór Ágústsson í síma
4552911 eða í tölvupósti siggi@hunathing.is
Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun, fyrri störf og umsagnar-
aðila, ásamt leyfisbréfum berist Fjölskyldusviði Húnaþings vestra,
Hvammstangabraut 5 530 Hvammstanga eða á netfangið
eydis@hunathing.is.
Umsóknarfrestur er til 2. júní 2013
Hvammstangi í Húnaþingi vestra er stærsti þéttbýliskjarni
sveitarfélagsins með um 600 íbúa en íbúar í Húnaþingi vesta eru
um 1.200. Hvammstangi er í alfaraleið, aðeins 6 km. frá þjóðvegi 1
og í u.þ.b. tveggja klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík og Akureyri.
Í Húnaþingi vestra er til staðar öll almenn opinber þjónusta auk
annarrar fjölbreyttrar þjónustu. Möguleikar til útivistar, íþrótta,
afþreyingar og félagsstarfa eru fjölmargir og því er Húnaþing vestra
góður búsetukostur fyrir fjölskyldufólk. Skólar í Húnaþingi vestra eru
grænfánaskólar. Þeir eru staðsettir á Hvammstanga, Laugarbakka og
Borðeyri. Framhaldsskóladeild frá FNV er staðsett á Hvammstanga.
MS leitar eftir fólki með laktósaóþol (mjólkursykursóþol)
til að prófa nýja vöru frá fyrirtækinu, laktósafría
léttmjólk.
Áhugasamir hafi samband við Björn S. Gunnarsson,
bjorng@ms.is, fyrir 26. maí næstkomandi.
Mjólkursamsalan
ERTU MEÐ
LAKTÓSAÓÞOL?
(mjólkursykursóþol)
18. maí 2013 LAUGARDAGUR6