Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 10
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 Hugmyndir um orkuframleiðslu á Íslandi Draumsýn eða alvara? Afmælisráðstefna ÍSOR 2013 Fimmtudaginn 23. maí kl. 13–16 Grand Hótel Reykjavík Fundarstjóri: Ingibjörg Kaldal, deildarstjóri jarðfræði og umhverfismála hjá ÍSOR Dagskrá: 13.00 Setning – Sigrún Traustadóttir, stjórnarformaður ÍSOR 13.15 Hagkerfi hreinnar orku – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands 13.35 Ávinningur þjóðarinnar af nýtingu orkulindanna – Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar 13.55 Starfsemi og hlutverk ÍSOR í orku- og umhverfisrannsóknum – Ólafur G. Flóvenz, forstjóri ÍSOR 14.15 Kaffihlé 14.35 The role of geothermal energy in the future global energy budget Professor Jefferson W. Tester, Director Cornell Energy Institute, Cornell University 14.55 Jarðhitaauðlind Íslands – Hve stór er hún og hversu vel þekkjum við hana? Sæunn Halldórsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá ÍSOR 15.15 Nýting jarðhita – tækifæri og takmarkanir Árni Ragnarsson, verkfræðingur hjá ÍSOR 16.00 Fundarslit Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið isor@isor.is eða í síma 528 1500 PI PA R\ IP A TB W A • S ÍA ÍA A ÍAAASÍ A •••• 5 4 5 4 1 31 515 33 Gjafir sem auðga lífið Samfélagssjóðir Auðar auglýsa eftir styrkumsóknum Auður hefur frá upphafi lagt áherslu á ábyrga hegðun í allri sinni starfsemi. Við trúum því að við getum öll lagt okkar af mörkum til að byggja upp heilbrigt samfélag. Þess vegna vill Auður leggja þeim lið sem stuðla að jákvæðri uppbyggingu og framförum. Umsækjendur eru hvattir til að skilgreina verkefnið vel, sýna fram á hvernig það fellur að markmiði viðkomandi sjóðs og tilgreina hversu háa fjárhæð sótt er um og/eða hverskonar vinnuframlag. Vinnum saman að betri framtíð Hvatning til góðra verka Auður Capital | Borgartúni 29 Sími: 585 6500 | www.audur.is Umsóknarfrestur er til miðvikudagsins 5. júní 2013. Styrkjum verður úthlutað þann 19. júní 2013. Umsóknum má skila á audur@audur.is Nánari upplýsingar á www.audur.is Dagsverk Auðar er samfélagsverkefni starfsmanna Auðar. Dagsverkið felst í því að starfsmenn gefa andvirði dagslauna á hverju ári í verðugt málefni. Ennfremur vinna allir starfsmenn Auðar sem nemur einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis. Starfsmenn Auðar velja verkefni sem hljóta fjár- eða vinnuframlag. AlheimsAuður er samfélagssjóður ætlaður til að hvetja konur til frumkvæðis og athafna, einkum í þróunarlöndum. Auður leggur 1% af hagnaði sínum í sjóðinn og býður viðskiptavinum að gera slíkt hið sama. Stjórn AlheimsAuðar tekur ákvörðun um úthlutun styrkja. AlheimsAuður Dagsverk Auðar EVRÓPUMÁL Fjórðungur samkyn- hneigðra sem búa innan Evrópu- sambandsins segist hafa orðið fyrir árásum eða hótunum vegna kynhneigðar sinnar á síðustu fimm árum. Meðal transfólks er hlutfallið 35 prósent. Þetta kemur fram í nýrri og umfangsmikilli könnun sem var gerð fyrir Evr- ópustofnun grundvallarmannrétt- inda. Könnunin var kynnt í gær. 93 þúsund manns í ESB-ríkjun- um og Króatíu voru spurðir. Flest- ir höfðu orðið fyrir fordómum í Austur-Evrópuríkjum. Fátækir og ungir svarendur könnunarinnar voru líklegri til að hafa orðið fyrir fordómum vegna kynhneigðar sinnar. Flestir hatursglæpir gegn fólkinu áttu sér stað í almennings- rými og voru framdir af fleiri en einum. Flestir árásarmennirnir voru karlmenn. Rúmlega helming- ur þeirra sem varð fyrir árásum tilkynnti ekki um það til lögreglu. Helmingur svarenda sagðist hafa orðið fyrir misrétti undan- farið ár, en 90 prósent þeirra til- kynntu ekki um það. Þá segist fimmtungur samkynhneigðra og þrjátíu prósent transfólks hafa orðið fyrir misrétti á vinnustað eða við leit að vinnu. - þeb Samkynhneigðir og transfólk í Evrópu: Verða fyrir ofbeldi FRAKKLAND, AP Þjófar stálu skart- gripum fyrir um eina milljón Bandaríkjadollara, eða rúmlega 123 milljónir íslenskra króna, af hóteli í Cannes í Frakklandi aðfaranótt föstudag. Þeir höfðu ekki fundist þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Öryggisskápur á hótelherbergi á Novotel-hótelinu var tekinn úr herberginu og segir lögregla að þjófnaðurinn hafi verið vel skipu- lagður. Fulltrúi Chopard, sviss- nesks úra- og skartgripaframleið- anda, gisti í herberginu. Chopard er styrktaraðili kvikmyndahátíð- arinnar í Cannes sem nú stendur yfir og stóð fyrir galaviðburði á öðru hóteli þegar þjófnaðurinn átti sér stað. Fyrirtækið býr einn- ig til Gullpálmann sem afhentur er fulltrúum bestu myndar hverrar hátíðar. Aðstandendur hátíðarinn- ar þvertóku þó fyrir að pálmanum hefði verið stolið, og sögðu hann á öruggum stað. Að öðru leyti vildu þeir ekki tjá sig um málið. Lögreglan segir mjög líklegt að skartgripirnir hafi verið á hótelinu í tengslum við kvikmyndahátíðina, en fulltrúar hennar segjast ekki vita hverjum þeir voru ætlaðir. Nú þegar hafa leikkonan Julianne Moore og fyrirsætan Carla Dele- vingne sést með skartgripi fyrir- tækisins á rauðum dreglum. Talið er líklegt að þjófarnir séu fleiri en einn og að þeir hafi hafi haft nákvæmar upplýsingar um málið. Talsmenn Chopard vildu ekki tjá sig um málið við blaðamenn í gær en höfðu skipulagt blaðamanna- fund í gærkvöldi þar sem þeir ætluðu að svara spurningum um málið. thorunn@frettabladid.is Verðmætum skartgripum stolið í Cannes Skartgripum fyrir tæplega 125 milljónir króna var stolið af hótelherbergi í Cannes aðfaranótt föstudags. Þjófarnir þekktu líklega vel til og voru skipulagðir, að sögn lögreglu. Þeir höfðu ekki fundist í gærkvöldi. HÓTELIÐ Í CANNES Blaðamenn hópuðust á Novotel-hótelið þegar fréttir bárust af þjófnaðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.