Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 2
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜10
SKOÐUN 12➜16
HELGIN 18➜42
SPORT 66
MENNING 52➜74
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
formaður Heimdallar, fékk yfir sig
svívirðingar í ummælakerfum eftir að
hún tjáði sig um humar og hvítvín við
Fréttatímann. Margir sýndu henni þó
einnig stuðning.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson var að
sjálfsögðu fyrirferðarmikill í fréttum
vikunnar, enda komst hann í loka-
keppni Eurovision. Twitter-notendum
varð tíðrætt um sítt hár hans og
víkingalegt útlit.
Kolbrún Bergþórsdóttir blaða-
maður fékk að kenna á reiði
fótboltaáhugamanna eftir
kankvísan pistil um starfslok
Alex Ferguson í Morgunblaðið.
Hún stóð þó föst á sínu.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, vill
fá að upplýsa þá Íslendinga
sem eru með gen sem
veldur auknum líkum á
krabbameini um það.
FIMM Í FRÉTTUM EUROVISION, HUMAR OG FÓTBOLTI
➜ Heiða Kristín Helgadóttir, annar formaður Bjartrar framtíðar, var ráðin fram-
kvæmdastjóri þingflokksins. Hún sinnir því þremur störfum þessa dagana, er for-
maður BF, framkvæmdastjóri þingflokks BF og framkvæmdastjóri Besta flokksins.
VANDINN VIÐ HVÍTA LYGI 12
Þorsteinn Pálsson um kosningaumræðuna
og ríkisfj ármál.
ÍSLAND MEÐ
FYRSTU EINKUNN 16
Steingrímur J. Sigfússon um jákvæðar fréttir
að utan um áherslur í velferðarmálum.
„Enn ein sönnun þess að
Roberts skarar fram úr,
hún er meistarinn.“
Ný
kilja„Þetta er vel skrifuð saga og
persónulýsingarnar gera
frásögnina sérlega lifandi.“
FRÖNSK VEISLA 60
Þrjár girnilegar uppskrift ir frá
Provence-héraði í Frakklandi.
JAKOB FRÍMANN
BÖSTAÐI RHYMES 74
Rapparinn Busta Rhymes notaði
bút úr lagi Jakobs Frímanns í
óleyfi .
SAGÐIST VERA KONA
FJÖGURRA ÁRA 24
Ugla Stefanía Jónsdóttir er ein þeirra
transkvenna sem hafa gengið í gegnum
kynleiðréttingu hér á landi.
KÖLLUN AÐ SYNGJA MEÐ
KONUM 32
Allir geta sungið– bara misjafnlega vel.
segir Margrét Pálmadóttir, handhafi
Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins.
MÖLBROTIÐ EINKALÍF
MEÐAN FERILLINN
BLÓMSTRAÐI 36
Þótt Gunnleifur Gunnleifsson lands-
liðsmarkvörður hafi ungur náð tökum á
drykkjunni gilti það sama ekki um lífi ð.
BARNASÍÐA 40
KROSSGÁTA 42
VERÖLDIN
SÉÐ ÚR
BRÚNUM
SÓFA 34
Simpsons-fj öl-
skyldan setur
stefnuna á Ísland
á mánudag.
Guðni Tómasson
rýnir í heimssýn
fj ölskyldunnar
sígulu.
SAMFÉLAGSMÁL Íslensku þjóðkirkj-
unni líst illa á þær tillögur að frí-
dagar í miðri viku verði færðir
að helgum. Samtök atvinnulífsins
(SA) vilja færa til slíka frídaga en
kveðið er á um
þá bæði í kjara-
samningum og í
lögum.
Vinnandi
Íslendingar
hafa sennilega
f lestir orðið
varir við nokk-
urn fjölda frí-
daga frá pásk-
um og fram á
sumar. Á það
tímabil falla sérstöku frídagarnir
annar í páskum, sumardagurinn
fyrsti, 1. maí, uppstigningardag-
ur og annar í hvítasunnu.
Tveir þessara daga, sumardag-
urinn fyrsti og uppstigningardag-
ur, eru alltaf á fimmtudegi og þá
er 1. maí oft í miðri viku, síðast í
ár þegar hann var á miðvikudegi.
SA hafa lengi talað fyrir því að
þeir frídagar sem eru í miðri viku
verði færðir að helgi eða þá lagð-
ir niður gegn fleiri orlofsdögum.
Telja samtökin að með slíkri breyt-
ingu væri hægt að auka hagræði í
rekstri fyrirtækja og bæta fram-
leiðni og afköst. Hefur enda könn-
un meðal félagsmanna SA leitt í
ljós að 80% forsvarsmanna fyrir-
tækja eru fylgjandi tilfærslu frí-
daga.
Eins og áður sagði er annar
fimmtudagsfrídaganna uppstign-
ingardagur, sem er einn helsti
hátíðisdagur kristinnar kirkju en
þá er himnafarar Jesú minnst.
Kristján Valur Ingólfsson, vígslu-
biskup í Skálholti, segir að kirkj-
an myndi mjög sjá eftir fríi á upp-
stigningardegi og hvetur til þess
að staðinn sé vörður um hefðir.
„Við mundum sakna þessa dags.
Það er enginn vilji fyrir því af
hálfu kirkjunnar að þessu verði
breytt,“ segir Kristján Valur og
heldur áfram: „Við munum í það
minnsta alltaf halda upp á upp-
stigningardag á þessum degi. Ja,
svo lengi sem við kunnum að telja
en hann skal vera 40 dögum eftir
páska. En hitt er annað mál að
þetta er ekki á okkar valdi held-
ur löggjafans og ef hann vill fella
uppstigningardag niður sem frí-
dag þá þurfum við bara að beygja
okkur fyrir því.“
magnusl@frettabladid.is
Kirkjan vill halda
fimmtudagsfrídögum
Samtök atvinnulífsins vilja að frídagar sem lenda í miðri viku verði færðir að
helgum eða lagðir niður gegn því að orlofsdögum fjölgi. Einn þessara daga er
uppstigningardagur en fulltrúar þjóðkirkjunnar leggjast gegn tilfærslunni.
KRISTJÁN VALUR
INGÓLFSSON
Umræðan um tilfærslu frídaga sem falla í miðri viku er ekki ný af nálinni.
Þannig sömdu til dæmis Samtök vinnuveitenda og nokkur stéttarfélög um
tilfærslu fimmtudagsfrídaga til næsta mánudags í kjarasamningalotunni
árið 1988. Málið náði hins vegar ekki fram að ganga þar sem samningarnir
voru felldir. Þá lagði Róbert Marshall, nú þingmaður Bjartrar framtíðar,
fram frumvarp á síðasta þingi þar sem meðal annars var kveðið á um
tilfærslu frídaga að helgum. Málið komst hins vegar ekki til annarrar
umræðu.
Frumvarp kynnt á síðasta þingi
SUMARDAGURINN FYRSTI Tveir eða þrír frídagar lenda í miðri viku á vormánuð-
um í hverri viku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
UMFRAMORKA EKKI
EYRNARMERKT 4
Orka sem ekki nýtist í fyrir fram ákveðin
verkefni verður seld hæstbjóðanda.
FJARSTÝRT GASGRILL 6
LÉTU GREIPAR SÓPA
Á CANNES 10
Þjófar stálu skartgripum fyrir 125
milljónir króna á meðan á kvikmynda-
hátíðinni stóð.
„Það er óumdeilt að það
eru mikil fjárfestingar-
tækifæri á Grænlandi.“ 10
Svend Hardenberg, stofnandi
Greenland Invest.
YNGSTI FYRIRLIÐINN Á
SKOTSKÓNUM 66
Hin 19 ára gamla Guðmunda Brynja
Óladóttir hefur skorað þrjú af fj órum
mörkum Selfossliðsins sem er með fullt
hús eft ir tvo leiki í Pepsi deild kvenna í
fótbolta.
LÖGREGLUMÁL Íbúar við Ystasel í Breiðholti eru
slegnir óhug eftir að gengið var hrottalega í skrokk
á manni þar síðdegis í gær og hann skilinn eftir
liggjandi í blóði sínu á miðri götunni.
Að sögn sjónarvotta var hópur manna – allt að níu
talsins – á staðnum og umkringdi og elti þolandann,
þótt einn hafi haft sig sýnu mest í frammi við árás-
ina.
Þorvaldur Sigmarsson hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu sagði við Fréttablaðið í gærkvöldi
að tveir menn hefðu verið handteknir um kvöld-
matarleytið, hvor í sínu lagi, taldir hafa beitt mann-
inn ofbeldi. Hann sagði enn eiga eftir að koma í ljós
hvort handtaka þyrfti fleiri vegna málsins eða hvort
nægilegt yrði að boða þá til skýrslutöku.
Hafnaboltakylfa fannst á vettvangi sem sjónar-
vottar segja hafa verið notaða við árásina. Sjá mátti
stóra blóðpolla á götunni eftir að árásarhópurinn
hvarf á brott á silfruðum Land Cruiser-jeppa og
fórnarlambið hafði verið flutt burt í sjúkrabíl.
Sá sem varð fyrir árásinni, ungir íslenskur
karlmaður, slapp betur en á horfðist og lögregla
gat yfirheyrt fljótlega eftir að hann hafði fengið
aðhlynningu á spítala. Hann var þó enn undir lækn-
ishendi í gærkvöldi og talið hugsanlegt að hann yrði
þar í nótt.
Börn voru að leik utandyra í götunni, sem alla
jafna er friðsæl, og urðu vitni að upphafi átakanna.
Sjónarvottar segja að meðal þeirra sem voru á
staðnum hafi verið þekktur handrukkari.
Ekkert liggur enn fyrir um tildrög árásarinnar. - sh
Íbúar í Ystaseli slegnir óhug eftir að maður var skilinn þar eftir í blóði sínu:
Tveir teknir fyrir hrottalega árás
YSTASELIÐ Hafnaboltakylfa fannst á vettvangi og blóðpollar
sáust á götunni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL