Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 60
| ATVINNA |
Ljósmóðir á
Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands,
Hornafirði
Laus er til umsóknar staða ljósmóður við Heil-
brigðisstofnun Suðausturlands Hornafirði. Á stofn-
uninni er fæðingardeild með skilgreint þjónustustig
D1. Ljósmóðir sinnir jafnframt ungbarna- og mæðra
-vernd á heilsugæslustöð ásamt því að sinna al-
mennum hjúkrunarstörfum. Starfskjör eru samkvæmt
kjarasamningi LMFÍ og ríkisins og stofnanasamningi HSSA.
Upplýsingar veita Matthildur Ásmundardóttur, fram-
kvæmdastjóri matthildur@hssa.is, og Ester Þorvalds-
dóttir, hjúkrunarstjóri heilsugæslu, ester@hssa.is, í síma
470-8600. Upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu heil-
brigðisstofnunarinnar www.hssa.is. Umsóknafrestur er
27. maí og umsóknir skulu sendar til framkvæmdastjóra.
Heilbrigðisstofnunin er rekin af Sveitarfélaginu
Hornafirði með þjónustusamning við ríkið og eru íbúar
Sveitarfélagsins um 2.200. Hornafjörður er fjölskyldu-
vænt og blómstrandi samfélag í ríki Vatnajökuls. Auk
stórkostlegrar náttúru og útsýnis sem á sér vart
hliðstæðu er á Hornafirði að finna fjöl-
breytta þjónustu og afþreyingu sundlaug,
söfn og sýningar, golfvöll og margt fleira.
Heimasíða sveitarfélagsins er www.rikivatnajokuls.is.
Við Iðnskólann
í Hafnarfirði eru
auglýstar lausar til
umsóknar eftirtaldar
stöður við kennslu
næsta skólaár.
• Rennismíði með kunnátti í CNC tækni. 100%
• Iðnhönnun með möguleika á deildarstjórn
listnámsdeildar. 100%
• Aflvélavirkjun. 100%
• Málmsmíði. 100%
• Grunndeild rafiðna.100%
• Ljósmyndun. 50%
Umsóknarfrestur er til 25. maí 2013.
Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en
umsókn þarf að fylgja tilheyrandi fylgigögn s.s. ferilskrá
og prófskírteini ásamt öðrum upplýsingum sem umsæk-
janda þykir skipta máli.
Umsóknir skal senda til skólameistara á netfangið
arsaell@idnskolinn.is
Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2013. Launakjör fara eftir
gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og KÍ.
Upplýsingar um skólann eru á heimasíðu skólans
www.idnskolinn.is.
Frekari upplýsingar um störfin veitir skólameistari
í síma 585 3600
Skólameistari
Höfðaskóli auglýsir:
Lausar stöður
Leitað er eftir aðstoðarskólastjóra, námsráðgjafa
og kennurum á mið- og unglingastig.
Höfðaskóli á Skagaströnd er lítill skóli með 100 nemendum.
Skólinn er vel búinn til kennslu og er vinnuaðstaða kennara
góð. Á heimasíðu skólans, http://hofdaskoli.skagastrond.is ,
má sjá allar helstu upplýsingar um skólastarfið.
Barnvænt umhverfi, gott samstarfsfólk og lág
húsaleiga!
Skagaströnd er kauptún með um 530 íbúum í tæplega þriggja
klst. fjarlægð frá Reykjavík. Þar er öll almenn þjónusta í boði,
s.s. leikskóli, íþróttahús og heilsugæsla.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, vs.
452 2800, gsm 849 0370.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið
hofdaskoli@skagastrond.is
Umsóknarfrestur er til 25. maí.
Höfðaskóli Skagaströnd
Sími: 452 2800, fax: 452 2782,
íþróttahús: 452 2750,
Veffang: http://hofdaskoli.skagastrond.is
Netfang: hofdaskoli@skagastrond.is
Save the Children á Íslandi
SPENNANDI STÖRF HJÁ TÖLVULISTANU
M
REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 26
Sími 414 1700
AKUREYRI
GLERÁRGÖTU 30
Sími 414 1730
EGILSSTAÐIR
KAUPVANGI 6
Sími 414 1735
SELFOSS
AUSTURVEGI 34
Sími 414 1745
KEFLAVÍK
HAFNARGÖTU 90
Sími 414 1740
HAFNARFJÖRÐUR
REYKJAVÍKURVEGI 66
Sími 414 1750
SÖLUFULLTRÚI Á FYRIRTÆKJASVIÐI
Fyrirtækjasvið okkar sinnir þúsundum fyrirtækja og stofnana með
tölvubúnað og tölvulausnir. Við leitum að kröftugum sölufulltrúa
til þess að sinna þj nustu við fyrirtæki sem æskilegt er að a
sterka tækniþekkingu og skilning á tölvuþörfum fyrirtækja.
Reynsla í sölu á tölvubúnaði til fyrirtækja spillir ekki fyrir.
TÆKNIMAÐUR Á VERKSTÆÐI
Tölvuverkstæðið okkar sinnir viðgerðum fyrir marga af þekktustu
tölvuframleiðendum heims eins og Toshiba, Asus og Acer.
Við leitum að ö ugum tæknimanni sem hefur lokið ompTIA A
viðgerðarnámi. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga
á tölvum og tækni og hafa góða þjónustulund.
Tölvulistinn hefur á að skipa fjölda frábærra starfsmanna í verslunum okkar
um allt land. Vegna aukinna umsvifa leitum við nú að eiri skemmtilegum
og þjónustulunduðum tölvusnillingum til að bætast í hópinn.
Hvetjum alla sem uppfylla þessi skilyrði og hafa áhuga á þessum
störfum til þess að fylla út rafræna umsókn á heimasíðu okkar tl.is
18. maí 2013 LAUGARDAGUR14