Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 18
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
HELGIN
18. maí 2013 LAUGARDAGUR
„Ég lagðist í rannsóknir á karl-
mönnum og það var eiginlega
mjög frelsandi fyrir mig,“ segir
Jóhanna Vala Höskuldsdótt-
ir sem sýnir lokaverkefni sitt
úr náminu Fræðum og fram-
kvæmd um helgina. Verkið heit-
ir Menn og uppákomunni er lýst
sem skemmtikvöldi á heimasíðu
Listaháskólans. Jóhanna Vala
segist að mörgu leyti hafa verið
fordómafull í garð karlmanna
áður en hún lagðist í rannsókn-
ir fyrir verkið. „Ég er fædd-
ur femínisti ef svo má segja,
uppalin við feminísk gildi og
með mjög ákveðnar skoðanir
á kynjamálum. Svo er ég líka
lesbía og ég áttaði mig á því
fyrir nokkru að ég umgekkst
karlmenn ekkert mjög mikið.
En ég forðaðist líka umræður
um málefni kynjanna, ég var
fljót í vörn og hafði að sumu
leyti ákveðið að karlmenn gætu
ekki sett sig í mín spor.“
Annað kom á daginn segir
Jóhanna Vala. „Ég áttaði mig á
að ég hef kannski verið dálítið
þröngsýn og kannski fókuser-
að meira á einhverja baráttu
en samvinnu og samkennd. En í
þessu ferli hitti ég mjög marga
menn sem komu mér mikið á
óvart. Ég komst eiginlega að
þeirri niðurstöðu að flestir
karlmenn eru frábærir,“ segir
hún og hlær. Jóhanna Vala
bætir við að hún eigi líka yndis-
Þórunn Arna Kristjáns-
dóttir leikkona
Á listahátíð í Brussel
Ég er stödd í Brussel núna
þar sem ég er að sýna verk
með fimm öðrum íslenskum
konum á listahátíðinni
Kunstenfestival des Arts. Ég
verð hér yfir helgina og fer
svo yfir til Hollands þar sem
við sýnum um næstu helgi.
Bobby Breiðholt
hönnuður
Fylgist með Lilju
Ég mun skoða Listahátíð,
þá helst skipaflautuverkið
hennar Lilju Birgisdóttur.
Kannski að maður príli upp
á eitthvert fjall í nágrenni
borgarinnar, hitta góða vini
og njóti vorsins.
Víkingur Heiðar Ólafsson
píanóleikari
Leggur lokahönd á
tónlistarhátíð
Helgin fer svo í að leggja
lokahönd á undirbúning
Reykjavík Midsummer Music
sem haldin verður í Hörpu
19.-21. júní og verður kynnt í
næstu viku. Þemað er Tíma-
skekkja.
Jóhanna Pálsdóttir framkvæmdastjóri
Í Eurovision-stuði
Kvöldinu verður eytt í góðra vina hópi. Við ætlum að njóta
há- og lág menningarhátíðar evrópska sjónvarpsstöðva
með tilheyrandi veitingum og veðmálum. Á morgun
finnst mér líklegt að við Lísbet Freyja dóttir mín
röltum niður í miðbæ. Svo er um að gera njóta
þess sem er í boði á Listahátíð og jafnvel setjast
niður á uppáhaldsstaðinn hennar, Sushi Train.
Allt fyrir nörda Skema heldur fyrsta
Nördadaginn hátíðlegan í sam-
starfi við Háskólann í Reykjavík og
Microsoft á Íslandi í dag frá klukkan
14 til 15. Hátíðin fer fram í Sólinni í
Háskólan um í Reykjavík.
Á hátíðinni verður verðlaunaafhending
í Kodu Cup á Íslandi, gestir fá að spila
tölvuleikina sem kepptu til úrslita
í Kodu-keppninni og sumardagskrá
Skema verður kynnt. Þá mun sirkus-
hjólaskautari
leika listir sínar,
hægt verður að
spreyta sig í fót-
boltaspili, skoða
gamla tölvuleiki
og taka þátt í
léttum ratleik.
Tölvuleikir og sirkuslistir
Nördadagur
Allar kynslóðir Svavar Knútur og
dúettinn Dillidó halda fjölskyldu-
tónleika í Fríkirkjunni við Tjörnina í
dag klukkan 14.
Á efnisskránni verða sígild íslensk
söng- og barnalög auk annars
skemmtilegs efnis fyrir alla fjöl-
skylduna.
Tónleikarnir eru haldnir
með það að markmiði
að sameina yngri og
eldri kynslóðir á fallegri
og skemmtilegri dag-
stund. Því er ókeypis fyrir
ömmur og afa ef þau
eru í fylgd með
afa- eða ömmu-
börnum. Að
sjálfsögðu
er einnig
ókeypis
fyrir öll
börn.
Tónleikar í Fríkirkjunni
Fjölskyldufj ör
Myndlist Hin árlega vorsýning Mynd-
listaskólans á Akureyri verður opnuð
í dag í húsnæði skólans Kaupvangs-
stræti 16.
Sýningin stendur til 20. maí og verður
opin þessa þrjá daga frá klukkan 13
til 17.
Sýnd verða verk nemenda fornáms-
deildar, listhönnunar- og fagurlista-
deildar. Þar gefur að líta sýnishorn
af því helsta sem nemendur í frjálsri
myndlist og grafískri hönnun hafa
verið að fást við á þessu skólaári. Auk
þess verða á sýningunni verk eftir
nemendur á barna- og unglinganám-
skeiðum á vorönn.
Myndlistaskólinn á Akureyri
Vorsýning
Karlmenn eru frábærir
Jóhanna Vala Höskuldsdóttir ákvað að takast á við eigin fordóma í garð karlmanna og skrifa um
karlmenn fyrir lokaverkefni sitt í Fræðum og framkvæmd. Hún segir verkefnið vera frelsandi.
JÓHANNA VALA
HÖSKULDSDÓTTIR
„Ég áttaði mig á að
ég hef kannski verið
dálítið þröngsýn og
kannski fókuserað
meira á einhverja
baráttu en samvinnu
og samkennd.“
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sigríður Björg Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is
Átta útskrifast úr fræði og framkvæmd. Sýningar hefjast í dag og standa
fram í næstu viku. Auk Jóhönnu Völu útskrifast þau Bryndís Ósk Þ.
Ingvarsdóttir, en hún sýnir verkið Maskínan, Hinrik Þór Svavarsson, sem
á verkið Fyrirgefðu, Kristinn Sigurður Sigurðsson, sem sýnir verkið Von,
Nicolaj Falck, sem sýnir verkið Arf, Ríkharður Hjörtur Magnússon með
verkið Saum, Sigríður Eir Zophaníasardóttir með verkið Gylturnar og loks
Theódór Sölvi Thomasson með verkið Þyrpingsfjanda. Upplýsingar um
sýningartíma má finna á heimasíðu Listaháskóla Íslands, www.lhi.is.
Átta útskrifast úr fræði og framkvæmd
lega bræður. „Þeir eru dásamleg-
ir og ég er kannski í þessu ferli
öllu búin að átta mig á því að við
þurfum ekki alltaf að vera sam-
mála.“
Jóhanna Vala lofar mjög
skemmtilegri uppákomu í Þjóð-
leikhúskjallaranum þar sem verk
hennar verður frumsýnt annað
kvöld klukkan átta. „Það koma
margir menn við sögu í Mönnum
sem er verk sem vísar í margar
áttir í leikhúsheiminum.“
Jóhanna Vala, sem er 28 ára
gömul, nam sviðslistir í Glasgow og
ritlist í HÍ áður en hún hélt í Fræði
og framkvæmd. Hvað tekur svo við
að lokinni útskrift? „Mig langar til
að starfa sem listamaður og von-
andi gengur það sem allra best.“
Tölfræðin er ekki alveg okkar manni í hag í
Malmö í kvöld. Aðeins rúm þrettán prósent
sigurvegara í Eurovision í gegnum tíðina hafa
verið karlkyns.
Sé aðeins horft á íslensku keppendurna
lítur málið heldur ekki vel út, karlsöngvar-
ar okkar hafa yfirleitt hlotið mun færri stig
en söngkonurnar. Bestum árangri hafa þær
Selma Björnsdóttir og Guðrún Jóhanna náð,
en þær urðu báðar í öðru sæti keppninnar eins
og þjóðinni er í fersku minni. Sá karlsöngv-
ari sem næst þeim hefur komist var Björg-
vin Halldórsson sem lenti í 15. sæti árið 1995.
Reyndar verður að taka með í reikninginn
að Ísland hefur einungis fimm sinnum sent
karlsöngvara einsamlan í keppnina svo við
skulum ekki vera of fljót á okkur að dæma
Eyþór Inga úr leik. Hann gæti orðið undan-
tekningin sem sannar regluna.
Sigurvegarar eftir kynjum
Konur Karlar Hljómsveitir eða dúettar
Alls 36 8 16
% 60,0% 13,3% 26,7%
➜ Fyrsta konan sem vann keppnina var
Lys Assia með lagið Refrain árið 1956.
➜ Fyrsti karlinn sem vann keppnina
var André Claveau með lagið Dors
mon amour árið 1958.
➜ Fyrsta hljómsveitin sem vann keppn-
ina var að sjálfsögðu ABBA með laginu
Waterloo árið 1974.
Aðeins átta karlar hafa unnið í Eurovision
Sigurvegarar í Eurovision hafa í langfl estum tilfellum verið konur, eða í 60% tilvika. Karlarnir eru langt á
eft ir því aðeins 13,3% sigurvegara hafa verið karlkyns. Dúettar eða hljómsveitir hafa sigrað í 26,7% tilvika.