Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 16

Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 16
15. júní 2013 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Sigríður Björg Tómasdóttir, sigridur@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Nýtt kjörtímabil hófst með tveimur stefnuræðum. Forseti Íslands flutti þá fyrri á þingsetningar- fundinum; rétt eins og drottningin í breska þinginu. Hæpið er að stað- hæfa að sú uppákoma hafi verið tilraun til að breyta stjórnskipun landsins. Nær lagi er að líta svo á að með henni hafi forsetinn aðeins verið að slá í gadda að utanríkispólitíkinni og þeim lykilatriðum í efnahags- stefnunni sem af henni leiða er ráðið til lykta á Bessastöðum meðan þessi ríkisstjórn situr. Ríkari ástæða er til að áfellast ríkisstjórnina en for- setann fyrir þessa afkáralegu stöðu. Forsætisráð- herra flutti síð- ari stefnuræðuna í samræmi við þingsköp. Hún er bundin ákveðn- um formreglum og hefðum. Fyrir vikið er ekki sanngjarnt að bera hana saman við aðrar ræður sem fluttar eru í framhaldinu. Eina nýmælið í stefnuræð- unni var tilkynning um að setja kosninga loforð Framsóknarflokks- ins í húsnæðismálum í þings- ályktun. Ekkert er að því að hafa þann hátt á. En augljóst er öllum sem til þekkja að ástæðan er aðeins sú að það er eina leiðin til að láta líta svo út að strax hafi verið hafist handa við að efna loforðin. En til- lagan staðfestir að ríkisstjórnin veit ekki enn hvernig á að fara að því. Að því leyti sýnir hún veikleika. Það var fjármálaráðherrann sem flutti þungavigtarboðskapinn í stefnuumræðunni á Alþingi. Þar kom fram skýr og ákveðinn boð- skapur um hallalaus fjárlög, stöðug- leika og samstarf við aðila vinnu- markaðarins. Orð hans um höftin og viðskiptafrelsið voru af sama toga. Engum gat dulist að metnað- ur og rík ábyrgðartilfinning bjó þar að baki. Tvær stefnuræður og ein í þungavigt Vandi fjármálaráðherrans ligg-ur einkum í tvennu: Annars vegar er mjög flókið að skýra út hvernig loforð Framsóknar- flokksins ríma við hallalaus fjárlög og stöðugleika. Hins vegar er það nokkur þraut að sannfæra menn um að til lengri tíma sé unnt að viðhalda stöðugleika og fullu viðskiptafrelsi um leið og öllum öðrum gjaldmiðils- kostum en krónunni er hafnað. Síð- asti landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins hafði til að mynda ekki trú á því; var þröngsýni þó ekki í banni þar. Eftir úrslit kosninganna eru leið- togar fyrrverandi ríkisstjórnar- flokka málefnalega í fjötrum. Þeir þurfa að vinna til trausts á ný. Málflutningur þeirra í stefnu- umræðunni bendir til að þeir átti sig á þeim vanda þó að þeir nefni snögga bletti sem þeir þykjast sjá. Það er hlutverk stjórnarandstöðu á hverjum tíma. VG telur augljóslega að umhverfis málin séu líklegust til að endurheimta traustið. Efnahags- málin eru ekki þeirra sterka hlið. Formaður Samfylkingar innar vék meðal annars í hófsamri og stuttri athugasemd að þeirri hættu sem liggur í þjóðernismálflutningi Framsóknarflokksins. Markmið með honum er ekki að sameina heldur að skilja í sundur. Þeir einir eru álitnir góðir Íslend- ingar sem aðhyllast þröngsýna afstöðu forsetans í utanríkis málum. Sagan geymir of mörg dæmi um ógæfu sem fylgt getur slíkri hugs- un valdhafa. Þessi áminning var því réttmæt. Snöggu blettirnir Ríkisstjórnin hefur hætt aðildar viðræðunum við Evrópu sambandið. Alþingi tók á sínum tíma ákvörðun um aðildarumsóknina. Í full- veldi Alþingis felst að Ísland er umsóknar land þar til það sjálft ályktar annað. Utanríkisráðherra hefur farið á fund framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins til að gera þar formlega grein fyrir stefnubreytingu landsins. Svo langt er gengið að þetta er gert án þess að virða fyrst fullveldisrétt Alþings til að breyta upphaflegri ákvörðun Íslands. Ekki er unnt að lítilsvirða fullveldi Alþingis meir. Forysta Sjálfstæðisflokksins gaf fyrirheit um að framhald aðildar- viðræðnanna yrði borið undir þjóðar atkvæði á fyrri hluta kjör- tímabilsins. Forsætisráðherra sagði ekkert í stefnuræðunni um þetta efni sem hald er í. Spurningum um tímasetningu hefur hann svarað með vísan í blámóðu upphæðanna. Landbúnaðarráðherra hefur aftur á móti tekið af tvímæli um að þjóðar- atkvæði sé ekki á dagskrá. Loks hefur utanríkisráðherra sagt að aðildarviðræður muni aldrei fara fram meðan hann situr. Hann hefur lagt embættið að veði. Það merkir að hugsanlegt þjóðar- atkvæði um framhald viðræðna snerist um setu hans og jafnvel ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin mun aldrei efna til þjóðaratkvæðis á þeirri forsendu. Af þessari yfirlýsingu utanríkis- ráðherra er því ekki unnt að draga aðra ályktun en að þjóðaratkvæði um framhald viðræðna hafi verið slegið út af borðinu. Í fréttaviðtali í höfuðstöðvum Evrópusambandsins gaf ráðherrann hins vegar til kynna að spyrja mætti um eitthvað annað. Forysta Sjálfstæðisflokksins er króuð af í þessu máli. Hinu er ósvarað hvort sú staða veldur áhyggjum. Fyrirheit um þjóðaratkvæði svikið G unnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gekk í fyrradag á fund Stefans Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, og greindi honum frá þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera hlé á aðildar- viðræðunum við Evrópusambandið. Ummæli Füles á blaðamannafundi eftir viðræðurnar við utan- ríkisráðherrann hljóta að vekja athygli af tveimur ástæðum. Annars vegar ítrekaði hann að afstaða Evrópusambandsins um að hægt væri að halda áfram og ljúka aðildar viðræðum við Ísland væri óbreytt og ákvarð- anir þar um í fullu gildi. „Við höfum ekki aðeins viljann, heldur einnig getuna til að ljúka við ræðunum,“ sagði Füle. Nær því verður ekki komizt að segja á diplómatamáli að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi verið að bulla þegar hann vitnaði til samtala sinna um aðildarviðræðurnar við ónafngreinda heimildarmenn í ESB-ríkjum og dró af þeim þá ályktun að ESB virtist „skorta getu eða vilja til að ljúka þeim á næstu árum“. Hins vegar sagði Füle að það væru gagnkvæmir hagsmunir Evrópusambandsins og Íslands að ákvörðun um framhald við- ræðna væri tekin að lokinni hæfilegri skoðun. Hins vegar væri það líka allra hagur að ákvörðunin væri ekki án tímamarka. Þetta eru diplómatískt orðuð skilaboð um að viðræðuhléið geti ekki orðið of langt. Evrópusambandið sýnir því skilning að ríki vilji fara sér hægt í aðildarviðræðnum vegna tímabundinna kringumstæðna, en hefur auðvitað ekki áhuga á að láta draga sig á asnaeyrunum, fremur en aðrir sem standa í samningaviðræðum. Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði í viðtali við Fréttablaðið í marz síðastliðnum að yrði viðræðunum slitið kynni að verða erfitt að taka þær upp aftur. „Það hefðbundna er að þegar aðildarviðræður eru teknar upp, þá er þeim lokið – það fæst niðurstaða sem er lögð í dóm fólksins í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er vaninn. Ég held að við höfum engin dæmi um annað. Ég held að það yrði erfitt að halda áfram síðar, því þá gæti verið komin upp sú staða innan ESB að menn spyrðu sig að því hvort Íslendingar viti hvað þeir eru að gera. Ég held að það gæti gerst,“ sagði Bildt þá. Nú er það auðvitað svo að aðildarviðræðunum hefur ekki verið slitið, heldur gert á þeim hlé. Ákvörðun Alþingis um að sækja um aðild að ESB stendur enn. Ísland hefur áfram formlega stöðu umsóknarríkis, með ýmsum réttindum sem því fylgja, þar með töldum aðlögunarstyrkjum sem ríkisstjórnin hefur reyndar ekki svarað hvort hún hyggst þiggja áfram eða afþakka. Þannig er örlítilli rifu á dyrunum að ESB-aðild og nýjum gjaldmiðli þjóðarinnar haldið opinni. En glufan getur lokazt ef beðið er of lengi. Það væri afleitt, kæmust menn til dæmis að þeirri niðurstöðu í lok kjörtímabils að fullreynt sé að ætla að notast við krónuna sem framtíðargjaldmiðil. Öll rök hníga að því að hléið eigi ekki að verða of langt, heldur eigi þjóðin sem fyrst að fá að svara því hvort hún vilji halda aðildarviðræðunum áfram – eins og ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu báðir fyrir kosningar. Dyrnar að Evrópusambandsaðild geta lokazt: Hversu langt hlé? Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.