Fréttablaðið - 15.06.2013, Page 26

Fréttablaðið - 15.06.2013, Page 26
15. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26 B irt eð f m eð yr irv ar a um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér r ét t til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án f rv yr irv ar a. Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is 12.-23. september Krít – Santorini – Haifa / Ísrael – Limasol / Kýpur – Alanya / Tyrkland – Rhodos – Krít Kaupmannahöfn – sigling – Hellesylt – Geiranger – Andalsnes – Bergen – Stavanger – Oslo – Kaupmannahöfn. Örfá sæti laus Júní, júlí og ágúst með hinu glæsilega skemmtiferðaskipi Costa Luminosa Krít og dásemdir Miðjarðarhafsins Fegurð norsku fjarðanna E N NN E M M S IA / S IA • N M 57 64 9 Netverð á mann: kr. 303.300 á mann í tvíbýli í klefa án glugga. Innifalið: Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4* hóteli í 4 nætur á Krít með morgunverði. Kvöldverður 12. og 20. september. Vikusigling með ÖLLU INNIFÖLDU. Hafnargjöld í siglingu og akstur til og frá flugvelli og til og frá skipi. Verðdæmi á mann (júníbrottfarir): 85.000 á mann í tvíbýli / innri klefa án glugga. 119.000 á mann í tvíbýli / ytri klefa með glugga 136.000 á mann í tvíbýli / klefi með svölum. Innifalið: Vikusigling með öllu inniföldu og hafnargjöldum. Tilboðin gilda til 30. júní. Nánar upplýsingar hjá sölumönnum Heimsferða. Sjá fleirri spennandi tilboð á vegum Costa Cruises á vefsíðu Heimsferða www.heimsferdir.is Frá 303.300 kr. á mann í tvíbýli SIG LIN GA R Spennandi tilboð frá Costa Cruises Hvernig upplifðir þú að flytja frá Íslandi og alla leið til Dubai? Fyrst var ég svolítið hrædd að flytja eitthvert sem ég hafði aldrei heyrt um og líka að fara burt frá öllum vinum og fjölskyldu. En þegar ég kom til Dubai þá fannst mér æðislegt. Ég bjóst ekki við svona flottri borg. Ég hélt að það væri bara einhver eyðimörk. En svo varð ég líka svolítið hrædd að fara í skóla þarna úti af því að ég þekkti engan og enskan mín var ekki eins góð og hún er núna. En krakkarnir voru mjög góðir og hjálpuðu mér að læra enskuna. Hvernig gengur þér í skólanum? Skólinn er frekar strangur. Á hverjum morgni þá kemur þjóð- söngur og þá á maður að standa upp og alls ekki tala því það þarf að sýna landinu virðingu. Maður verður líka að vera í réttum skóla- búningi. Til dæmis, einu sinni var strákur í dökkbláum skóm en ekki svörtum og kennarinn hringdi í foreldra hans. Hann þurfti að kaupa nýja skó. Svo má alls ekki blóta en annars er þetta mjög fínn skóli. Ég á fullt af vinum alls staðar úr heiminum. Bestu vinir mínir eru frá Tyrklandi, Kenía, Brasilíu, Noregi, Malasíu, Palestínu, Sviss, Íran, Írlandi, Ind- landi og Pakistan. Það er ekkert einelti eða „drama“ í skólanum þarna, sem er mjög gott. Hefur eitthvað breyst hjá fjölskyldunni? Við breyttumst eiginlega ekkert en af því að við tölum ensku á hverjum degi þá gleymum við stundum íslenskum orðum og segjum þau á ensku. Kostir Dubai? Það er allt til alls þarna. Það er alltaf sól og hiti. Það er mjög góður matur þarna. Æðislegar verslunarmiðstöðvar og ein er með skíðabrekku. Gallar Dubai? Það er of heitt á sumrin. Það er dýrt að búa þarna. Það er varla til nein skinka þarna, út af trúarbrögðum múslima. Hvers saknar þú frá Íslandi? Ég sakna fjölskyldunnar og vina en samt er ég alltaf að tala við þau í gegnum Facebook og Skype. Svo sakna ég líka að borða íslenskan mat og nammi eins og flatkökur og vanillubombur. Kolbrún María, 12 ára dóttir Elínar Saknar að borða flatkökur segja okkur frá því? Ég vann ekkert fyrsta árið. Ég var bara að átta mig á þessu, bæði að búa til nýtt heimili og vera til staðar á meðan allir voru að aðlagast nýju landi. Eftir þetta fyrsta ár í kósí- heitum þá var mig farið að langa til að vinna og ég var svo heppin að það kom íslenskur tökumað- ur, Óttar Guðnason, hingað til að vinna við auglýsingu og hann bauð mér á settið og kynnti mig fyrir fólki í bransanum hérna sem sendu mig beint í viðtal hjá umboðsskrif- stofu og það gekk mjög vel. Síðan var ég svo heppin að fá inni hjá þessari umræddu umboðsskrif- stofu sem heitir Film quip media crew. Í gegnum hana fæ ég öll mín verkefni en ég vinn alfarið í gegn- um skrifstofuna eða umboðsmann- inn sem rekur hana. Þetta eru allt meira og minna sjónvarpsauglýs- ingar og bíómyndir. Ég hef feng- ið miklu meira að gera Dubai, þá er ég að tala um miklu stærri og viðameiri verkefni, en ég myndi fá ef ég væri enn starfandi á Íslandi. Ég fékk strax vinnu í auglýs- ingu fyrir eitt stærsta símafyrir- tæki í Sádi sem heitir Mobily. Eftir það hafa tilboðin streymt til mín. Ég tók meðal annars þátt í risa- stórri þriggja mínútna auglýs- ingu fyrir Burj Al Arab, sem er 7 stjörnu hótel, kallað seglið. Við tókum auglýsinguna upp á hótel- inu og fyrir utan á ströndinni í þrjá daga. Fyrirtækið sem gerði auglýsinguna heitir Filmworks- dubai.com <http://filmworksdubai. com/> sem gerðu meðal annars kvikmyndina Mission Impossible og fleiri bíómyndir. Á einu og hálfu ári hef ég unnið auglýsingar fyrir hótelið Burj Al Arab sem ég minntist á, Mobily- símafyrirtækið, Renault, Porche, General Motors, Bank of Quatar, Damas-skartgripaframleiðanda, Burj Khalifa, Pepsi og X Fac- tor arabia. Þá hef ég unnið fyrir auglýsingar sem auglýsa rjóma- ost, ólívuolíu og margt fleira. Með hverju árinu er alltaf meira og meira að gera hjá mér. Ég skal alveg viðurkenna að ég er mjög spennt að sjá hvað gerist hjá mér í haust þegar kemur að enn stærri og spennandi verkefnum. Börnin blómstra Það er enginn dagur eins hjá okkur því Mái vinnur vaktavinnu og ég vinn eingöngu í verkefnum einn til þrjá daga í einu og það eru mis- margir dagar á milli verkefna. En krakkarnir byrja alltaf í skólanum klukkan 7.30 og eru þar til klukk- an 15.00 á daginn. Oliver er í fót- boltaliði skólans og Kolbrún María í körfuboltaliði skólans og svo æfa þau bæði tennis. Kolbrún María hefur óbilandi áhuga á leiklist og söng en hún er með langan feril að baki í leikhúsi, kvikmyndum, tal- setningum og að sitja fyrir frá því að hún var fjögurra ára. Í Dubai er hún nýbyrjuð að læra á píanó og hefur verið að syngja á skóla- skemmtunum með skólahljóm- sveitinni. Hún lék til að mynda aðalhlutverkið, Dórótheu í Galdra- karlinum í Oz, í skólanum og svo komst hún í úrslit í sjónvarpsþætt- inum „Kids got talent“ í Dubai. Hún ætlar að reyna að finna fleiri svoleiðis keppnir. Þannig að það er alltaf nóg að gera. Með sundlaug bak við húsið Hvernig er veðrið og að ekki sé minnst á matinn í Dubai? Það er ekkert of heitt í Dubai nema í júní, júlí og ágúst. Maður þarf alveg að klæðast peysu á kvöldin yfir vetrartímann en það er lítill raki. Veistu, ég fæ ekki leiða á góða veðrinu í Dubai. Ég er með sundlaug bak við hús sem ég fer næstum því í á hverjum degi. Svo skokkum við stundum í hverfinu og förum í líkamsrækt sem er líka í hverfinu. Maturinn í Dubai er líka sá allra besti sem ég hef smakkað en við förum frekar oft saman út að borða, að minnsta kosti tvisvar í viku eða oftar. Það eru allir bestu veitingastaðir í heimi í Dubai og þá er ég að tala um allra þjóða mat. En ókostir – þeir hljóta að vera einhverjir? Ókostirnir í Dubai eru að það vantar betri hjólaaðstæður og svo er Dubai of langt í burtu frá Íslandi. Við þurfum til að mynda alltaf að taka tvær flugvélar til að komast á milli. Kostirnir – hverjir eru þeir? Það eru margir með þjóna á heimil- um sínum og fólk spyr mig reglu- lega af hverju við erum ekki með þjón á heimilinu okkar en fólkinu í Dubai finnst ekkert eðlilegra en að hafa þjón. Það er ótrúlegur íburð- ur í öllu og margt magnað að sjá og upplifa. Svo fæ ég líka að fara á flottustu staðina með vinnunni minni í tökum sem eru ævintýri. Frábærir nágrannar Ertu sannarlega sátt Elín – lang- ar þig ekki heim til Íslands? Ég er ekkert smá ánægð með þetta allt saman og hvað það gengur vel. Það sem er svo frábært við að búa hérna er að það er svo mikið af fólki frá öllum heiminum hérna að gera það sama og við. Og að fá að prófa eitthvað nýtt og fá ný tækifæri í lífinu. Nágrannar mínir hérna í götunni eru til að mynda frá Englandi, Danmörku, Svíþjóð, Póllandi, Skotlandi, Rúmeníu, Suður-Afríku og Líbanon. Þú hlýtur að sakna einhvers frá Íslandi? Það sem ég sakna mest frá Íslandi eru fjölskylda og vinir og stundum rokið og rigningin líka. En ég finn samt ekki eins mikið fyrir því að ég bý í útlöndum eins og áður þegar ég bjó erlendis. Ég nota Skype- samskiptaforritið og Facebook þannig að ég missi ekki af neinu. Ég er alveg ótrúlega þakklát núna að við skulum hafa tekið þessa ákvörðun og tekið þennan séns að flytja alla leið til Dubai fyrir þremur árum því tækifærin hafa aldrei verið meiri en nú. Allir eru heilbrigðir og lífið er yndislegt. Að fá að vera heima á Íslandi yfir sumartímann í júní, júlí og ágúst er algjör lúxus í mínum huga. Við vitum ekkert hvenær við komum heim aftur okkur líður rosalega vel í Dubai. SAMVERA Elín, Mái og Kolbrún skelltu sér á skíði í verslunarmiðstöð. Í SÓLBAÐI Á LÚXUSSNEKKJU Elín setur upp Zoolander-svipinn. MYND/ÚR EINKASAFNI MÆÐGURNAR SAMAN Takið eftir fallega kjólnum sem Elín er klædd í. MOSKUFERÐ Mái og börnin. Ljósa- krónan sem sjá má fyrir ofan þá er 9 tonn að þyngd að sögn Elínar. ➜ Krakkarnir hafa fengið rosa- lega mikið út úr því að búa hér. Þau ganga í alþjóðlegan ensku- mælandi skóla sem er frekar strangur en virkilega góður skóli. GÓÐAR VINKONUR Kolbrún með mömmu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.