Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 36

Fréttablaðið - 15.06.2013, Síða 36
15. júní 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 ROSALEG ÞÖRF TIL AÐ GERA EITTHVAÐ NÝTT Hljómsveitin Sigur Rós gefur út sína sjöundu hljóðversplötu, Kveikur, á þjóðhátíðar- deginum 17. júní. Fréttablaðið ræddi við trommuleik ar ann Orra Pál Dýrason um nýju plötuna, fjöl skyldulífið og viðskilnaðinn við Kjartan Sveinsson. Sjöunda hljóðversplata Sigur Rósar, Kveikur, kemur út á þjóðhátíðar-degi Íslendinga, mánu-daginn 17. júní. Hún er frábrugðin þeirri síðustu, Valtari, sem var róleg og inn- hverf. Ákefðin er meiri á þessari, trommutakturinn þyngri og bass- inn er meira áberandi. Blaðamaður hitti trommarann Orra Pál Dýrason í Iðnó og byrj- aði á að spyrja hvort hljómsveitin hefði meðvitað viljað breyta um stefnu og kveðja rólegheitin sem einkenndu Valtara. „Við vorum orðnir svolítið leiðir. Við fengum rosalega þörf til að gera eitthvað nýtt, eitthvað allt annað og nota aðrar aðferðir. Kjartan var náttúrulega hættur þannig að það breyttist helling við það líka,“ segir Orri Páll en Sigur Rós varð opinberlega að tríói í janúar þegar hljómborðs- og píanó- leikarinn Kjartan Sveinsson hætti eftir fimmtán ár í bandinu. „Við vorum í stúdíóinu að gera Valtara en þegar það voru frídagar vorum við farnir að hittast heima hjá mér. Við byrjuðum þar úti í bílskúr að semja fyrir Kveik. Við vorum rosa- lega lengi með Valtara, alltof lengi, og langaði bara að gera eitthvað annað.“ Valtari naut engu að síður mik- illa vinsælda. Hún komst í áttunda sæti breska breiðskífulistans og var fyrsta plata sveitarinnar til komast inn á topp tíu á bandaríska Billboard-listanum. Samanlagt hefur hún selst í yfir 300 þúsund eintökum úti í heimi og í fimm þús- undum hér heima. Nefndu tölvuna Kjartan Orri Páll viðurkennir að það hafi verið skrítið að sjá á bak Kjartani eftir öll þessi ár. „Það var svolítið öðruvísi að hittast bara við þrír. Það er líka rosalega lítið píanó á plötunni. Þegar við vorum að byrja að semja notuðum við tölvuna rosa- lega mikið. Við gerðum einhverja grunna í tölvunni sem við spiluð- um svo með. Við nefndum tölvuna Kjartan,“ segir hann og hlær. „En þetta varð allt eðlilegt mjög fljót- lega.“ Hann segir þá félaga aldrei hafa íhugað að leggja Sigur Rós niður þegar Kjartan ákvað að hverfa á braut. „Kjartan var búinn að tala lengi um að hætta og það kom okkur ekkert á óvart. Þetta var allt í góðu og við erum góðir vinir. En við vorum að fjarlægjast, fara í mismunandi átt, eins og gerist í langtímasamböndum.“ Íhuguðu að gefa út sjálfir Samningur Sigur Rósar við stór- fyrirtækið EMI, sem hefur gefið út síðustu plötur sveitarinnar í Evrópu og í Asíu, rann út eftir útgáfu Valtara. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðsins vildi Kjart- an virða samninginn við EMI áður en hann hyrfi á braut. Sigur Rós hefur núna samið við bresku útgáfuna XL, sem er smærri í sniðum en EMI, og kemur Kveikur út á hennar vegum úti um allan heim. Af hverju vilduð þið skipta um útgáfufyrirtæki? „Á síð- ustu plötu vorum við hjá XL í Ameríku en núna erum við hjá þeim yfir allan heiminn. Við höfum mjög góða reynslu af þeim. Þetta er miklu sann- gjarnari samningur og þægi- legra umhverfi en hjá EMI, þó svo að ég sé ekkert að tala illa um EMI. Þetta var bara skömminni skárra.“ Aðspurð- ur segir Orri Páll þá félaga hafa íhugað að gefa plötuna út sjálfir. „Við vorum að tala um það en það er bara svo mikið vesen. Ég held að peningalega hefði það komið út á sama stað því við hefðum þurft að ráða fullt af fólki.“ Ekki þreyttur á gömlu lögunum Sigur Rós hefur verið á tónleika- ferð um heiminn frá því í fyrra en árið 2012 spilaði sveitin fyrir framan 350 þúsund manns á 38 tónleikum. Mörgum Íslending- um eru minnisstæðir sjö þúsund manna tónleikar sveitarinnar í Nýju Laugardals höllinni á Iceland Airwaves, sem voru þeirra fyrstu á hátíðinni í ellefu ár. Sjónræni þáttur inn var fyrirferðarmikill á þeim tónleikum. „Við höfum alltaf verið með vídeó en þetta er orðið meira. Mér finnst þetta skipta mjög miklu máli. Fólk notar augun alveg eins og eyrun á tónleikum. Þetta á að vera öðruvísi en að hlusta bara á plötuna og við reyn- um að gera þetta að upplifun.“ Trymbillinn segir gaman að spila nýju lögin á tónleikum í bland við þau gömlu, sem þeir hafa verið að spila síðan sumarið 1999. Inntur eftir því hvort hann verði aldrei þreyttur á að spila eldri lögin neitar hann því. „Nei, það er alveg ótrúlegt. Að spila á tónleikum er eitt ferli en það er samt alltaf gaman að spila nýtt lag. Maður er ekki alveg eins öruggur og þarf að fara út fyrir þægindarammann og leggja aðeins á sig.“ Þið eigið mikið af lögum í ykkar lagasafni. Er ekki gott að geta róterað þeim á milli tónleika? „Við gerum það voða lítið, þetta er alltaf mjög svipað,“ segir hann og brosir. Þolir ekki Coachella-hátíðina Þegar Sigur Rós er ekki að spila á stórum tónlistarhátíðum spilar hljómsveitin spilar iðulega fyrir framan fimm til tíu þúsund manns í hvert sinn. Orri Páll getur alveg hugsað sér að spila á stærri stöð- um, til dæmis íþróttaleikvöngum. „Ef fólk myndi mæta værum við alveg til í það en ég hef ekki trú á að það muni gerast. Við erum ekki beint poppband og svo er þetta allt á íslensku.“ Hljómsveitin er í þriggja vikna fríi heima á Íslandi áður en hún fer í tónleikaferð um Evrópu þar sem spilað verður á tónlistarhátíðum á borð við Hróarskeldu í Danmörku og Rock Werchter í Belgíu, en Orri Páll hefur mjög gaman af því að spila á þeim báðum. Hann segir hátíðirnar samt vera misskemmti- legar. „Sumar eru bara leiðinlegar eins og Coachella [í Kaliforníu]. Ég þoli ekki Coachella, mér finnst það mjög leiðinleg hátíð.“ Aðspurður hvort einhver frægur en ólíklegur Sigur Rósar-aðdáandi hafi hitt hljómsveitina baksviðs í gegnum árin nefnir hann eftir smá umhugsun klámmyndaleikar- ann Ron Jeremy á tónleikum í Los Angeles. „Hann kom einu sinni. Það var mjög ólíklegt.“ Skrítið samband við trommurnar Spurður út í trommuleik sinn segist Orri Páll eiga mjög skrítið samband við trommurnar. Hann snertir þær helst ekki nema hann verði að gera það og spilar þess í stað á píanó eða gítar. „Þetta er svolítið óþægilegt hljóðfæri og óumhverfisvænt. Það er eigin- lega bara í stúdíóinu og þegar við erum að semja og túra sem ég spila á trommur. Ég var reyndar að fá mér rafmagnstrommusett, þar sem er hægt að vera með heyrnartól þannig að kannski á ég eftir að æfa mig meira. Ég verð að gera það því ég verð ferlega ryðgaður þegar við leggjum af stað á túra eða förum í stúdíó.“ Flytur í Skerjafjörðinn Fríið á Íslandi hefur Orri Páll nýtt með fjölskyldu sinni en hann á tvö börn með eiginkonu sinni Lukku Sigurðardóttur og eina dóttur úr fyrra sambandi. Fram undan eru flutningar úr Bústaðarhverfinu í litla Skerjafjörðinn um næstu mánaðamót. Hann segir fjölskyld- una vera duglega að koma með sér á tónleikaferðalög. „Krakkarnir elska rútuna. Ég á tvo litla stráka og 13 ára stelpu og þau fíla það mjög vel. En annars er þetta svo- lítið sjóaralíf. Þetta er gert í hálf- gerðum vertíðum. Þessi túr er eitt og hálft ár en áður en Valtari kom út túruðum við ekki í fjögur ár.“ Vilja semja kvikmyndatónlist Eftir að ferðalagi Sigur Rósar um Evrópu lýkur í lok ágúst er förinni heitið til Norður-Ameríku. Þar spilar hljómsveitin í september og október og ferðast svo aftur til Evrópu, þar sem síðustu bókuðu tónleikarnir verða í Noregi 28. nóvember. Eftir það er óvíst hvað tekur við hjá Orra Páli, söngvar- anum Jónsa og bassaleikaranum Georg Holm. „Okkur dauðlangar að fara að semja eitthvað. Ég veit ekki hvort það verður plata. Okkur langar svolítið til að gera tónlist við bíómynd. Það væri gaman að eyða góðum tíma í eitthvað svoleiðis.“ Gátu ekki sagt „nei“ við The Simpsons Það vakti heimsathygli þegar Sigur Rós kom fram í þætti af Simpsons- fjölskyldunni og samdi einnig tónlist- ina í þættinum. „Þetta var mikill heiður. Þegar við vorum spurðir hvort við vildum gera þetta þá höfðum við engan tíma en við sögðum samt „já“ um leið. Við bjuggum til tíma, baksviðs og á hótelherbergjum, og bjuggum til tónlist og tókum upp. Við gátum bara ekki sagt „nei“,“ segir Orri Páll. TRÍÓ Hljómsveitin Sigur Rós er núna skipuð Orra Páli Dýrasyni, Jóni Þór Birgissyni og Georg Holm. ORRI PÁLL DÝRASON Trommari Sigur Rósar er í þriggja vikna fríi á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.