Fréttablaðið - 15.06.2013, Page 63

Fréttablaðið - 15.06.2013, Page 63
| ATVINNA | Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Rammasamningur „Eldsneyti fyrir Reykjavíkurborg“ EES útboð nr. 13065. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild ÚTBOÐ Sveitarfélagið Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í tæmingu rotþróa í Borgarbyggð 2013 – 2017. Verkið felst í hreinsun rotþróa við lögbýli og sumarhús í sveitarfélaginu og flutningi á seyru til förgunar. Heildar- fjöldi rotþróa sem hreinsa skal á samningstíma er um 1.600 stk. Verktaki skal einnig staðsetja allar rotþrær með GPS. Útboðsgögn verða til afhendingar í Ráðhúsi Borgar- byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi og hjá EFLU verkfræðistofu, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík frá og með 18. júní 2013 gegn skráningu á samskiptaaðila bjóðanda í útboði. Tilboð verða opnuð 10. júlí 2013 ‚ kl. 11:00, í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. ÚTBOÐ Hafnarsjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í verkið: UMHVERFI SMÁBÁTAHAFNAR Á FÁSKRÚÐSFIRÐI Jarðvinna og yfirborðsfrágangur Um er að ræða vinnu við yfirborðsfrágang umhverfis smábátahöfnina á Fáskrúðsfirði, auk landfyllinga og klæðningu hafnarkanta. Stærð svæðis: 21.600 m2 Verkið felst meðal annars í: - Stækkun landfyllingar og gerð vatnsrásar - Gerð ramps fyrir sjósetningu báta - Frágangur á hafnarkanti með grjótvörn og grjótklæðningu - Malbikun göngu og akstursleiða - Vélsteyptur kantstein - Hellulögn við stíga og dvalarsvæði - Jarðvegsmanir - Þökulögn og grassáning - Gerð gróðurbeða - Uppsetningar og að hluta til smíði á búnaði - Lýsing og vatnslagnir Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Fjarða- byggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð frá og með miðvikudeginum 19. júní n.k. á skrifstofutíma. Gjald fyrir útboðsgögnin 5000 kr. Tilboðum skal skila til bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 2. júlí 2013. Tilboð verða opnuð á sama stað og tíma. Verklok eru áætluð 13. júní 2014. Auglýsing frá Sveitarfélaginu Ölfusi, kynning á skipulagslýsingu. Á fundi bæjarstjórnar Ölfuss, 30. maí 2013 var samþykkt að heimila kynningu á skipulagslýsingum samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Eftir kynningu verður tekinn afstaða til skipulagslýsinganna og hvort farið verði í aðalskipulagsbreytingar á svæðunum sem lýsingar ná yfir. Skipulagslýsingin fyrir framkvæmdir sem Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir aðalskipulagsbreytingum fyrir: 1. Stækkun iðnaðarsvæðis Hverahlíðarvirkjunar upp á Norðurhálsa. Við boranir í Hverahlíð hefur komið í ljós að jarðhita- svæðið er ekki eins og gert var ráð fyrir í áætlunum Orkuveitu Reykjavíkur. Svæðið er þétt til norðurs og er ekki hægt að vinna jarðhita þar. Til vesturs er svæðið kalt, en við boranir til suðurs, undir Norðurhálsa, kom fram mjög hár hiti. Til að kanna og vinna jarðhita í Hverahlíð er nauðsynlegt að bora á Norðurhálsum. 2. Tengin iðnaðarsvæða Hverhlíðarvirkjunar og Hellisheiðavirkjunar. Iðnaðarsvæði sem sýnt er í aðalskipulagi við Hverahlíð framlengist til norðurs, verður beggja vegna þjóðvegar nr. 1, fram hjá Gígahnúk og að iðnaðarsvæðinu ofan Hellisskarðs. Þessi tenging er til að koma lögnum fyrir skiljuvatn og gufu frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar. Orkuveituna vantar skiljuvatn frá Hverahlíð fyrir annan áfanga varmastöðvar og til nýtingar í lágþrýstivél. Einnig er til skoðunar að nýta gufu frá Hverahlíð annaðhvort til að viðhalda framleiðslu í Hellisheiðarvirkjun eða að flytja stöðvarhús Hverahlíðarvirkjunar í Sleggju, þar sem vélar 5 og 6 eru núna. 3. Skiljuvatnslögn frá Hellisheiðarvirkjun til sjávar. Orkuveitan áformar að leggja niðurgrafna, foreinangraða stállögn, meðfram Þrengslavegi og áfram með Þorláks- hafnarvegi til sjávar við Þorlákshöfn. Núverandi niðurrennslissvæði við Húsmúla og Gráu- hnúka eru á mörkum þess að taka við öllu skiljuvatni Hellisheiðarvirkjunar. Þá er mikilvægt að hætta niður- dælingu í Gráuhnúkasvæðið svo nota megi það til gufu- öflunar. Hugmyndir eru uppi um að nýta skiljuvatn frá Hverahlíð í Hellisheiðarvirkjun og flytja hluta þess með skiljuvatnslögn til sjávar. Möguleikar til nýtingar skilju- vatnsins í Ölfusi eru til skoðunar. 4. Leiðrétting vatnsverndarsvæða við Engidalskvísl. Eftir að borun fyrir köldu vatni hófst kom í ljós að nægja- nlegt vatnsmagn er á mjög afmörkuðu svæði og ekki þyrfti að vera langt á milli borholna. Þess vegna verður brunn- svæðið minnkað verulega og að það nái utan um núver- andi og mögulegar framtíðarborholur á takmörkuðu svæði við Engidalskvísl. Þess vegna er leiðrétting á grannsvæði og fjarsvæði vatnsverndarinnar. Bæjarstjórn Ölfuss hefur samþykkt þennan lið og mun leiðréttingin koma inn í endurskoðað aðalskipulag. Skipulagslýsing er nær yfir breytingu á iðnaðarreit I14, um 1,3 km norðan við Þorlákshöfn, þar sem iðnaðarsvæðinu er breytt að hluta í landbúnaðarsvæði. Skipulagslýsingin segir frá nýtingu á landbúnaðarsvæðinu sem nota skal til minkaeldis fyrir allt að 10 þúsund læður þar sem byggð verða allt að 10 hús, hvert um sig 2500 m2. Minkaeldi fellur undir landbúnað og skal staðsetningin uppfylla um mengunarvarnir og hollustuhætti. Fimmtudaginn 20. júní 2013 verður kynning á skipulags- lýsingunum í Ráðhúsi Ölfuss, Ráðhúskaffi, kl. 16:00. f.h. Sveitarfélagsins Ölfuss Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi. Sveitarfélagið Ölfus Varaaflstöð í Bolungarvík - Jarðvinna Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna tengivirkis sem verður byggt í Bolungarvík í samræmi við útboðsgögn BOL-03. Verkið felur í sér jarðvinnu, grafa fyrir og fylla í undirstöður og gólf, vegna byggingu nýrrar varaaflstöðvar í Bolungarvík Helstu magntölur eru: • Gröfur 1.000 m3 • Fylling 350 m3 Verkinu skal að fullu lokið 2. ágúst 2013 Væntanlegum bjóðendum er bent á að kynna sér grunnkröfur Landsnets til birgja sem finna má á heimasíðu fyrirtækisins, www.landsnet.is Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 18. júní 2013. Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. júní 2013 þar sem þau verða opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð BOL-03 F.h. Strætó bs. er óskað eftir tilboðum frá verk tökum í akstur almenningsvagna á starfssvæði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagss- væðinu. Útboðsgögn á geisladiski fást á 5.000 kr. frá og með 18. júní 2013 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, 1. hæð, Bor- gartúni 12–14, 105 Reykjavík. Opnun tilboða: 24. júlí 2013 kl. 14:00 í Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skila í þjónustuver. 13059 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild sími: 511 1144 LANGAR ÞIG Á TÓNLEIKA? Það er sama hvað er að gerast - við seljum miðana. F ÍT O N / S ÍA LAUGARDAGUR 15. júní 2013 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.