Fréttablaðið - 15.06.2013, Side 75
KYNNING − AUGLÝSING Íslensk framleiðsla15. JÚNÍ 2013 LAUGARDAGUR 7
Marel er alþjóðlegt fyrirtæki þar sem vinna rúmlega 4.000 starfsmenn og er í hópi stærstu
útflutningsfyrirtækja landsins. Fyrirtækið er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á
háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi.
Marel byggir framleiðslu sína á traustum grunni. Hjá fyrirtækinu starfar saman reynslumikill
hópur fólks með fjölbreytta iðn- og tækniþekkingu. Sameinaðir kraftar starfsmanna hafa skilað
samfélaginu auknum verðmætum.
www.marel.is
Stefán U. Wernersson, framleiðslu-stjóri hjá Te & kaffi, segir vandvirkni skipta höfuð máli í kaffiframleiðslu.
„Við erum auðvitað fyrst og fremst með gott
starfsfólk sem hefur verið lengi í geiranum
og þekkir kaffi. Brennslumeistarinn okkar
varð til dæmis í öðru sæti í heimsmeist-
arakeppni kaffismakkara fyrir nokkrum
árum,“ segir Stefán. „Auk þess erum við í
nánu samstarfi við aðilana sem við kaup-
um kaffið af og þar eru gæðin í fyrirrúmi.“
Kaffinu er skipt í gæðaflokka eftir að
baunirnar hafa verið tíndar af trjánum, líkt
og gert er með ávexti. „Fallegustu baunirn-
ar eru settar í háa gæðaflokka og þær sem
eru litlar og ekki jafnfallegar eru settar í
aðra flokka,“ útskýrir Stefán.
Te & kaffi kaupir kaffi alls staðar að úr
heiminum. „Kaffi er í rauninni mjög svip-
að og vín, að því leyti að kaffi sem kemur
frá mismunandi svæðum hefur sinn eigin
bragðeiginleika,“ segir Stefán. „Við bjóðum
viðskiptavinum okkar bæði að kaupa kaffi-
baunirnar hreinar frá upprunalandi sínu í
verslunum okkar, en svo búum við líka til
okkar eigin kaffiblöndur. Þær eru vinsæl-
astar á almennum markaði og fást til dæmis
í matvöruverslunum. Þegar kemur að kaffi-
blöndun skiptir reynslan höfuðmáli. Við
erum stöðugt að smakka kaffið í ferlinu.“
Samfélagsleg ábyrgð
Te & kaffi leggur áherslu á umhverfis- og
mannréttindamál í framleiðslu sinni. Fyrr
á árinu fékk fyrirtækið vottunina „fyrsta
lífræna kaffibrennsla Íslands“, en til að fá
slíka vottun þarf að stand ast strangar gæða-
kröfur. Te & kaffi er eina kaffibrennslan á
íslandi sem má framleiða lífrænt kaffi og
jafnframt sú eina sem má framleiða Fair-
trade-vottað kaffi.
Fyrirtækið skartar auk þess vottunum
frá Utz, Rainforest Alliance og Unicef. „Við
vitum hversu mikilvægt er að vera ábyrgð-
arfullur og stunda sanngjörn viðskipti og
erum tilbúin til að borga aðeins meira fyrir
kaffið til þess að vera viss um að allir fái
sinn bita af kökunni. Okkur finnst mikil-
vægt að stunda viðskipti í gegnsæju og rekj-
anlegu umhverfi,“ segir Stefán. „Við erum
líka í samstarfi við Unicef, kaupum inn
kaffi í gegnum Rainforest Alliance og selj-
um það til fyrirtækja í gegnum Unicef og
styrkjum þannig samtökin. Ég tel það mjög
mikilvægt í dag fyrir öll fyrirtæki að leggja
sitt af mörkum til samfélagsins.“ Fyrirtæk-
ið hefur styrkt Unicef um 15 milljónir frá
árinu 2008.
Allir verða að vanda sig
Allir starfsmenn á kaffihúsunum fara í
gegnum kaffibarþjónaskóla. „Upplifun við-
skiptavinarins er í höndum kaffibarþjóns-
ins. Hann er síðasti hlekkurinn í keðjunni.
Ef hann kann ekki að hella upp á góðan
espresso þá er vandvirkni okkar í fram-
leiðsluferlinu til einskis,“ segir Stefán.
„Hvert skref skiptir máli: Allt frá ræktun
til kaffibollans. Því verða allir að vanda sig
til þess að viðskiptavinurinn fái gott kaffi.“
Kaffibrennslan
„Við kaupum aðeins kaffi úr hæsta gæða-
flokki. Baunirnar koma til landsins græn-
ar, svokallaðar hrábaunir, og fara í gegnum
ofninn hjá okkur,“ segir Stefán og bætir við
að bragðeiginleikar kaffibaunanna ákvarð-
ist í ofninum. „Þegar maður ljósristar kaffi
finnur maður frekar ávaxtakeim og eigin-
leika baunanna en þegar maður ristar kaffið
meira þá kemur ákveðin dýpt í kaffið.“
Te & kaffi ristar kaffibaunir daglega, frá
morgni til kvölds. Kaffibrennsluofninn er af
fullkomnustu gerð blástursofns sem hitaður
er með gasi. Aðferðin sem notast er við skil-
ar kaffibaunum í hæsta gæðaflokki, en hún
kallast „Slow roast“ eða „hæg ristun“ og er
notuð um allan heim í kaffibrennslum sem
leggja mikla áherslu á gæði. Ofninn er tölvu-
stýrður. „Nákvæmnin er slík að við getum
ábyrgst að hver kaffitegund er alltaf eins.
Ef viðskiptavinurinn er sérstaklega hrifinn
getur hann verið viss um að fá það sama úr
næsta poka,“ útskýrir Stefán.
Kaffibrennarinn er búinn svokölluðum
eftirbrennara sem brennir reykinn sem
myndast við kaffiristun og eyðir öllu efni
og lykt sem er mjög umhverfisvænt. Kaffi-
brennslan hjá Te & kaffi skilar því engri
mengun út í andrúmsloftið.
Umhverfisvernd og mannréttindi
Að baki hverjum kaffibolla liggur löng leið. Hvert skref í ferlinu skiptir máli, samkvæmt Stefáni U. Wernerssyni, framleiðslustjóra
hjá Te & kaffi, en þar er vandvirkni í fyrirrúmi á hverjum stað. Kaffið er smakkað við brennsluofninn og starfsfólkið á
kaffihúsunum stundar nám við kaffibarþjónaskóla.
„Við kaupum aðeins kaffi úr hæsta gæðaflokki. Baunirnar koma til landsins grænar og fara í gegnum ofninn hjá
okkur,” segir Stefán U. Wernersson, framleiðslustjóri hjá Te & kaffi. MYND/GVA