Fréttablaðið - 15.06.2013, Qupperneq 76
KYNNING − AUGLÝSINGÍslensk framleiðsla LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 20138
Yfirleitt gengur vel að
rækta basilíku á sumrin
en þó ekki utandyra.
Plantan er viðkvæm.
Ef hún er á björtum
stað og vel er hugsað
um hana verður hún
ræktarleg. Lús getur
myndast á plöntunni
og því er nauðsynlegt
að fylgjast vel með
henni. Græn og ljúffeng
blöðin má síðan nota í
heimagert pestó sem er
einstaklega gott.
Hér kemur uppskrift.
1 ½ dl fersk basilíka
¼ tsk. salt
½ tsk. nýmalaður pipar
1 hvítlauksrif
2 msk. furuhnetur
1 dl ólífuolía
1 ½ dl rifinn parmes-
anostur
Blandið öllum þurr-
efnum saman í mat-
vinnsluvél og setjið
síðan olíuna smátt og
smátt saman við þar
til maukið er mátulega
þykkt. Bragðbætið með
salti og pipar eftir því
sem þurfa þykir.
Nýlagað pestó er gott
út í spagettí eða annað
pasta en einnig ofan
á brauð með alls kyns
osti.
HEIMALAGAÐ GRÆNT PESTÓ
FERSK SALSASÓSA
Íslenskt grænmeti fer vel í
framandi matargerð. Nachos-
flögur með ferskri salsasósu eru
til dæmis hressandi nasl á ljúfum
sumarkvöldum. Það sem þarf í
salsa er:
2 vorlaukar, smátt skornir
4 tómatar, fræhreinsaðir og
skornir í bita
3 paprikur, rauð, gul og græn,
fræhreinsaðar og skornar í litla
bita
4 msk. fersk steinselja, helst með
flötum blöðum
60 ml ólífuolía
Safi úr einni límónu
Blandið öllu vel saman og kryddið
með salti og pipar. Sumir nota
ferskt kóríander í stað steinselju.
Einnig má nota rauðlauk í stað
vorlauks og eldpipar (chili) ef
óskað er eftir sterkari bragði.
Setjið flögurnar í eldfast form,
stráið rifnum mozzarellaosti yfir.
Setjið undir grill í um það bil tvær
mínútur eða þar til osturinn er
bráðnaður. Berið fram með fersku
salsa. Það má breyta til og setja
eldað nautahakk eða kjúkling út
á flögurnar áður en þetta er sett
í ofninn.
Nachos-flögur hitaðar í ofni eru afar
EFNILEG ATVINNUGREIN
Tölvuleikjaiðnaðurinn er
ung og vaxandi atvinnugrein
hérlendis. Fyrstu fyrirtækin sem
komu nálægt tölvuleikjagerð
voru stofnuð fyrir aldamótin 2000
en undanfarin ár hefur orðið
mikill vöxtur í greininni hérlendis.
Árið 2009 stofnuðu tíu fyrir-
tæki Samtök leikjaframleiðanda
(IGI) en þeim var ætlað að veita
leikjaframleiðendum stuðning
og margvíslega þjónustu. Í dag
eru níu fyrirtæki í samtökunum.
Velta þeirra nam tæplega tíu
milljörðum árið 2011 og hjá þeim
störfuðu 620 starfsmenn. Það er
talsverður vöxtur frá árinu 2009
þegar veltan nam 6,7 milljörðum
og þar störfuðu 280 starfsmenn.
Mikil bjartsýni ríkir um frekari
vöxt í greininni næstu árin og má
áætla 10-12% vöxt í veltu næstu
árin hérlendis. Erlendis er búist
við 7,2% vexti á næsta ári. Meðal
þekktra tölvuleikjafyrirtækja má
nefna CCP, Betware, Clara, Plain
Vanilla, Gogogic og MindGames.
Tölvuleikurinn The Moogies frá Plain
Vanilla.