Fréttablaðið - 22.08.2013, Síða 1

Fréttablaðið - 22.08.2013, Síða 1
FRÉTTIR LEIKRIT UM STÍLISTABlow me heitir nýtt leikrit sem sett verður upp í Banda- ríkjunum. Verkið er byggt á síðustu dögum stílistans Isabellu Blow sem meðal annars uppgötvaði Alexander McQueen og Sophie Dahl. HÆTTI Á HORMÓNUM OG VALDI FEMARELLEICELCARE KYNNIR Loksins er komin á markað náttúruleg lbreytingaaldri. Femarelle er úr ju t BREYTT LÍÐAN Kristín segist finna mikinn mun á sér eftir að hún byrjaði að taka inn Femarelle. MYND/GVA Skipholti 29b • S. 551 0770 NÝ SENDING AF VETRARVÖRUM! SÍÐUSTU DAGAR AF RÝMINGASÖLUNNI. TÆKIFÆRISGJAFIRTILBOÐ - mikið af frábærum boðumtil Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 Hnífaparatöskur – 12 manna 14 tegundirVerð frá kr. 24.990 MEN I GARNÓTTFIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 22 2 SÉRBLÖÐ Menningarnótt | Fólk Sími: 512 5000 22. ágúst 2013 196. tölublað 13. árgangur Byggðastofnun græðir Lán Byggðastofnunar upp á 1,3 milljarða króna er með veð sem varð verðlaust þegar úthafsrækjuveiðar voru gefnar frjálsar. Áform nýs ráð- herra um kvótaúthlutun glæða vonir um heimtur. 4 Ekki á borði lögreglu Lögreglan hefur ekki hafi sakamálarannsókn á meintu ofbeldi á 101 leikskóla. 2 Allt að því ósnertanlegir Dipló- matar lúta ekki íslenskri refsilöggjöf og ekki má stefna þeim nema í undantekningartilvikum. 6 Mistökum aldrei útrýmt Tekist hefur að fækka banaslysum verulega hér á landi. 12 SKOÐUN Reykjavíkurflugvöllur er enn í dag mikilvæg samgönguæð, skrifar Sigurjón Arnórsson. 23 MENNING Nýtt líf verður talsett að nýju í tilefni 30 ára frumsýningar- afmælis myndarinnar. 54 SPORT Sölvi Geir Ottesen er með túlk sem eltir hann eins og skugginn á æfingum með FC Ural í Rússlandi. 50 Borgarleikhúsblaðið er komið út! Opið til 21 Nú er opio allan sólarhringinn í Engihjalla FÓLK Ilmandi handklæði úr líf- rænni bómull frá íslenska hönn- unarmerkinu Scintilla komust í úrslit í keppni um bestu nýju vöruna á vöru- sýningunni New York Now. „Þetta er ein af stærstu vörusýningum heims fyrir heimilis- og gjafavörur. Um 2.800 vöru- merki taka þátt í sýningunni og allir helstu leikmenn í þessum bransa eru þarna. Mér skilst að um sjötíu merki hafi keppt í Best New Product Award að þessu sinni,“ segir Arna Sigrún Haraldsdóttir, framkvæmda- stjóri Scintilla. - sm / sjá síðu 54 Scintilla vegnar vel: Íslensk hand- klæði í 3. sæti ARNA SIGRÚN HARALDSDÓTTIR IÐNAÐUR „Þetta er gott vandamál,“ segir Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, um gríðar- lega aukningu í sölu á íslensku skyri annars staðar á Norður- löndum. Að sögn Einars eru nú framleiddar um 36 milljónir dósa af íslensku skyri árlega. Af þeim neyta Íslendingar um 11,5 milljón dósa. Yfir tveir þriðju hlutar af skyrinu séu borðaðir í hinum norrænu ríkjunum. „Við höfum 380 tonna tollfrjálsan kvóta inn í Evrópusambandið og erum löngu búnir að sprengja hann. Í Danmörku og í Noregi er því verið að framleiða skyr með leyfum frá okkur og undir eftirliti okkar,“ segir Einar og útskýrir að notaðir séu mjólkursýrugerlar sem MS hafi einkaleyfi á sem og upp- skriftir og vörumerki fyrirtækis- ins sem fái þóknun fyrir hverja dós. „Það vissulega hjálpar upp á sakirnar,“ segir hann um tekjurnar. Á Norðurlöndunum býst Einar við að á þessu ári verði seld á bilinu 4.300 til 4.500 tonn af íslensku skyri. Í Finn- landi hafi salan tvö- faldast frá í fyrra. „Þetta hefur vaxið svo hratt að það er farið að hrikta í fram- leiðslugetunni og við erum farin að skoða möguleika á að auka hana. Við munum leysa það vegna þess að við höldum að það verði áframhaldandi mjög góður vöxtur í skyrsölunni,“ segir Einar sem rekur aukna skyrneyslu ytra meðal annars til áhuga á Íslandi og breyt- inga á lífsstíl. „Fólk sækir meira í próteinríkar vörur á borð við skyr.“ Önnur mjólkurvörufyrirtæki sækja nú á sömu mið. „Við héldum fyrst að það myndi ganga á okkar markaðshlut- deild en sókn þeirra virðist bara stækka heildarmarkaðinn mjög hratt,“ segir Einar, sem hefur ekki áhyggjur af öðrum skyrtegundum. „Það eru til eftirlíkingar af skyri á Norðurlöndunum en engin af þeim hefur náð þessari fótfestu vegna þess að þær eru einfaldlega ekki eins vel þróuð og bragðgóð vara og íslenska skyrið,“ segir for- stjóri MS. - gar Frændþjóðir borða meira af íslensku skyri en Íslendingar Innan við þriðjungur af 36 milljón dósum sem framleiddar eru af íslensku skyri er borðaður á Íslandi. Geysileg aukning er í sölunni í öðrum norrænum ríkjum þar sem skyrið er framleitt með leyfi Mjólkursamsölunnar. Þetta hefur vaxið svo hratt að það er farið að hrikta í framleiðslu- getunni. Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar. SKÓLAR BYRJA Handagangur hefur verið í öskjunni í ritfangaverslunum síðustu daga áður en skólahald brestur á. Sjá mátti unga og aldna hjálpast að við að kaupa bækur og ýmis ritföng. Allnokkru getur munað á verði ritfanga. Sjá síðu 16 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bolungarvík 12° S 9 Akureyri 15° S 8 Egilsstaðir 16° S 7 Kirkjubæjarkl. 12° SA 7 Reykjavík 13° SA 10 GOTT NA-LANDS Í dag verður fremur stíf SA-átt og dálítil væta V-til en hægari suðlæg átt og bjart eystra. Austanátt með rigningu síðdegis S- og V-lands. 4 SÝRLAND Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna var kallað saman í gær- kvöldi vegna ásakana um að sýr- lenski stjórnarherinn hafi beitt efnavopnum í einu úthverfa höfuð- borgarinnar Damaskus í Sýrlandi í gærmorgun. Talið er að á bilinu fimm hundruð til þrettán hundruð manns, flestir óbreyttir borgarar, hafi fallið í árásunum. Meðal hinna látnu er fjöldi barna. Fram hefur komið fjöldi skelfilegra mynda og mynd- skeiða sem sýna látið og kvalið fólk. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, sagði í gær að ásakanirnar yrðu rannsakaðar í þaula, en Bretar og Frakkar sendu framkvæmdastjóranum bréf í gær þar sem rannsóknar var krafist. Eins krafðist utanríkisráðherra Breta, William Hague, að eftirlits- mönnum yrði hleypt að staðnum þar sem árásin átti að hafa átt sér stað. Reynist ásakanirnar sannar eru þetta alvarlegustu árásir á óbreytta borgara með efnavopnum síðan slíkum vopnum var beitt gegn kúrdískum borgurum í stjórnartíð Saddams Hussein árið 1988. Þá létust um fimm þúsund manns. - vg / sjá síðu 10 Öryggisráð kom saman vegna fregna af beitingu efnavopna í Sýrlandi: Funduðu um efnavopnaárás

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.