Fréttablaðið - 22.08.2013, Qupperneq 16
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Save the Children á Íslandi
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
Hallgrímskirkju í Reykjavík 16.–25. ágúst
Frá uppsprettum til himindjúpa
Ólafur Jóhann Ólafsson
Nánari upplýsingar á kirkjulistahatid.is
NÆSTU VIÐBURÐIR KIRKJULISTAHÁTÍÐAR:
FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST
Eyþór GunnarssonAri Bragi Kárason
Kvöld trompetanna
Hátíðarhljómar á Kirkjulistahátíð - Trompet og orgel
Verðlaunatrompetleikarinn Stephen Burns (Chicago), Douglas Cleve-
land orgel (Seattle) og ungstjarnan Baldvin Oddsson trompet.
Á efnisskránni er Telemann, Konsert fyrir tvo trompeta eftir Vivaldi o.fl.
Miðaverð: 3.000 kr. (Hálfvirði fyrir námsmenn).
Miðinn gildir einnig á tónleikana Hin hliðin sem hefjast kl. 22.00.
Kl. 20.00
Stephen Burns
Hin hliðin - Jazztónleikar
Ari Bragi Kárason (trompet) og Eyþór Gunnarsson (píanó) leiða saman
hesta sína. Tónleikarnir eru í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur.
Miðaverð: 2.000 kr. (Hálfvirði fyrir námsmenn).
Kl. 22.00
Miðasala í Hallgrímskirkju sími 510 1000 og á
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST
Nýjar víddir
orgelsins
Sjálfspilandi orgel?!
Framsæknir tónlistar- og myndlistarmenn frumflytja ný tónverk á
Klaisorgelið með tölvum sínum.
Tónleikastjóri: G. Vignir Karlsson (Kippi Kanínus)
Miðaverð: 2.500 kr. (1.000 kr. fyrir námsmenn)
Baldvin Oddsson
NEYTENDAMÁL Nú þegar skóla-
hald fer af stað gefa flestir
grunnskólar út innkaupalista
fyrir foreldra skólabarna. Mikill
verðmunur getur verið á því sem
kaupa þarf eftir því í hvaða skóla
barnið er.
Þannig gefa sumir skólar út
langa og ítarlega innkaupalista en
aðrir listar eru mjög einfaldir og
kveða einungis á um pennaveski
og einföld skriffæri. Í þeim tilfell-
um kaupa kennararnir stundum
inn fyrir börnin og foreldrarnir
greiða skólanum svo efnisgjald.
Á sumum listum má sjá hluti
eins og talnagrindur, sérstaka
teikniblýanta og reiknivélar fyrir
nemendur í fyrsta bekk.
Sem dæmi má nefna að inn-
kaupalisti Hólabrekkuskóla í
Breiðholti gerir ráð fyrir því
að nemendur kaupi talnagrind,
reiknivél, spilastokk og hvorki
meira né minna en sex stór lím-
stifti. Vörurnar á listanum kosta
13.072 krónur í vefverslun Heim-
kaupa.
Til samanburðar þarf að
greiða 4.884 krónur í vefverslun-
inni fyrir innkaupalista grunn-
skólans á Egilsstöðum og ekkert
efnisgjald er greitt í skólanum.
Munurinn hleypur því á rúmum
8.000 krónum.
Innt eftir því hvers vegna svo
mikill munur er á innkaupa-
listunum segir Hólmfríður G. Guð-
jónsdóttir, skólastjóri í Hólabrekku-
skóla: „Börnin eiga þetta oft mjög
lengi. Þetta fylgir þeim oft í mörg
ár, til dæmis talnagrindin.“
Hún segir börnin kaupa mikið
af lími vegna þess að þau föndra
mikið til að byrja með.
„Það er mjög mikil sköpun
í byrjendalæsi hjá okkur sem
skýrir þörfina fyrir föndur-
vörur og margt af því sem er á
listanum er eitthvað sem er til á
flestum heimilum fyrir, til dæmis
vatnsbrúsi, spilastokkur og
vasareiknir. Þetta er svona start-
pakki fyrir skólann hjá þeim,“
segir Hólmfríður G. Guðjóns-
dóttir. johanness@frettabladid.is
Mikill verðmunur er
á innkaupalistum
Mörgum þúsundum getur munað á því sem nemendum í yngstu bekkjum er gert
að kaupa inn fyrir skólaárið. Innkaupalistar frá sumum skólum eru ítarlegir og
gera kröfur um að keypt séu sérstök áhöld en aðrir gera einfaldari kröfur.
RITFANGAVERSLANIR Fólk flykkist nú í ritfangaverslanir til að búa sig og sína undir skólann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þeir sem ekki vilja lenda í ösinni í
ritfangaverslunum á þessum árs-
tíma geta nú fengið ýmis ritföng
send heim að dyrum hjá netversl-
uninni Heimkaup.
Verslunin býður upp á þá nýjung
á heimasíðunni að hægt er að velja
skóla barns og verslunin tekur
saman allar vörur á listanum
og reiknar heildarverð hans.
Vörurnar eru síðan sendar heim
án endurgjalds, samdægurs á
höfuðborgar svæðinu en að tveimur
dögum liðnum á landsbyggðinni. - js
Nýjung í ritfangaverslun:
Heimakærir
þurfa ekki út
Samkvæmt verðlagskönnun ASÍ er allt að 57% verðmunur á nýjum
skólabókum í skólabókaverslunum.
Forlagið og A4 voru oftast með lægsta verðið á nýjum bókum en níu
titlar af 32 voru ódýrastir hjá þeim. Griffill kom þar á eftir með lægsta
verðið á sjö titlum og Bóksala stúdenta á sex. Bókabúðin IÐNÚ var oftast
með hæsta verðið á nýjum bókum eða á sautján titlum af 32, Bóksala
stúdenta á sex og Eymundsson á fimm.
57% verðmunur á skólabókum
FYRSTU SKÓLADAGARNIR FARA Í HÖND Allmiklu getur munað á verði námsgagna
sem gert er ráð fyrir að grunnskólabörn mæti með í skólann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nú styttist í að skólar landsins hefji göngu sína
á ný eftir sumarfrí og eflaust margir farnir að
huga að skólaundirbúningi. Þegar skólataska er
keypt er nauðsynlegt að vera með rétta stærð af
tösku og stilla hana rétt. Ekki er ráðlegt að barn
beri meira en 15% af eigin þyngd í skólatösk-
unni og gott er að muna að þyngstu bækurnar í
töskunni eiga að hvíla sem næst baki barnsins.
Fjölmörg börn hefja nú sinn fyrsta vetur í
grunnskóla og er vert fyrir foreldra að huga að
öryggi barna sinna í umferðinni. Ráðlagt er að
foreldrar gangi með börnum sínum frá heim-
ilinu öruggustu leiðina að skólanum. Þegar
dimma tekur er nauðsynlegt að börnin séu
sýnileg ökumönnum í umferðinni og þarf því að
ganga úr skugga um að endurskinsmerki séu til
staðar á útifatnaði og á skólatöskunni. Einnig
þurfa foreldrar að fara yfir umferðar reglurnar
með börnum sínum og benda þeim á hvar sé
leyfilegt að ganga yfir götur.
Hinn 1. september breytast reglur um
útivistar tíma barna og unglinga. Börn 12 ára
og yngri mega þá ekki vera lengur úti en til
klukkan 20 nema í fylgd með fullorðnum. Börn
á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera lengur
úti en til klukkan 22 nema þau séu á heimferð
frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðs-
samkomu. - ka
Nýtt skólaár er fram undan og vert að fara yfir nokkur atriði sem eru gagnleg foreldrum skólabarna:
Útivistartíminn og umferðarreglurnar
KRAKKAR Í HLÍÐASKÓLA Ekki er ráðlegt að barn
beri meira en 15% af eigin þyngd í skólatöskunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA