Fréttablaðið - 22.08.2013, Page 18

Fréttablaðið - 22.08.2013, Page 18
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18 Tryggingamiðstöðin hf. (TM) hefur verið valið fyrir- myndarfyrirtæki í endurnýtingu á smáraftækjum. Græn framtíð, sem sérhæfir sig í endurnýtingu á gömlum og gölluðum smáraftækjum, veitti fyrir- tækinu viðurkenningu í gær fyrir umhverfisvæna starfshætti með því að fylgja eftir réttum ferlum við meðhöndlun á búnaði. „TM fær mikið magn af rafeindabúnaði, eins og farsímum og fartölvum, vegna tjónamála. Allur slíkur búnaður er endurnýttur í samstarfi við Græna framtíð,“ segir Kjartan Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri tjónaþjónustu TM. Kjartan bætir við að mikil- vægt sé fyrir umhverfið að gefa raftækjunum nýtt líf. Bjartmar Alexandersson, framkvæmdastjóri Grænnar framtíðar, segir að viðskiptavinir TM geti verið öruggir um að gögn þeirra séu í traustum höndum. „Því miður getur átt sér stað að raftæki ein- staklinga lendi í höndum aðila sem ekki virða reglur um gagnaöryggi. Af þeim sökum er afar mikilvægt að tryggingafélög búi yfir réttum ferlum við með- höndlun á rafbúnaði vegna tjónamála. Það er okkur því gleðiefni að útnefna TM fyrirmyndarfyrirtæki í endurnýtingu á smáraftækjum árið 2013.“ - le Tryggingamiðstöðin fær viðurkenningu í endurnýtingu á smáraftækum: TM endurnýtir rafeindabúnað GEFA RAFTÆKJUM NÝTT LÍF Kjartan Vilhjálmsson og Ólafur Haukur Ólafsson taka við viðurkenningu frá Bjartmari Alexanderssyni. MYND/TM „Tónninn er ekki eins harður og við höfðum gert ráð fyrir og ég hélt að nefndin myndi koma með meiri sýn á það hver stefna þeirra verður með haustinu. Við veltum því fyrir okkur hvort sú leikáætlun sem lagt var af stað með í vor sé að virka sem skyldi,“ segir Ásdís Kristjáns dóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka, um þá ákvörðun Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ásdís segir að Seðlabankanum hafi ekki tekist að endurheimta þann gjaldeyri sem nýttur hefur verið til að styðja við krónuna. Þá hafi horfurnar ekki skánað úti í heimi og viðskiptakjör séu að versna enn frekar, þannig að útlitið sé ekki gott. Hún telur erfiða kjara- samninga fram undan. „Við teljum að peningastefnunefndin hefði mátt vera skýrari um hvers megi vænta ef við sjáum hér óhóflegar launahækkanir í vetur,“ bætir Ásdís við. Seðlabanki Íslands til- kynnti í gær að vöxtum bankans yrði ekki breytt þrátt fyrir svarta verðbólguspá. Greiningaraðilar undrast mildi yfirlýsingarinnar og segjast hafa búist við harðari viðbrögðum við lakari verðbólguvæntingum og versnandi horfum. „Mér þykir undarlegt af hverju þeir gefa ekki meira undir fótinn með hækkun á stýrivöxtum á næstunni til þess að ná þessum væntingum niður og þannig lenda málinu á skyn- samlegum nótum,“ segir Ingólfur Bender, yfirmaður Greiningar Íslandsbanka. „Mér þykir bankinn taka á versnandi verðbólguhorfum með linkind.“ Bæði greiningardeild Íslands- banka og greiningardeild Arion banka spá því að verðbólgan verði komin yfir fjögur prósent með haustinu, en það er yfir svokölluðum vikmörkum Seðla- bankans um verðbólgumarkmið. Seðlabankinn er ekki jafn svart- sýnn í verbólguspá sinni. Fram kemur í yfirlýsingu peningastefnu- nefndar að verðbólga muni aukast lítillega á seinni hluta ársins og hjaðna á ný í átt að markmiði í byrjun næsta árs. Arnór Sighvatsson aðstoðar- seðlabankastjóri sagði að bankinn þyrfti að horfa á verðbólgu þróun til lengri tíma og að ekki væri hægt að bregðast við launaþróun fyrir fram. Ingólfur Bender bendir þó á að aðilar vinnumarkaðarins miði sínar kröfur við verðbólgu- væntingar og því þurfi einmitt að bregðast við aukinni verð- bólgu áður en gengið er til kjara- samninga. „Ef maður les í orð og aðgerðir bankans virðast þeir ekki vera að bregðast við slæmum horfum.“ lovisa@frettabladid.is Seðlabanki sagður linur í verðbólguslag Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum. Greiningar- deildir viðskiptabankanna undrast að ekki séu áform um að hækka stýrivexti miðað við svarta verðbólguspá. Greiningardeildirnar spá yfir 4% verðbólgu. INGÓLFUR BENDER ÁSDÍS KRIST- JÁNSDÓTTIR ÁKVÖRÐUN KYNNT Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans og Arnór Sig- hvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynntu vaxtaákvörðun bankans í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Íslenska fyrirtækið Creditinfo stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um áhættustjórnun í Prag í Tékklandi nú í september. „Kjarninn í ráðstefnunni er fyrst og fremst að fá færustu aðila í áhættustjórnun viðskipta til að miðla þekkingu sinni og reynslu, til þess að lönd sem hafa minni þekkingu geti tekið ákvarðanir sem eru byggðar á upplýsingum og þekkingu,“ segir Samúel White, sér- fræðingur á viðskiptaþróunarsviði hjá Creditinfo. Ráðstefnan er meðal annars h u g s u ð t i l þess að auka þ ek k i n g u í þróunarríkjum. „Þessi vanþróaðri markaður, eins og í Afríku, er nú að koma sér upp fjárhagsupplýsingakerfum til þess að geta tryggt heilbrigt viðskiptalíf.“ Creditinfo opnaði nýlega skrif- stofu í Tansaníu og bendir Samúel á að meiri þekking í vanþróaðri ríkj- um auki hagvöxt til langs tíma og að mikilvægt sé að auðvelda fyrirtækj- um þar að verða sér úti um lánsfjár- magn á viðráðanlegum kjörum. Reynir Grétarsson, stjórnar- formaður Creditinfo, segir upplýsingar grundvallaratriði í nútímaefnahagslífi. Þær eigi að nýta til að auðvelda stjórnendum og starfsfólki fyrirtækja að taka upp- lýstar ákvarðanir. - le Ráðstefna um áhættustjórnun til þess að styrkja í fjármálakerfi heimsins: Creditinfo upplýsir þróunarlöndin REYNIR GRÉTARSSON RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 7 5 3 * E yð s la á 1 0 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK. Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands / Egilsst. / 470 5070 IB ehf. / Selfossi / 480 8080

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.