Fréttablaðið - 22.08.2013, Qupperneq 26
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
AF NETINU
Málefni vetrarins
Nú stefnir í að heill vetur, eða fleiri, fari í það að ræða um hvort Ísland
eigi í alvörunni að kasta verðtryggingunni í sjóinn. ASÍ, Samfylkingin
og Sighvatur munu öskra að hér muni allt hrynja og munu nota sömu
aðferðir og LÍÚ notaði á síðasta kjörtímabili– dómsdagsspár. [...] Nú
stefnir í að heill vetur, eða fleiri, fari í það að hrækjast á um að tillögur
um skuldaleiðréttingar sem þá verða fram komnar séu mjög heimsku-
legar og verði á endanum greiddar af ríkissjóði, og nýjir brandarar um
kattasmölun í þingflokki sjálfstæðismanna munu líta dagsins ljós.
http://einar.eyjan.is
Einar Ben Þorsteinsson
Fjármálaráðherra, Bjarni
Benediktsson.
Ég neyddist til að
segja mig úr Sjálfstæðis-
flokknum eftir landsfund
hans 2009. Ástæðan var
hvernig sá landsfundur
afgreiddi Evrópumálin.
Og það fóru fleiri en ég,
enda fækkaði nokkuð í
þingflokknum eftir næstu
kosningar.
Þrátt fyrir úrsögn mína
hef ég horft mjög til flokks-
ins, því mörg af skoðanasystkinum
mínum fylgja honum enn af svo
stakri tryggð að ég hef ekki gefið
upp vonina um að raunhæf Evrópu-
stefna gæti komið úr þeirri átt.
Íslensk stjórnmál standa nú á
vegamótum. Stjórnarsáttmálinn
geymir ákveðna ferðaáætlun
um hvert skuli halda frá þessum
krossgötum. Þar er nefnt að fara í
þjóðaratkvæðagreiðslu um fram-
hald viðræðna við ESB. Á fundi í
aðdraganda kosninganna í vor og
í viðtali við Fréttablaðið 24. apríl
sl. sagðir þú orðrétt: „Við höfum
haft það sem hluta af okkar stefnu
að opna fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslu til að útkljá þetta mál og
við munum standa við það.“
Út á þetta greiddu margir
Evrópusinnar flokknum atkvæði
sitt, því engum hefur hingað til
dottið í hug að Bjarni Benedikts-
son stæði ekki við orð sín. Fréttir
síðustu daga, sem ég hef bæði úr
Fréttablaðinu og mbl.is, segja mér
að bæði þingflokksformaður þinn og
fleiri úr þingliðinu hafa talið þetta
vera kosningaloforð og aldrei dottið
í hug að ekki yrði staðið við það.
En nú koma framsóknarmenn
aftan að ykkur með óvæntar yfir-
lýsingar og nánast ódrengilegar.
Það verður engin þjóðaratkvæða-
greiðsla. Menn hafa beðið við-
bragða þinna. Samkvæmt frétta-
miðlum eru þau svo loðin að vart
er hægt að finna þar neitt sem
treystandi er á. Þú stendur þar ekki
við þín fyrri orð. Í mínum huga
hopar þú á hæli og hugsar meira
um að verja völd en hugsjónir.
Þú segir að ekki liggi
fyrir nein ákvörðun um hvenær
eða hvort þjóðaratkvæðagreiðsla
verði haldin. Staðreyndin er þó
að utanríkisráðherrann lýsir því
skýrlega yfir að það verði ekki
gert. Dettur þér virkilega í hug að
nokkur maður trúi því að skýrsla,
sem þú nefnir og hann lætur taka
saman fyrir Alþingi, geti leitt
til þess að ákvörðun um þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem Framsóknar-
flokkurinn er á móti, fáist rædd af
einhverju viti?
Þú telur orð þín ekki svik við þá
sjálfstæðismenn sem styðja áfram-
haldandi viðræður við ESB. Ég held
að margir í þeirra hópi séu ekki
sammála því áliti og sjái að þarna
ætli Framsókn að ráða og núverandi
forysta Sjálfstæðisflokksins sé ekki
líkleg til að breyta því.
En hvers vegna þjóðaratkvæða-
greiðslu? Enginn okkar getur vitað
hvort hann vill að þjóð okkar gangi
inn í Evrópusambandið fyrr en
hann hefur séð samning um þau
mál og þar með sannfært sjálfan
sig um að hann sé þjóðinni ávinn-
ingur, geri hana sterkari á hálu
svelli heimsmála.
Þetta tækifæri virðast fram-
sóknar menn nú vilja taka af þjóð-
inni. Það væri aðför að frjálsri
hugsun, sem ég hélt að Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi verja. Þú hefur lof-
orð að efna, sem hlýtur að knýja þig
til átaka um þetta mál. Það varðar
sóma þinn. Við Evrópusinnar
væntum þess að þú sýnir í þessu
máli, og ætíð, í senn þor hugsjóna-
mannsins og þrótt hins drenglynda
og hugumstóra baráttumanns.
Opið bréf til
formanns Sjálf-
stæðisfl okksins
EVRÓPUMÁL
Þórir Stephensen
fv. dómkirkju-
prestur og staða-
haldari í Viðey
➜ Út á þetta greiddu
margir Evrópusinnar
fl okknum atkvæði
sitt, því engum hefur
hingað til dottið í hug
að Bjarni Benedikts-
son stæði ekki við
orð sín.
Eins og sést á myndum
sem hafa verið birtar að
undanförnu af fossinum
Dynk í Þjórsá hefur
vatnsrennsli verið skert
mikið eða um 40% með
tilkomu Kvíslaveitu.
L ít ið þarf t i l að
gera vegslóð að þessu
höfuðdjásni Þjórsárfossa
þannig að sem flestir
gætu notið og vel mætti
hugsa sér gönguleiðir
upp og niður með ánni til að skoða
aðra fossa á þessu svæði. Sumir
segja Dynk með náttúrulegu
vatnsrennsli ekki síðri en Gull-
foss og í raun furðuleg ákvörðun
að hafa leyft þessa skerðingu á
fossinum á sínum tíma. Sennilega
gert í skjóli þess hvað fáir höfðu
séð hann.
Hvort er nú meira virði að
slátra þessu alveg eins og nú er
áformað, eða að fara að ráðum
Ómars Ragnarssonar og snúa
til baka með því að auka vatns-
rennslið þótt það gæti kostað
einhverjar kílóvattstundir?
Í þessu samhengi verður mér
hugsað til allra fossanna í Jökulsá
í Fljótsdal sem nú eru komnir í
lokuð göng. Já, það var sorglegt
hlutskipti að horfa upp á það sem
gerðist fyrir austan, rétt eins og
um náttúruhamfarir hafi verið
að ræða en ekki mannanna verk
sem hægt hefði verið að koma í
veg fyrir. Hefði fólk verið betur
upplýst og fengið tækifæri til að
njóta þess sem þarna var fórnað
áður en til framkvæmda kom er
ég viss um að þetta hefði aldrei
orðið.
Um aðgengi lít ég til
þess undraheims sem
opnaðist við að brúa
Jökulsá á Fjöllum og
Kreppu á sínum tíma.
Það hefði kostað lítið að
gera eitthvað svipað fyrir
austan, t.d. að lagfæra
vegslóðir og brúa Jöklu
og Jökulsá í Fljótsdal inni
á hálendinu þannig að fólk
hefði með eigin augum
getað áttað sig á þeim
náttúruauðæfum sem nú hefur
verið drekkt eða skrúfað fyrir.
Það var svo sannarlega þess
virði að ganga nokkrum sinnum
með Jökulsá í Fljótsdal þótt
sú ganga hafi verið tregafull
vitandi hvaða örlög biðu allra
fallegu fossanna. Minnisstæðir
eru Ufsarfoss, Hrakstrandar-
foss, Tungufoss, Kirkjufoss, Faxi,
Stóralækjarfoss, Raufarfoss og
Stíflufoss, hver með sitt svip-
mót umvafðir gróðri og fallegum
bergmyndunum með Snæfell í
baksýn.
Hið sama má segja um Kelduá,
sem fáir virðast hafa heyrt
nefnda. Þar var fórnað ekki
síður fallegum fossum sem ég
kann ekki nöfn á nema á hinum
einstaka Brúðarfossi. Meðfram
ánni var mikið lífríki, fallegar
eyrarrósabreiður, birki og fjöldi
smáplantna sem ekki þrífast án
árinnar. Þessari fegurð sem var
við hvert fótmál var því slátrað
líka.
Um ýmsar framkvæmdir á
landi hér hefur ríkt nokkuð góð
sátt, en ömurlegt er til þess
að vita að kjörnir fulltrúar
með stóriðjublindu hafi orðið
þess valdandi að um einstök
náttúru fyrirbæri verði aðeins
til sorglegar minningargreinar
þegar fram líða stundir. Við
sem svo auðveldlega gætum
verið sjálfum okkur nóg með
rafmagn án svona fórna og haft
unað og raunverulegar tekjur
til framtíðar af náttúrugæðum.
Ekki amalegt fyrir stóriðjusinna
að hafa nú fengið til liðs við sig
iðnaðar- og umhverfisráðherra,
ungt og kraftmikið fólk með
gamaldags hugmyndir til að við-
halda vitleysisganginum!
Þetta var um fossa og enn
frekari áform um að fækka þeim
með aðför að rammaáætlun, en
það er svo miklu, miklu meira
sem okkur hefur verið trúað fyrir
og er í stórhættu fyrir fólki sem
misskilur hlutverk sitt. Við höfum
vélarnar, tæknina og mennina til
að umturna Íslandi. Nýtum þá
krafta frekar til góðra verka og
gleymum ekki að á umliðnum
árum hefur tekist að bjarga
ýmsu frá voðaverkum. Betur má
þó ef duga skal til að opna augu
skammsýnna manna.
Snúum vörn í sókn
NÁTTÚRUVERND
Snorri
Sigurjónsson
lögreglufulltrúi
➜ Sumir segja Dynk með
náttúrulegu vatnsrennsli
ekki síðri en Gullfoss og í
raun furðuleg ákvörðun að
hafa leyft þessa skerðingu
á fossinum á sínum tíma.
Sennilega gert í skjóli þess
hvað fáir höfðu séð hann.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
TIL LEIGU
Helgi Már Karlsson
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1024 / 897 7086
hmk@jofur.is
Skútuvogur 3, 104 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
3. hæð, 287 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Húsnæði skiptist í móttöku, stórt opið rými, 4 lokaðar skrifstofur, stórt fundarherbergi með skjávarpa
og hljómflutningstækjum, wc og skjalageymslu. Skrifborð og skilrúm geta fylgt. Aðgengi er mögulegt
að lagerþjónustu í sama húsi. Aðkoma að húsnæðinu er frá Barkarvogi. Laust strax!
NÝTT FRÁ ÍTALÍU Í BETRA BAK
Tekur sáralítið pláss þegar hann er ekki í notkun
Pop-up svefnsófiQuatro svefnsófi með vandaðri pokagormadýnu
Kr. 92.650
Fullt verð 109.000
Fæst dökkgrár,
rauður, lillblár
og grænn.
Dýnustærð:
140x200 cm.
Afsláttur
15%
Afsláttur
15%
Kr. 264.415 Fullt verð 289.900