Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 50
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34 Svar við bréfi Helgu, eftir Berg- svein Birgisson, kemur út í Frakklandi í dag. Franskir útgefendur dreifa bókinni til bóksala, gagnrýn- enda og annarra bókmenntarýna mánuðum fyrir útgáfu. Viðbrögð- in við bók Bergsveins hafa ekki látið á sér standa, en útgefendur eru þegar farnir að huga að end- urprentun. „Þetta fyrsta upplag af bók- inni, sem kom út í dag, er þrett- án þúsund eintök,“ segir Guðrún Vilmundardóttir, hjá bókaforlag- inu Bjarti sem gefur Bergsvein út á Íslandi. „Það er gífurlega stórt upplag á þýddri skáldsögu, sem ekki er reyfari,“ segir Guðrún jafnframt. „Þetta er vonum framar,“ bætir hún við. Bók Bergsveins hefur þegar vakið mikla athygli, þótt útgáfu- dagurinn sé í dag, og að sögn Guðrúnar hafa tilboð frá bóka- klúbbum, hljóðbókaklúbbum og kiljuútgefendum þegar borist. „Forleggjararnir hjá Zulma segjast ekki hafa kynnst slíkri stemningu í kringum væntanlega bók,“ segir Guðrún. Útgefandi bókarinnar er bóka- forlagið Zulma, sem er einnig útgefandi Auðar Övu sem hefur vegnað vel í Frakklandi með Afleggjarann og nú síðast Rign- ingu í nóvember. Undantekningin eftir Auði Övu er væntanleg síðar á árinu. - ósk Ekki kynnst slíkri stemningu fyrr Svar við bréfi Helgu, eft ir Bergsvein Birgisson, kemur út í þrettán þúsund ein- tökum í Frakklandi í dag og útgefendur þar í landi huga þegar að endurprentun. VINSÆLL Í FRAKKLANDI Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson hefur þegar fengið góðar móttökur í Frakklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Tónlistarvefritið straum.is er eins árs, eins mánaðar og eins dags í dag. Í tilefni af því verður efnt til veislu á skemmtistaðnum Harlem í kvöld. Kammerpoppsveitin Útidúr og tilraunabandið Just Another Snake Cult munu koma fram en báðar komu við sögu á árslista vefritsins fyrir síðasta ár. Ritstjórnarfulltrúar straum.is munu þeyta skífum eftir tónleikana. Hátíðarhöldin hefjast klukkan níu. Undanfarið ár hefur straum.is haldið úti reglulegri umfjöllun um nýja og ferska tónlist, íslenska sem erlenda, og hefur í því skyni birt yfir fjögur hundruð fréttir á vefnum. - ósk Tónlistarveisla í kvöld Straum.is heldur upp á afmæli sitt á Harlem í kvöld. DAVÍÐ ROACH OG ÓLI DÓRI eru ritstjórar veftímaritsins straum.is . MYND/NANNADÍS ➜ Bergsveinn var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverð- launanna fyrir bókina. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 22. ÁGÚST 2013 Fræðsla 20.00 Fyrirlestur um sýningu Hugins Arasonar og Andreu Maack, Kaflaskipti, fer fram í kvöld. Innsetningin er í formi sýningarsalar sem á að varpa ljósi á ákveðið tímabil. Sýningin hverfist um ilm sem ætlað er að fanga kjarna listasafns fjarlægrar framtíðar. 20.00 Grasagarðurinn, Skógræktarfélag Reykjavíkur og Borgargarðar í Laugardal standa fyrir göngu þar sem ræktunar- saga Laugardalsins verður kynnt og trén og annar gróður skoðaður. Um leiðsögn sjá þeir Gústaf Jarl Viðarsson, skóg- fræðingur, og Hannes Þór Hafsteinsson, náttúrufræðingur. Gangan hefst við aðalinnganginn. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is „Það er heiður fyrir Gallerí i8 að vera valið inn á Chart,“ segir Þor- lákur Einarsson, starfsmaður í Gall- eríi i8 við Tryggvagötu. Gallerí i8 valdi tvo listamenn á sínum vegum til þess að sýna verk sín á listamessunni Chart, sem hald- in verður í fyrsta sinn í lok ágúst- mánaðar í Kaupmannahöfn. „Við ákváðum að láta Ragnar Kjartansson sýna. Hans verk verða til sýnis á okkar bás á messunni en svo fáum við sýningarpláss á öðru svæði þar sem við ætlum að setja upp stóra innsetningu á verki Ólafs Elíassonar frá árinu 2009 í sam- starfi við Andersen‘s Contempor- ary í Kaupmannahöfn,“ bætir Þor- lákur við. Hingað til hefur fókus i8 á Norð- urlöndum verið á listamessunni Market í Stokkhólmi. „Chart er dálítil tilraun, eðli máls- ins samkvæmt, þar sem þetta er í fyrsta sinn sem listamessa, sem leggur áherslu á nútíma- list, er haldin í Kaupmannahöfn. Það er skemmtilegt í ljósi þess að myndlistarsenan þar í borg er mjög sterk,“ segir Þorlákur. „Þótt hún sé það reyndar líka í Stokkhólmi,“ bætir hann við. „Það er von margra að Chart sé upphafið að einhverju meiru og stærra,“ segir Þorlákur að lokum. - ósk Íslenskir myndlistarmenn á Chart Ragnar Kjartansson og Ólafur Elíasson sýna á nýrri listamessu í Danmörku. RAGNAR KJARTANSSON Hefur átt mikilli velgengni að fagna undan- farin misseri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ➜ Ragnar er yngsti listamaður sem Íslendingar hafa valið á Feyneyjatvíæringinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.