Fréttablaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 34
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Hin Grundvallarspurningin í siðfræði Aristótelesar frá því á fjórðu öld fyrir Krist er spurningin um hvernig unnt er að lifa góðu og farsælu lífi eða að vera hamingjusöm manneskja – milljón dollara spurningin enn þann dag í dag – ekki satt? Hamingjan er tilgangurinn Að mati Aristótelesar er tilgangur lífsins að öðlast farsæld sem getur í nútímanum útlagst sem hamingja. Hann var einnig sannfærður um að til að uppfylla tilganginn og öðlast hamingjuna þyrfti manneskja að koma sér upp góðu safni dygða. Að vera hamingjusöm manneskja er því fólgið í því að vera dygðug mann- eskja, að mati Aristótelesar. Dygð getur verið góð venja Hvað í ósköpunum á Aristóteles við með dygð og hvað þýðir að vera dygðug manneskja – hvernig getum við nýtt okkur þessa ævafornu nálgun Aristótelesar til að öðlast lífs- hamingju í nútímanum? Þegar Aristóteles var spurður að þessu svaraði hann því til að dygðir væru einfaldlega athafnir dygðugrar manneskju, dygðir eru það sem dygðug manneskja gerir, venjur hennar og viðbrögð. Til að öðlast hamingju þyrfti viðkomandi því að temja sér hætti dygðugrar mann- eskju og taka upp háttalag hennar og venjur. Einföldum málið Til að einfalda málið fyrir okkur nútímamanneskjum og um leið nýta okkur þessa fornu speki má líta svo á að dygðir séu einfaldlega góðar venjur sem við tileinkum okkur og birtast í fari okkar alla daga. Venjur sem þegar eru orðnar hluti af okkur og gefa lífi okkar merkingu og til- gang. Gott venjusafn Þar sem Aristóteles segir að dygðir séu forsenda hamingjunnar má halda því fram að góðar venjur séu forsenda hamingjunnar sem mörgum er svo vandfundin. Gott venjusafn (portfolio) er því meira virði en flest önnur eignasöfn sem skína þó töluvert skærar! Eitt ráð í forgjöf: Það tekur 21 dag að festa í sessi góða venju! (Dygð er ritháttur tengdur dygðasiðfræði Aristótelesar) Lykillinn að hamingjunni MARTHA ÁRNADÓTTIR. FRAMKVÆMDASTJÓRI DOKKUNNAR hliðin Save the Children á Íslandi Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is USD 113,27 GBP 189,09 DKK 20,84 EUR 155,48 NOK 18,67 SEK 17,44 CHF 127,22 JPY 1,11 Gengi gjaldmiðla

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.