Fréttablaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2014 | FRÉTTIR | 11 Löður er með á allan bílinn Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540 Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti ÚKRAÍNA, AP Hörð átök brutust út milli mótmælenda og lögreglu í Kænugarði í gær. Lögreglan beitti bæði gúmmíkúlum og rafstuð- byssum gegn þúsundum manna sem reyndu að komast inn í þing- húsið. Átökin þar kostuðu að minnsta kosti þrjá mótmælendur lífið. Að auki kostuðu átök við skrifstofur stjórnarflokksins einn mann lífið, þegar mótmælendur og lögregla tókust þar á. Tugir lögreglumanna og á annað hundrað mótmælenda eru særðir. Tiltölulega rólegt hafði verið í borginni síðustu daga, þótt mót- mælendur hafi haldið sig úti á götum og haft nokkrar opinberar byggingar á valdi sínu. Á mánudag yfirgáfu mótmæl- endur síðan opinberar bygging- ar, bæði í Kænugarði og víðar um land, en í staðinn féllust stjórnvöld á allsherjar sakaruppgjöf. Vítalí Klitsjkó, einn af helstu leiðtogum mótmælenda, sagði þol- inmæði þeirra hins vegar á þrot- um í gær. Viktor Janúkovítsj for- sætisráðherra þyrfti að fallast á breytingar á stjórnskipan lands- ins og segja af sér án tafar. „Við erum að tala um mínútur, ekki klukkustundir,“ sagði Klitsjkó við fjölmiðla. Lögreglan sagði á móti að mót- mælendur fengju fárra klukku- stunda frest til að hætta átökum. Að öðrum kosti myndu stjórnvöld sjá til þess að koma á reglu í borg- inni á ný. Olena Lúkasj dómsmálaráð- herra, náinn samstarfsmaður Janúkovítsj forseta, sakaði mót- mælendur um að hafa rofið sam- komulag við stjórnvöld. Leiðtogar mótmælenda voru sagðir bera alla ábyrgð á átökunum. Óttast var að átökin myndu harðna um allan helming þegar líða tæki á kvöldið og nóttina. Mótmælendur vilja bæði afsögn forsætisráðherrans og afturhvarf til stjórnarskrárinnar frá 2004, sem breytt var árið 2010 til að gefa forseta landsins meiri völd. Ásakanir hafa gengið á víxl milli Evrópusambandsins og Rúss- lands. Hvorir tveggja saka hina um afskipti af ástandinu, sem hafi gert illt verra. Rússneska utanríkisráðuneyt- ið sagði í gær að þessi nýja hrina ofbeldis væri bein afleiðing af því að vestrænir stjórnmálamenn og evrópskar stofnanir hefðu lokað augum sínum fyrir árásum rót- tækra afla í Úkraínu. gudsteinn@frettabladid.is Þúsundir réðust til atlögu gegn þinginu Enn á ný sauð upp úr á milli mótmælenda og lögreglu í Kænugarði í gær. Undir kvöld höfðu átökin kostað að minnsta kosti fjóra lífið. Vítalí Klitsjkó sagði þolin- mæði mótmælenda á þrotum: Janúkovítsj forseti yrði að segja af sér strax. ÁTÖK Í ÚKRAÍNU Mótmælendur settu forseta úrslitafrest, en lögregla setti mót- mælendum úrslitafrest á móti. NORDICPHOTOS/AFP ADDIS ABBABA, AP Eþíópíski flug- ræninginn, sem lenti vél á leið til Rómar í Genf, missti frænda sinn nýlega. Þetta kemur fram í viðtölum við fjölskyldu hans. Annar frændi hans segir að flugræninginn, sem heitir Hailemedhin Abera, hafi verið í miklu tilfinningalegu upp- námi eftir dauða frændans fyrir rúmum mánuði. Hailemedhin var að sögn vanur því að hringja í fjölskyldumeðlimi áður en hann fór í flug, en eftir að frændi hans dó hætti hann því og fjarlægðist fjölskylduna. - ue Eþíópískur flugræningi reyndist vera í uppnámi: Syrgði látinn ættingja FLUGRÁN AÐ BAKI Lögreglumenn leiða farþega frá borði. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.