Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 2

Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 2
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜18 HELGIN 20➜48 SPORT 68 MENNING 58➜60 FIMM Í FRÉTTUM UPPSAGNIR Á RÚV OG STAR WARS TIL ÍSLANDS SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Falleg hjólhýsi KLASSÍSKUR RISASLAGUR Á SPÁNI 68 Nær Barcelona að stöðva sigurgöngu Real Madrid? HRAFN TEKUR VIÐ STJÖRNUNNI 68 Eft irmaður Teits Örlygssonar er fundinn. SKAPBÆTANDI TÓNLIST 58 Jónas Sen skrifar um Mozart-tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands. HANS OG GRÉTA Í KÓPAVOGI 58 Óp-hópurinn setur upp óperu í Salnum. SPILAR Í NEW YORK OG WASHINGTON 59 Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir í stuttu stoppi á Íslandi. SIGURVEGARAR HLUST- ENDAVERÐLAUNANNA 62 Kaleo var meðal þeirra sveita sem fóru heim með verðlaun í gær- kvöldi. GETUR FÓLK FEST Í SAM- FÖRUM? 65 Kynfræðingurinn Sigga Dögg svarar spurningum lesenda. SIGURVEGARI LJÓÐLYMPÍU- LEIKANNA 74 Vígdís Ósk Howser er ljóðaslammari sem rappar og vinnur í harðfiski á daginn. LÍFIÐ 62➜74 KLASSÍSKA FLÍKIN 32 Hvíta skyrtan er ómissandi í fataskápinn og passar við allt. KAFFIBOLLASPJALL 36 Mæðgin hittast á hverjum degi yfir einum kaffibolla. BAKAR OG SYNGUR 42 Söngkonan Greta Mjöll Samúelsdóttir í yfirheyrslunni. Á KVIKMYNDAHÁTÍÐ 46 Bekkjarfélagarnir Birgir, Úlfur og Bjartur í spjalli á krakkasíðunni. STÆRSTI SKAÐINN 16 Þorsteinn Pálsson um fj ármagnshöft . ÁRANGURSTENGDAR GREIÐSLUR TIL KENNARA ERU TÍMASKEKKJA 18 Anna Kristín Sigurðardóttir um launapotta kennara. EKKI FLÓKIÐ VERKEFNI 18 Ari Trausti Guðmundsson um reglur fyrir forsetann. MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON Nýr útvarpsstjóri sagði öllum framkvæmdastjórum RÚV upp með það að markmiði að hag- ræða og jafna kynjahlutföll. Fréttastjóri RÚV, Óðinn Jóns- son, var einn þeirra sem sagt var upp. AÐALHEIÐUR STEINGRÍMS- DÓTTIR , hjá Félagi fram- haldsskólakennara, stendur í ströngum kjaraviðræðum en verkfall hefur staðið yfir síðan á mánudag. Lausn á deilunni er ekki í sjónmáli. SIGURÐUR INGI JÓHANNS- SON gegndi stöðu forsætis-, fjármála-, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra í vikunni vegna utanlandsferða Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar og Bjarna Benediktssonar. PATTI SMITH tónlistarkona kom, sá og sigraði á náttúru- verndartónleikum í Hörpu. Hún talaði um einstaka nátt- úrufegurð Íslands og söng meðal annars Perfect Day eftir vin sinn Lou Reed. ➜ R2D2 Litla vélmennið kemur hingað til lands í apríl en nýja Star Wars-myndin verður að hluta til tekin upp hérlendis. Stórstjarnan er orðin 37 ára gömul og því enginn nýgræðingur í bransanum. SAMFÉLAGSMÁL „Allur ágóði af ballinu sem ég held í kvöld rennur óskiptur til Krabbameinsfélagsins,“ sagði Páll Sævar Guðjóns- son þegar hann hafði sigr- að í einstaklingskeppni Mottumars 2014 í gær. Páll safnaði samtals 1.069.000 krónum. Hann sigraði í keppninni með sex hundruð þúsund króna áheiti um klukkustund áður en söfnunar- átakinu lauk. „Ég stend fyrir árgangaballi fyrrverandi nemenda úr Haga- skóla á veitingastaðnum Rúbín og þessi upphæð er brot af því sem kemur inn í miðasölunni,“ segir Páll og tekur fram að upphæðin geti á endanum orðið enn hærri. Páll greindist sjálfur með krabbamein í ristli í janúar 2012, þá 42 ára gamall. Hann er nú laus við meinið en fer í reglubundið eft- irlit. Páll starfar sem skrifstofu- stjóri og er einnig vallar- þulur á Laugardalsvelli og KR-vellinum í Frosta- skjóli. Liðið Vinir Villa fór með sigur af hólmi í liða- keppni söfnunarátaksins. Meðlimir liðsins söfnuðu 1.223.000 krónum en þeir voru allir vinir Vilhjálms Óla Valssonar, sigurveg- ara Mottumars 2013, sem lést af völdum krabbameins í lok mars í fyrra. „Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi komið á óvart enda áttum við ekki von á því að þetta færi yfir milljón krón- ur,“ segir Hreggviður Símonarson, liðsstjóri Vina Villa. Hann segir upphaflegt mark- mið liðsins hafa hljóðað upp á eitt hundrað þúsund krónur en það var síðan hækkað upp í 1.639.000 krón- ur, sömu upphæð og Vilhjálmur safnaði árið 2013. „Við misstum þrjá samstarfs- félaga hjá Landhelgisgæslunni úr krabbameini í fyrra þannig að við vorum í rauninni að heiðra minn- ingu þeirra allra með þessu,“ segir Hreggviður. haraldur@frettabladid.is Sigraði í Mottumars með miðasölu á ball Sigurvegarinn í einstaklingskeppni Mottumars greindist sjálfur með krabbamein fyrir tveimur árum. Vinir Villa sigruðu í liðakeppninni. Meðlimir liðsins misstu í fyrra þrjá samstarfsfélaga úr krabbameini. Um 26 milljónir króna söfnuðust. Alls söfnuðust 26.035.907 krónur í Mottumars að þessu sinni en í fyrra söfnuðust rúmar 25 milljónir. Lokahóf söfnunarátaksins var haldið í Hörpu í gærkvöldi og þá voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í báðum keppnunum. Meistarafélag hárskera sá einnig um að velja fegurstu mottuna og þau verðlaun fóru til Guðna Hannessonar frá Akranesi. 66 PRÓSENTA NÝTING 4 Um það bil 66 prósenta nýting var á sölum Hörpu árið 2013. Ráðstefnutekjur jukust um 40 prósent það ár en aldrei hafa fl eiri gestir lagt leið sína í húsið. VIÐHORFIÐ KANNAÐ 6 Tillögur að nýjum virkjanakostum til meðferðar við 3. áfanga rammaáætlunar eru ekki síst til að kanna hugarfar lands- manna gagnvart orkunýtingu. KJÖTIÐ TIL JAPANS 8 Áfangastaður fl utningaskipsins Ölmu, sem verið er að lesta með frosnum hvalafurðum í Hafnarfj arðarhöfn, er Osaka í Japan. VELDUR ÖRORKU OG DAUÐA 12 Einn af hverjum fi mm Íslendingum fj örutíu ára og eldri þjáist af einkennum langvinnrar lungnateppu. Fjölmargir komast ekki að því fyrr en of seint. PÁLL SÆVAR GUÐJÓNSSON SIGURLIÐIÐ Vinir Villa tóku við verðlaununum í lokahófi Mottumars 2014 í Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mun í dag heimsækja úkraínska þingið og funda með Andrii Deshchytsia, utanríkisráðherra landsins. Þar mun Gunnar Bragi kynna afstöðu stjórnvalda til yfirtöku Rússa á Krímskaga, sem hann hefur lýst yfir að sé brot á alþjóða- lögum, og þátttöku Íslands í refsi- aðgerðum gegn Rússum. Ráðherra mun hefja daginn með heimsókn í þingið þar sem hann ætlar að hitta fulltrúa allra þingflokka og kynna þeim afstöðu íslenskra stjórnvalda og heyra hver sjónarmið þingmannanna eru. Að heimsókninni lokinni mun ráðherra borða hádegisverð með fulltrúum frjálsra félagasamtaka á staðnum og þar á eftir litast um á Maidan-torgi í Kænugarði. Í gær var liðinn mánuður frá átökunum á torginu. Um kvöldmatarleytið mun ráð- herra síðan hitta starfandi utanrík- isráðherra landsins og borða með honum kvöldverð. Krímskagi varð í gær formlega hluti af Rússlandi, þegar Vladimír Pútín Rússlandsforseti undirritaði lög þess efnis. - hmp, hg Utanríkisráðherra ætlar að hitta fulltrúa frjálsra félagasamtaka í Kænugarði: Fundar með ráðamönnum í dag Á VELLINUM Kostiantin Malovany, ræðismaður Íslands í Kænugarði, tók á móti utanríkisráðherra á Boryspil-flug- vellinum í Kænugarði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 26 milljónir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.