Fréttablaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 28
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Ekki þarf að fara mörgum orðum um það sem er að gerast í Úkraínu þessa dagana. Kosningarnar á Krímskaga um síðustu helgi fóru fram í skugga rússnesks herliðs, sem gefur ærna ástæðu til að tortryggja úrslitin.
Engu að síður er Krímskagi nú hluti af Rúss-
landi en ekki Úkraínu, í trássi við vilja stjórn-
valda í Kænugarði. Margir óttast að Krímskagi
sé aðeins upphafið – næst taki Pútin til hendinni
í öðrum ríkjum sem áður tilheyrðu Sovétríkjun-
um. Moldóva er oft nefnd og víst er að í nánustu
samstarfsríkjum Norðurlanda, Eistlandi, Lett-
landi og Litháen, er mörgum órótt. Alla vega
er á ferðinni óvissuástand í þessum heimshluta
sem ekki á sér hliðstæðu frá upplausn Sovétríkj-
anna og lokum kalda stríðsins. Draumur Kreml-
verja um einhvers konar endurnýjun Sovétríkj-
anna birtist heimsbyggðinni ljóslifandi og Pútín
er táknmyndin.
Gagnrýnendur saka Pútín um endurtekna
einræðistilburði sem lýsi sér í því að hann virði
að vettugi kosningalög um leið og hann þaggar
niður í þeim sem eru honum ósammála í mikil-
vægum málefnum. Þrátt fyrir það virðast vin-
sældir Pútíns í heimalandinu haldast nokkuð
stöðugar, þó að hann hafi sætt nokkurri gagn-
rýni fyrir umdeild lög gegn samkynhneigðum
þar sem samkynhneigðum pörum er bannað að
ættleiða börn og blátt bann er lagt við því að
ræða „óhefðbundin sambönd“ við ungmenni.
Þessi lagasetning varð kveikjan að útbreiddri
fordæmingu sem lýsti sér meðal annars í því
að margir sniðgengu Ólympíuleikana í Sotsjí,
sem haldnir voru fyrr á þessu ári. Pútín hefur
sætt gagnrýni fyrir meðferð Rússa á pólitískum
föngum, en hann hefur aldrei veigrað sér við
að taka umdeildar ákvarðanir, hvort sem þær
varða utanríkisstefnu eða innanlandsmál.
Alþjóðasamfélagið, og þá sérstaklega vestræn
ríki, hafa deilt harðlega á Pútín fyrir stuðning
hans við forseta Sýrlands, Bashar al-Assad.
Sú gagnrýni reis hæst þegar al-Assad var
sagður hafa notað efnavopn gegn uppreisnar-
mönnum. Þegar Bandaríkin hótuðu að ráðast
inn í Sýrland hafði Pútín milligöngu um samn-
inga á milli Sýrlands og Bandaríkjanna um að
stjórn Assads léti efnavopnin af hendi. Í ágúst
2013 veitti Pútin svo uppljóstraranum Edward
Snowden pólitískt hæli. Samband Rússlands við
Bandaríkin hefur verið stirt í gegnum árin og
ekki batnar ástandið.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Pútín hefur
sýnt að hann er
reiðubúinn til að
gera hluti sem
flestir töldu hann
ekki reiðubúinn til
að gera.
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar,
um Pútín 20. mars 2014
7. október, 1952 Vladimir Pútín
fæddist í Sankti Pétursborg, sem þá hét
Leníngrad.
1975 Pútín gekk í raðir KGB-leyniþjón-
ustunnar, leyniþjónustu Sovétríkjanna á
tímum kalda stríðsins.
1991 Pútín hóf feril sinn sem skrifstofu-
blók í borgarráðinu í Leníngrad. Þremur
árum síðan var hann orðinn hægri hönd
borgarstjóra Leníngrads, Anatolys
Sobchak.
1996 Flutti með fjölskyldunni til Moskvu,
þar sem hann kleif metorðastigann í
ríkisstjórn Boris Yeltsin.
1998 Pútín var gerður að yfirmanni
Federal Security Service, leyniþjón-
ustunnar sem varð til eftir að KGB leið
undir lok.
1999 Boris Yeltsin gerði Pútín að for-
sætisráðherra landsins og tilnefndi hann
arftaka sinn í forsetastól.
31. desember 1999 Yeltsin hætti í
pólítík, öllum að óvörum.
Mars 2000 Pútín, sem var sitjandi forseti
eftir að hann tók við keflinu af Yeltsin,
var kjörinn forseti í lýðræðislegum
kosningum.
2004 Pútín var endurkjörinn í skjóli
mikils uppgangs í efnahagslífinu, sem að
mestu mátti þakka hækkandi verði á olíu.
Hann hélt vinsældum sínum en stjórnar-
skráin bannaði honum að fara fram í
þriðja sinn.
2008 Í stað þess að stíga til hliðar fékk
Pútin traustasta bandamann sinn,
Dimitry Medvedev aðstoðarforsætis-
ráðherra, til að bjóða sig fram. Hann
vann kosningarnar og gerði Pútin að
forsætisráðherra.
2012 Medvedev kláraði kjörtímabilið
og steig til hliðar, en Pútín bauð sig
aftur fram til forseta. Medvedev varð
forsætisráðherra undir Pútín. Tugir
þúsunda Rússa mótmæltu á götum úti,
og töldu úrslitin byggjast á svindli og
bolabrögðum.
LÍFSHLAUP
Pútín átti tvo yngri bræður sem létust
ungir, en hann ólst upp við fátækt í
St. Pétursborg, sem þá var Leníngrad.
Pútín og foreldrar hans deildu lítilli
íbúð með tveimur öðrum fjölskyldum
og meðal bernskuminninga Pútíns er
að veiða rottur í stigaganginum heima
hjá sér.
Fyrrverandi eiginkona Pútíns
heitir Lyudmila Shkrebneva, en hún
var flugfreyja hjá innanlandsflug-
félagi í Rússlandi þegar þau giftu sig.
Þau gengu í hjónaband árið 1983 en
árið 2013 tilkynntu þau að þau væru
að skilja. Þá voru þau stödd á ballett-
sýningu, La Esmeralda, og blaðamaður
nálgaðist þau eftir fyrsta þátt ballett-
sins. Blaðamaðurinn spurði af hverju
forsetahjónin sæjust svo sjaldan
saman opinberlega – Pútín svaraði ein-
faldlega: „Það er vegna þess að við
erum að skilja.“
Á heimasíðu Pútíns segir Lyudmila
um Pútín. „Það eru fáir feður jafn
umhyggjusamir og hann,“ en saman
eiga þau tvær dætur, Mariu, fædda
1985 og Katerinu, fædd 1986. Þær hafa
haldið sig fjarri sviðsljósi fjölmiðla og
sjást sjaldan opinberlega. Þær sóttu
háskóla þar í landi undir leyninöfnum.
Ekki er vitað hvað þær fást við eða
hvar þær búa.
Tekur föðurhlutverkið alvarlega
Hver er
Vladimír Pútín?
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur verið mikið í umræðunni
undanfarin misseri, ekki síst undanfarnar vikur í ljósi innlimunar
Krímskaga. Erfitt er að henda reiður á ólíkindatólinu Pútín, en
undir vel snyrtu yfirborðinu leynist margbrotinn einstaklingur.
Pútín er ófeiminn við að stilla sér upp
fyrir framan myndavélar, einkum við
íþróttaiðkun, sem gefur honum yfir-
bragð hreysti og karlmennsku. Hann
hefur sérstakan áhuga á bardaga-
íþróttum, er með svart belti í karate,
auk þess sem hann er afreksmaður í
júdó.
Hann situr gjarnan fyrir ber að
ofan og er líklega fremsta ljósmynda-
fyrirsæta í hópi þjóðarleiðtoga – til-
gangurinn er greinilega að sveipa
sig ljóma ofurhetjunnar. Þess á milli
gætir hann þess að ljósmyndarar séu
á ferðinni þegar hann rennir sér á
skíðum.
Pútín er einnig sagður mikill dýra-
vinur, en hann lætur gjarnan mynda
sig í bak og fyrir með hundum, hest-
um og jafnvel tígrisdýrum.
Afreksmaður í íþróttum og fyrirsæta
ÍMYND KARLMENNSKUNNAR Vladimír
Pútín á hestbaki. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
UMMÆLI ÞJÓÐARLEIÐTOGA
UM PÚTÍN
Ef þetta
hljómar kunnug-
lega, þá er það
vegna þess að því
svipar til þess sem
Hitler gerði á fjórða
áratug síðustu
aldar.
Hillary R. Clinton,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna um Pútín, 5. mars 2014
Ég er ekki viss
um að hann sé í
tengslum við raun-
veruleikann. Hann
er í öðrum heimi.
Angela Merkel,
kanslari Þýskalands,
um Pútín 3. mars 2014
Hann er eins og
krakki sem situr
aftast í kennslustof-
unni og leiðist.
Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna,
um Pútín 9. ágúst 2013
SLÖGG Ungur Vladimir og Lyudmila með
aðra dótturina á miðjum níunda áratug
síðustu aldar.