Fréttablaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 70
FÓLK|| FÓ K | HELGIN8 Hugmyndin spratt út frá sýningu sem plakatbekkur-inn minn setti upp í Kraká í Póllandi en þar hönnuðum við plakat fyrir eitt af verkum Bertolts Brecht. Mig langaði að gera eitt- hvað svipað fyrir HönnunarMars, og spurði Magnús Geir, þáverandi leikhússtjóra, hvort ég mætti halda samsýninguna í forsalnum. Hann tók rosalega vel í þetta, og stakk upp á því að við tækjum fyrir leik- ritið „Furðulegt háttalag hunds um nótt“. Það er frábær saga sem býður upp á ríkulegt og fjöl- breytt myndmál,“ útskýrir Fanney Sizemore, sýningarstjóri Furðu- legs háttalags hönnuða. Fjórtán grafískir hönnuðir taka þátt en sýn- ingin er samstarfsverkefni Félags íslenskra teiknara (FÍT) og Borgar- leikhússins. Fanney valdi saman ólíkan hóp hönnuða sem allir fengu bókina að lesa, handritið að leikritinu, miða á leiksýninguna og fund með Hilmari Jónssyni leik- stjóra og Finni Arnari Arnarsyni, leikmyndahönnuði sýningarinnar. Hönnuðirnir fengu síðan frjálsar hendur við útfærslu plakatanna. „Það gilda að mörgu leyti sömu lögmál þegar kemur að hönnun plakata og annarri grafískri hönn- un en þó er enn þá mikilvægara að eitthvað dragi mann að. Plakötin eru fyrst og fremst auglýsing sem þarf að standa sterk,“ segir Fann- ey. „Mér finnst hugmyndin að baki skipta mjög miklu máli, að reyna að fanga kjarna leikritsins og að aðalskilaboðin skili sér strax. Áhorfandinn þarf einnig að geta staldrað við og fundið dýpri merk- ingu í myndmálinu sem er kannski ekki augljós við fyrstu sýn.“ FURÐULEGT HÁTTALAG ÍSLENSK HÖNNUN Furðulegt háttalag hönnuða er yfirskrift samsýningar fjórtán grafískra hönnuða sem opnuð verður í Borgarleikhúsinu á mánudag. SÝNINGARSTJÓRI Fanney Sizemore smalaði saman hópi hönnuða til að vinna veggspjöld út frá leikritinu Furðulegt háttalag hunds um nótt. Sýningin verður opnuð á mánudag í forsal Borgarleikhússins klukkan 16. FANNEY SIZEMOREBJADDNI JÓNAS OG ERLA TOBBA FR ÉT TA BL A Ð IÐ /V A LL I SÝNINGIN Opnunin verður á mánudaginn 24. mars milli klukkan 16 og 18 í for- sal Borgarleikhússins. Sýningin stendur til og með 1. apríl. Hver er draumamorgun- maturinn um helgar? Ekkert veit ég betra en rjúkandi heitan bolla af rótsterku kaffi, súkkulaði- croissant og væna hrúgu af fersku mangói, ananas og öðrum afurðum ávaxtaheims. Hver er yfirleitt helgar- morgun maturinn? Það fer mikið eftir því hvað er mikið að gera hjá mér. Á hlaupum er það yfirleitt ekki nema rjúkandi heitur kaffisopaling- urinn. Þegar ég hef tíma er gjarnan kíkt á ristað brauð, túnfisksalat og, ef hleypur á snærið, fær rótsterkur engifer-smoothie að fylgja. Sefur þú út um helgar? Eins og ég mögulega get. Vandi mig á það á unglingsárum að sofa mikið þegar ég get og minna (eða ekk- ert) þegar þess þarf. Helgarnar eru enn þá bestu færin. Vakir þú fram eftir? Ungur áttaði ég mig á því að ekkert væri leiðinlegra en að fara á fætur, nema þá helst að fara að sofa. Hef mjög sterka hvöt til þess að hanga fram eftir. Það er líka langbesti tíminn til lesturs. Færðu þér eitthvað í gogginn á kvöldin? Ég er almennt ekki að borða neitt seint en kaffi svolgra ég fram í rauðan dauðann. Ertu með nammidag? Ég er alltof óskipulagður til að hafa sérstakan nammidag. En ég fæ mér yfirleitt þrist í hvert skipti sem ég þarf að taka bensín. Það linar pirringinn yfir eldsneytisverði. Hvað verður í sunnudags- kaffinu? Planið er að brugga nýjustu uppáhaldsguðaveigarnar, eþíópískar kaffibaunir frá Te og kaffi sem nefnast Bale wild forest. Kannski maður mauli eitthvað með, ef eitthvað verður til það er að segja. MEÐ KAFFI Á HLAUPUM Óttari Proppé finnst best að fá sér súkkulaði-croissant með kaffinu um helgar. HELGARNEYSLAN Óttarr Proppé segir frá því hvað honum finnst best að borða um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Snyrtivörurnar frá Kardashian Beauty er komin til landsins Kíktu www.verdia.is Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is Opið virka daga kl. 10-18 laugard. 11-16 Rín Lux Tungusófi Havana leður hornsófi 2H2 Basel leðursett 3+1+1 HELGARTILBOÐ Þú sparar 194.906 kr. 380.900 kr. Þú sparar 203.973 kr. 390.900 kr. Þú sparar 151.500 kr. 99.900 kr. Þú sparar 40.000 kr. 19.900 kr. Þú sparar 28.000 kr. 19.900 kr. Sjónvarpsskápur Salsa Sjónvarpsskápur Cubic TV2 390.900 kr. Þú sparar 2 .973 Kr. . kr. Þú sparar .906 Kr. 99.900 kr. Þú sparar 151.500 Kr. 19.90 kr. Þú s rar 28.000 Kr. 19.900 r. Þú spa ar 4 .000 Kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.