Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 52

Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 52
Sundlaugarvörður Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða sundlaugar- vörð. Um er að ræða 100% starf. Góð sundkunnátta nauð synleg. Sundlaugarvörður þarf að standast hæfnispróf starfsmanna sem sinna laugargæslu. Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar mikilvægir svo og frumkvæði í starfi. Laun taka mið af kjara- samningi SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Upplýsingar um starfið veitir Þórdís Richter, skrif- stofustjóri á netfangi richter@sbh.is og í síma 550 0311 Umsóknarfrestur er til 6. apríl næstkomandi. ÞEKKINGARMIÐSTÖÐ SJÁLFSBJARGAR Þekking – fræðsla – aðgengi Staða leikskólastjóra við leikskólann Hagaborg Skóla- og frístundasvið Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Hagaborg. Hagaborg er rótgróinn fimm deilda leikskóli við Fornhaga í Vesturbæ, í næsta nágrenni við Melaskóla. Unnið er eftir hugmyndafræði John Dewey um reynslunám og áhersla er lögð á hreyfingu, málrækt, frjálsan leik og barnalýðræði. Sveigjanleiki, umburðarlyndi og skilningur á margbreytileika mannlífsins eru einkennandi fyrir leikskólann og leiðarljós hans eru vinátta, traust og hlýja. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn að efla og leiða uppeldis- og menntastarf í Hagaborg. Meginhlutverk leikskólastjóra er að: • Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu Reykjavíkurborgar. • Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum. • Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra og starfsmenn. • Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi. • Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á leikskólastigi. • Reynsla af stjórnun æskileg. • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða. • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. • Sjálfstæði og frumkvæði. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2014. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2014. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veita Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is Kynningar og úthringistörf hjá Stígamótum Stígamót leita að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum í kynningar og úthringistörf. Markmiðið er að safna styrk- taraðilum fyrir Stígamót. Um er að ræða hlutastarf sem unnið er á kvöldin. Leitað er eftir opnu og traustu fólki sem er sjálfstætt í vinnu- brögðum. Áhugi og þekking á starfi og málstað Stígamóta er kostur. Umsækjendur sendi ferilskrá og umsókn á thorunn@stigamot.is Nánari upplýsingar í síma 562-6868. Umsóknarfrestur er til 31. mars en ráðningarferlið hefst strax og er því óskað eftir að umsóknir berist sem fyrst. Breiðhöfði 10 | 110 Reykjavík | Sími: 414 8700 | www.ev.is | ev@ev.is STARFSMENN ÓSKAST SMIÐIR LAGERMENN VERKAMENN VEGNA AUKINNA VERKEFNA OG MIKILLAR VINNU FRAMUNDAN VANTAR OKKUR SMIÐI, MENN Á LAGER OG VERKAMENN Í VERKSMIÐJU. Umsækjendur þurfa helst að hafa reynslu af svipuðum störfum og búa yfir haldgóðri reynslu, hver á sínu sviði.Umsóknir og meðmæli óskast send á ev@ev is .Einnig er hæ t ð g a fá upplýsingar í síma 414-8700 og á staðnum. Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í framleiðslu forsteyptra eininga til byggingaframkvæmda. Fyrirtækið er í forystu á sínu sviði og tækjabúnaður og sérhæfð þekking gerir fyrirtækinu kleift að afgreiða bæði stór og smá bygginga- verkefni fljótt og örugglega. RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Ráðningarþjónusta HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um störfin þar. Öflugt sölu- og markaðsfyrirtæki leitar að meiraprófsbílstjórum til starfa við útkeyrslu í framtíðar- og sumarstörf. Vinnutími er frá kl. 07:30 til kl. 15:30 alla virka daga. Tilfallandi aukavinna. Meiraprófsbílstjóri Hæfniskröfur · Meirapróf · Dugnaður og sjálfstæð vinnubrögð · Hæfni í mannlegum samskiptum · Reynsla af sambærilegu starfi kostur Framtíðarstörf/Sumarstörf Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á móttökugeðdeild 32A. Deildin er 18 rúma en starfsfólk hennar sinnir móttöku, greiningu og meðferð sjúklinga með geðraskanir. Deildin sérhæfir sig m.a. í greiningu og meðferð á einstaklingum sem kljást við átraskanir. Reglulega er nýráðnum hjúkrunar- fræðingum boðið að taka þátt í starfsþróunarári. Helstu verkefni og ábyrgð » Hjúkrunarfræðingurinn ákveður, skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og ber ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu. Hæfnikröfur » Íslenskt hjúkrunarleyfi » Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi » Góð samskiptahæfni » Reynsla af geðhjúkrun er æskileg en ekki skilyrði » Áhugi á geðhjúkrun skilyrði Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2014. » Starfshlutfall er 80-100%, vaktavinna og helgarvinna eftir samkomulagi » Starfið er veitt frá 1. maí eða eftir samkomulagi » Upplýsingar veita Ína Rós Jóhannesdóttir, deildarstjóri, inaros@landspitali.is, sími 543 4030 og Sigríður E. Hafberg, mannauðsráðgjafi, shafberg@landspitali.is, sími 543 4453 GEÐSVIÐ Hjúkrunarfræðingur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.