Fréttablaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 44
FÓLK|| FÓ K | HELGIN6
Þuríður segist hlakka til kvölds-ins. Áhorfendur fái að heyra lög sem séu löngu gleymd og geymd
á vínyl-plötum. „Þess vegna köllum
við tónleikana „Gamalt vínyl á nýjum
belgjum“,“ segir hún. Þuríður hefur
fengið með sér valinkunna tónlistar-
menn auk þess sem Óskar Pétursson
Álftagerðisbróðir og Ómar Ragnars-
son leggja henni lið ásamt syni hennar,
Sigurði Pálmasyni.
„Ég var með tónleika í Salnum, á
Siglufirði og á Akureyri fyrir þremur
árum. Eftir það kom upp sú hugmynd
að tefla fram tveimur kynslóðum tón-
listarmanna á tónleikum og mér fannst
það einstaklega spennandi. Ég ákvað í
framhaldinu að rifja upp týnd lög sem
hafa ekkert heyrst síðan ég söng þau
inn á plötu í gamla daga en voru þekkt
á sínum tíma,“ segir Þuríður. „Lög
eins og Ég á mig sjálf, Ég ann þér enn,
Elskaðu mig og lagið Undraheimur sem
er gamalt Carpenter-lag ásamt mörgum
fleirum. Öll lögin á tónleikunum eru
flutt með íslenskum textum. Lögin
halda sínum karakter en það er búið að
útsetja þau upp á nýtt,“ greinir hún frá.
GÖMLU LÖGIN
Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur
ættu að muna eftir þessum lögum úr
óskalagaþáttum Ríkisútvarpsins. „Sum
lögin söng ég með föður mínum, Sig-
urði Ólafssyni, en önnur með Vilhjálmi
Vilhjálmssyni og það er gaman að rifja
þau upp,“ segir Þuríður sem hóf feril
sinn aðeins 16 ára. „Áður fyrr var ég
alltaf að syngja með mér eldri tónlistar-
mönnum þannig að það er gaman að
fara hringinn og vinna núna með yngra
fólki.“
TRYGGIR AÐDÁENDUR
Þuríður söng lengi í hljómsveit Ragnars
Bjarnasonar, einnig hefur hún sungið
með Gunnari Þórðarsyni, Björgvin Hall-
dórssyni að ógleymdum Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni. „Ég er búin að syngja með
öllum helstu tónlistarmönnum þjóðar-
innar í gegnum tíðina,“ segir hún.
Aðalstarf Þuríðar er myndlistin sem
er ólíkur heimi tónlistarinnar. „Mér
finnst mjög skemmtilegt að detta inn í
tónlistarheiminn tímabundið og hverfa
svo aftur í kyrrlátu vinnustofuna mína.
Þar læt ég lítið fyrir mér fara,“ segir
hún. „Salurinn fylltist þrisvar síðast
og það var ánægjulegt að sjá hversu
marga trygga aðdáendur ég á.“
RÖDDIN HVARF
Stuttu eftir tónleikana fyrir þremur
árum lenti Þuríður í raddvandamálum.
„Ég hélt að röddin væri farin,“ segir
hún. „Síðan kom í ljós að ástæðan
var bjúgur á raddböndunum vegna
bakflæðis en ég hafði aldrei haft nein
einkenni sem fylgja slíkum sjúkdómi,
hvorki brjóstsviða né önnur meltingar-
vandamál. Læknirinn sem ég heimsótti
sagði að ekkert væri við þessu að gera.
Ég var ekki tilbúin að kyngja því og fór
til annars læknis. Sá lét mig hafa lyf og
nú er ég í hörkuformi og röddin eins og
best verður á kosið. Það var virkilega
óþægilegt að geta ekki treyst á röddina.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi í
slíkum vandræðum,“ segir Þuríður og
bætir við: „Ég var heppin og því er góð
ástæða til að halda upp á batann núna.“
Þuríður er útivistarkona og segist
vera í hörku formi. „Ég er hestakona
og ég geng mikið. Við höfum æft stíft
fyrir tónleikana og ég get lofað frábæru
kvöldi. Með mér verða færir tónlistar-
menn. Má nefna Steingrím Teague
hljómborðsleikara sem hefur meðal
annars spilað með hljómsveitinni Of
Monsters and Men. Ég valdi þá bestu af
yngri kynslóðinni.“
■ elin@365.is
HÉLT AÐ RÖDDIN VÆRI FARIN
ALLTAF HRESS Þuríður Sigurðardóttir stígur á svið í Salnum í Kópavogi í kvöld eftir þriggja ára hlé frá söngnum. Þuríður hélt
á tímabili að hún gæti ekki sungið aftur þegar hún greindist með bjúg í raddböndum í fyrra. Núna er hún í hörkuformi.
Í HÖRKUFORMI
Þuríður Sigurðardóttir
ætlar að rifja upp
gömlu, gleymdu lögin
í Salnum í kvöld.
MYND/DANÍEL
Heilsuhótel
Íslands
Lindarbraut 634
235 Reykjanesbær
Sími 512 8040
heilsa@heilsuhotel.is
www.heilsuhotel.is
Heilsuhótel Íslands - Endurnýjanleg orka
„Mér hefur
aldrei liðið
svona vel“.
Svanhildur Guðjónsdóttir, verslunarmaður.
Frábær aðstaða
Á hótelinu eru 50 herbergi. Öll herbergin eru björt og
góð með ljósu parketi á gólfum og sér baðherbergi.
Leikfimisalur, gufubað, infra-rauður saunaklefi, heitur
útipottur og sólbaðsaðstaða bjóðast gestum. Heilsunudd
og ýmsar meðferðir sem vinna gegn einkennum gigtar
eru í boði.
Góð heilsa
Að upplifa og nema hluti sem breytir lífinu með jákvæðum
hætti eru markmið hótelsins. Aukin lífsorka og gleði eru
gæði sem flestir sækjast eftir. Góð heilsa byggir á góðu
mataræði, hreyfingu, hvíld og slökun auk jákvæðni.
Sauna
Kostir infra-rauðra saunaklefa hafa verið rannsakaðir.
Infra-rauð ljós hita likamann með djúphitun sem hefur
góð áhrif á heilsuna, eykur liðleika, minnkar verki, bólgur
og bjúg.
Algengustu einkenni gigtar eru stirðleiki, verkir og bólgur í liðum, vöðvum, sinum
og sinafestum. Á Heilsuhóteli Íslands er lögð áhersla á þætti sem snúa að svefni,
hreyfingu, hvíld og hollu mataræði.
Næsta námskeiði
2. -16. maí
Laugardaginn 29. mars kemur út
veglegt Brúðkaupsblað með
Fréttablaðinu.
Fjallað verður um allt sem viðkemur
Brúðkaupum og er blaðinu dreift í
90.000 eintökum.
Pantið auglýsingar/kynningar
tímanlega hjá Bryndísi
í síma 512-5434 eða
á netfangið bryndis@365.is
Fréttablaðsins