Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 52
Sundlaugarvörður
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða sundlaugar-
vörð. Um er að ræða 100% starf. Góð sundkunnátta
nauð synleg. Sundlaugarvörður þarf að standast
hæfnispróf starfsmanna sem sinna laugargæslu.
Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar mikilvægir
svo og frumkvæði í starfi. Laun taka mið af kjara-
samningi SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu við
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Upplýsingar um starfið veitir Þórdís Richter, skrif-
stofustjóri á netfangi richter@sbh.is og í
síma 550 0311
Umsóknarfrestur er til 6. apríl næstkomandi.
ÞEKKINGARMIÐSTÖÐ
SJÁLFSBJARGAR
Þekking – fræðsla – aðgengi
Staða leikskólastjóra við leikskólann Hagaborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Hagaborg.
Hagaborg er rótgróinn fimm deilda leikskóli við Fornhaga í Vesturbæ, í næsta nágrenni við Melaskóla. Unnið er eftir
hugmyndafræði John Dewey um reynslunám og áhersla er lögð á hreyfingu, málrækt, frjálsan leik og barnalýðræði.
Sveigjanleiki, umburðarlyndi og skilningur á margbreytileika mannlífsins eru einkennandi fyrir leikskólann og leiðarljós
hans eru vinátta, traust og hlýja.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn að efla og leiða uppeldis- og menntastarf í Hagaborg.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og
stefnu Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2014. Umsóknarfrestur er til og með 13. apríl 2014.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólahluta fagskrifstofu, og Valgerður Janusdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111.
Netföng: hildur.skarphedinsdottir@reykjavik.is / valgerdur.janusdottir@reykjavik.is
Kynningar og úthringistörf
hjá Stígamótum
Stígamót leita að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingum
í kynningar og úthringistörf. Markmiðið er að safna styrk-
taraðilum fyrir Stígamót.
Um er að ræða hlutastarf sem unnið er á kvöldin. Leitað
er eftir opnu og traustu fólki sem er sjálfstætt í vinnu-
brögðum.
Áhugi og þekking á starfi og málstað Stígamóta er kostur.
Umsækjendur sendi ferilskrá og umsókn á
thorunn@stigamot.is
Nánari upplýsingar í síma 562-6868. Umsóknarfrestur er til
31. mars en ráðningarferlið hefst strax og er því óskað eftir
að umsóknir berist sem fyrst.
Breiðhöfði 10 | 110 Reykjavík | Sími: 414 8700 | www.ev.is | ev@ev.is
STARFSMENN ÓSKAST
SMIÐIR
LAGERMENN
VERKAMENN
VEGNA AUKINNA VERKEFNA OG MIKILLAR VINNU
FRAMUNDAN VANTAR OKKUR SMIÐI, MENN Á LAGER OG VERKAMENN Í VERKSMIÐJU.
Umsækjendur þurfa helst að hafa reynslu af svipuðum
störfum og búa yfir haldgóðri reynslu, hver á sínu sviði.Umsóknir og meðmæli óskast send á ev@ev is .Einnig er hæ t ð g a fá upplýsingar í síma 414-8700 og á staðnum.
Einingaverksmiðjan sérhæfir sig
í framleiðslu forsteyptra eininga
til byggingaframkvæmda.
Fyrirtækið er í forystu á
sínu sviði og tækjabúnaður
og sérhæfð þekking gerir
fyrirtækinu kleift að afgreiða
bæði stór og smá bygginga-
verkefni fljótt og örugglega.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ráðningarþjónusta
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu HH Ráðgjafar
www.hhr.is og eru áhugasamir beðnir um að sækja um störfin þar.
Öflugt sölu- og markaðsfyrirtæki leitar að meiraprófsbílstjórum til starfa við útkeyrslu
í framtíðar- og sumarstörf.
Vinnutími er frá kl. 07:30 til kl. 15:30 alla virka daga. Tilfallandi aukavinna.
Meiraprófsbílstjóri
Hæfniskröfur
· Meirapróf
· Dugnaður og sjálfstæð vinnubrögð
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Framtíðarstörf/Sumarstörf
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á móttökugeðdeild
32A. Deildin er 18 rúma en starfsfólk hennar sinnir móttöku,
greiningu og meðferð sjúklinga með geðraskanir. Deildin
sérhæfir sig m.a. í greiningu og meðferð á einstaklingum
sem kljást við átraskanir. Reglulega er nýráðnum hjúkrunar-
fræðingum boðið að taka þátt í starfsþróunarári.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrunarfræðingurinn ákveður, skipuleggur og veitir
hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðinga og ber
ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu.
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
» Góð samskiptahæfni
» Reynsla af geðhjúkrun er æskileg en ekki skilyrði
» Áhugi á geðhjúkrun skilyrði
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2014.
» Starfshlutfall er 80-100%, vaktavinna og helgarvinna eftir
samkomulagi
» Starfið er veitt frá 1. maí eða eftir samkomulagi
» Upplýsingar veita Ína Rós Jóhannesdóttir, deildarstjóri,
inaros@landspitali.is, sími 543 4030 og Sigríður E.
Hafberg, mannauðsráðgjafi, shafberg@landspitali.is,
sími 543 4453
GEÐSVIÐ
Hjúkrunarfræðingur