Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 36

Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 36
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 Guðrún: „Já, og fylgist með honum enn. Er líka alltaf voða spennt að vita hvernig ÍR gengur. Ég var í leikfimi í ÍR í gamla daga þannig að ég er ÍR-ingur frá upp- hafi.“ Jón: „Þú átt ÍR-metið í aldri og bætir það á hverjum degi. Hringir líka stundum til að tilkynna mér að nú hafi ÍR verið að vinna. Ég fylgist reyndar vel með þeim líka en stundum ert þú á undan með fréttirnar.“ Asi á Tómasi skáldi Guðrún er fædd 24. maí 1911 á Grettisgötu 11, í fallegu húsi sem enn stendur, en flutti fimm ára niður í pósthúsið á horni Austur- strætis og Pósthússtrætis þar sem pabbi hennar var ráðinn hús- vörður. Beðin að rifja upp eitthvað skemmtilegt úr æsku nefnir hún strax rúntinn. „Ég og vinkona mín sátum oft við gluggana á fyrstu hæðinni í pósthúsinu og horfðum á fólkið á rúntinum sem gekk um Austur- strætið. Ég man vel eftir Tómasi Guðmundssyni skáldi. Hann var á hálfgerðum hlaupum öll kvöld og tók fram úr fólki sem labbaði rúntinn rólega. Það var nú meiri asinn á manninum.“ Guðrún átti heima í mekka búð- anna sem þá voru í Reykjavík. „Flestar nýlenduvöruverslanirnar voru í Hafnarstræti og vefnaðar- vöruverslanir í Austurstræti og upp að Vatnsstíg.“ Jón: „Einu sinni sagðir þú mér frá stórum og miklum kjötkaup- manni í kjallara hússins sem stóð þar sem Landsbankinn er núna.“ Guðrún: „Já, hann var nú alveg milljón. Ég átti sjaldan peninga sem barn en ef mér áskotnuðust 50 aurar keypti ég ekki sælgæti heldur síldarsalat sem hjónin í þessari búð bjuggu til. Það var gengið inn í hana Hafnarstrætis- megin og niður margar tröppur. Við ganginn sat alltaf, frá morgni til kvölds, stór St. Bernharðshund- ur og hjónin bjuggu í herbergi inn af búðinni, með hundinn. Það var sag á gólfinu hjá þeim, svart af skít. Ég hefði ekki verslað við þau í dag.“ Jón: „Þetta hlýtur að hafa verið mjög gott salat – og ekki bráð- drepandi þrátt fyrir sóðaskapinn.“ Munaði mjóu í Hamborg Bæði störfuðu mæðginin á skrif- stofum. Hún hjá Skipaútgerð rík- isins í 25 ár meðan allt var hand- skrifað og reiknað á blöðum og hann hjá fiskmatsstofnunum í tæp fimmtíu ár, síðast MAST, en hætti fyrir þremur árum er hann skreið yfir sjöunda tuginn. Guðrún hefur haft samskipti við sex kynslóðir. Ólst upp með ömmu sína á heimilinu sem var fædd milli 1850 og 1860 og á nú sjálf barnabarnabörn. Margt hefur hún upplifað. Jón minnir hana á Þýskalandsferðina 1939 og hún segir frá: „Við pabbi þinn fórum til Þýska- lands í byrjun ágúst 1939 í versl- unarerindum og vorum þar einn mánuð. Við áttum pantað far frá Kaupmannahöfn til Íslands 3. september og vorum í lest frá Hamborg til Kaupmannahafnar þegar Þjóðverjar réðust inn í Pól- land og stríðið braust út. Á braut- arstöðinni í Hamborg var biðröð að passaskoðun. Pabbi þinn var kominn inn í lestina með tösk- urnar en ég var enn á pallinum og lestin að mjakast af stað, þá tók vinur okkar, sem við höfðum búið hjá, mig í fangið og henti mér inn um glugga þar sem pabbi þinn tók á móti mér. Það munaði litlu að ég yrði eftir og Guð veit þá hvenær ég hefði komist heim.“ Spilamennska var yndi Guðrún- ar um dagana, allt til 95 ára ald- urs. Einkum bridds. „Við vorum fjórar sem hittumst í mörg ár hver heima hjá annarri um helgar að spila brids. Svo var ég í félags- vist með eldri borgurum. Ég held ég hafi spilað alla daga vikunnar á tímabili, bridds um helgar og vist virku dagana.“ Þótt Guðrún segi Sóltún frábært heimili og hrósi aðbúnaðinum þar í hástert finnst henni dagarnir dálítið lengi að líða, því hún geti svo lítið haft fyrir stafni. „Ég bíð eftir morgunkaffinu klukkan níu og líka eftir að Jón og fjölskylda komi. Gamlir leikfélagar eru allir horfnir í annan heim en ég á eina vinkonu, dóttur æskuvinkonu minnar sem ég sat hjá í barnaskól- anum við Tjörnina í gamla daga. Hún kemur til mín einu sinni í viku og við tölum saman í síma annað hvert kvöld.“ Bætir ÍR-metið á hverjum degi Mæðginin Jón Þ. Ólafsson, fyrrverandi hástökkvari og skrifstofumaður, og Guðrún Valby Straumfjörð, fyrrverandi skrif- stofudama, hittast daglega á elliheimilinu Sóltúni þar sem Guðrún býr. Þau fá sér kaffisopa og spjalla um gengi ÍR í íþrótt- unum og það sem efst er á baugi, auk þess að rifja upp atburði fortíðar en Guðrún er á 103. aldursári og er stálminnug. Jón Þórður Ólafsson tekur á móti okkur Gunnari V. Andr-éssyni ljósmyndara í anddyri elliheimilisins Sóltúns og fylgir okkur upp á aðra hæð þar sem móðir hans, Guðrún Valby Straumfjörð, býr í stórri og vel búinni stofu. Jón er hátt í tveggja metra maður og var stórstjarna í frjáls- um íþróttum á Íslandi á sjöunda áratugnum. Keppti um sextíu sinnum erlendis, þar af tvíveg- is á Ólympíuleikum og jafnoft á Evrópumeistaramótum. Hann átti Íslandsmetið í hástökki í 25 ár og er Íslandsmeistari í kringlukasti og kúluvarpi í sínum flokki. Guðrún liggur uppi í rúminu sínu en reisir sig upp þegar við komum, heilsar og sest fram á. Minnist aðeins á að hún hafi kviðið komu okkar Gunnars en tekur okkur strax í sátt. Þau mæðgin- in heilsast glaðlega og Jón stillir heyrnartæki móður sinnar, frá þeim liggur snúra að litlum hljóð- nema sem hann leggur á göngu- grindina við rúmið og við eigum að tala í. „Hann kemur til mín á hverjum einasta degi, allt árið um kring. Þetta er ábyggilega besti sonur í heimi,“ segir Guðrún brosandi og beinir orðunum til okkar gestanna. „Við höfum líka alltaf margt að tala um.“ Jón: „Já, við ræðum um gamla daga og svo kemur alltaf upp eitt- hvað nýtt, til dæmis í pólitíkinni.“ Guðrún: „Ég hef hvorki getað lesið né horft á sjónvarp í átta ár vegna sjónarinnar. En ég er með útvarpið í eyrunum allan dag- inn. Hlusta á Rás 1 en þó mest á Útvarp Sögu.“ Jón: „… og fylgist vel með þjóð- málaumræðunni. Svo tökum við málin fyrir og afgreiðum þau lang- leiðina!“ Mamman dálítið ákveðin Þó ég hafi fyrst ætlað að vera eins og fluga á vegg og fylgjast bara með samræðum þeirra mæðg- ina er forvitnin fljótlega búin að hrifsa völdin. Hefur ykkar samband alltaf verið svona gott? Jón: „Já, við erum nú bæði stór í skapi en komumst merkilega vel af hvort við annað. Var hann ekkert ódæll í æsku? spyr ég Guðrúnu. Guðrún: „Nei, nei, hann var þægur en mamman var dálítið ákveðin og lét hann hlýða sér.“ Jón: „O, það kom nú fyrir að maður fór út af línunni. Þó maður henti snjóbolta inn um glugga eða héngi aftan í bílum, eins og mjög tíðkaðist þegar ég var strákur, þá gleymdist nú stundum að tilkynna það heima. Jafnvel þótt löggan skærist í leikinn.“ Guðrún: „Þú hefðir líka verið tekinn í gegn ef ég hefði frétt það.“ Jón stríðnislega: „Heldurðu að þú hefðir náð mér á sprettinum? Annars hafðir þú snemma lag á mér. Ég var misduglegur að borða eftir því hvað var í matinn, eins og þú manst. Fékkst til dæmis ómögulega til að borða kjötsúpu. En einn daginn tilkynntir þú mér að nú lægi fyrir af hverju Clausen bræður og Gunnar Huse- by væru svona góðir í íþróttum, þeir borðuðu kjötsúpu. Síðan hef ég borðað kjötsúpu með góðri lyst, jafnvel dögum saman ef á hefur þurft að halda.“ Enda árangurinn eftir því, læði ég út úr mér. Jón: „Já, þar kemur lýsið líka til. Einu sinni var ég staddur á Hlemmi fyrir nokkrum árum. Þar var strákager og allir í hópnum hóstandi. Ég segi við drengina. „Hvað er þetta, eru hér ungir menn fullir af kvefi?“ Já, þeir bölva kvefinu. „Það er eitt ráð til að losna við kvef og verða sterkir og stórir. Það er að taka lýsi,“ bendi ég þeim á. Þá segir einn: „Mér sýnist þú nú hafa tekið of mikið af því!“ Fylgdist þú vel með stráknum, Guðrún, þegar hann var í frjáls- um? FYRIR 50 ÁRUM Jón var kosinn íþrótta- maður ársins fyrir árið 1963 enda var hann afreksmaður í frjálsum íþróttum. Mamman fylgdist spennt með og gerir enn því hann nú keppir hann í kringlu- kasti og kúluvarpi en nú í öldungaflokki. Ég og vinkona mín sátum oft við gluggana á fyrstu hæðinni í pósthúsinu og horfðum á fólkið á rúntinum sem gekk um Austurstrætið. Ég man vel eftir Tómasi Guðmundssyni skáldi. Hann var á hálf- gerðum hlaupum öll kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is – Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 6 79 77 0 2/ 14 www.lyfja.is Fyrir þig í Lyfju Læg a verð í LyfjuNicorette Fruitmint Allar pakkningar og styrkleikar. 15% afsláttur Gildir út mars.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.