Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 98
Hljómsveitin Kaleo hlaut alls þrenn
verðlaun á Hlustendaverðlaunun-
um sem veitt voru við hátíðlega
athöfn í Háskólabíói í gærkvöldi.
Jökull Júlíusson, söngvari sveitar-
innar, var valinn söngvari ársins
og sveitin sjálf nýliði ársins. Þá
hlaut plata þeirra, Kaleo, verðlaun
sem plata ársins.
Hljómsveitin Of Monsters and
Men getur líka verið sátt við
sinn hlut. Söngkona sveitarinnar,
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, var
valin söngkona ársins og bandið í
heild sinni valið flytjandi ársins.
Það voru hlustendur Bylgjunn-
ar, FM957 og X-ins 977 sem völdu
hvað stóð upp úr á síðasta ári í
íslenskri tónlist og fór kosning
fram á visir.is.
Verðlaunahátíðin var sannköll-
uð veisla fyrir eyrað en meðal
þeirra sem stigu á svið voru Emil-
íana Torrini, Lay Low, Skálmöld,
Jón Jónsson og Friðrik Dór. Í hlut-
verki kynna voru þau Sverrir Þór
Sverrisson og Saga Garðarsdóttir
sem reyttu af sér brandarana eins
og þeim einum er lagið.
liljakatrin@frettabladid.is
Kaleo kom, sá og sigraði
Nýliðarnir í Kaleo hlutu þrenn verðlaun á Hlustendaverðlaununum sem veitt
voru í Háskólabíói í gær. Þá hlaut Of Monsters and Men tvenn verðlaun.
SIGURSÆLIR Kaleo nældi sér í þrennu í gærkvöldi.
RADDBÖNDIN ÞANIN Nanna Bryndís er söngkona ársins.
SENDU ÞAKKIR Daft Punk á besta erlenda lagið og
sendi hlustendum myndbandskveðju.
LAG ÁRSINS Baggalútsmenn eiga lag ársins ásamt Jóhönnu Guðrúnu.
LAG ÁRSINS
Mamma þarf að djamma–
Baggalútur og Jóhanna Guðrún
PLATA ÁRSINS
Kaleo– Kaleo
SÖNGVARI ÁRSINS
Jökull Júlíusson– Kaleo
SÖNGKONA ÁRSINS
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir–
Of Monsters And Men
FLYTJANDI ÁRSINS
Of Monsters And Men
NÝLIÐI ÁRSINS
Kaleo
MYNDBAND ÁRSINS
Gleipnir– Skálmöld
ERLENDA LAG ÁRSINS
Get Lucky– Daft Punk
VERÐLAUNAHAFAR
LÍFIÐ
22. mars 2014 LAUGARDAGUR
Hönnunarmars byrjar í Glóey
Sjáðu alla möguleikana í gerð lampa
og ljósa. Ótrúlegt úrval af silkisnúrum,
flottum perum og íhlutum til
ljósagerðar. Fagmenn á staðnum.
Frábært efni á góðu verði.
Nicovel®lyfjatyggigúmmí
VILTU HÆTTA
AÐ REYKJA?
Nicovel Fruit og Nicovel Mint lyfjatyggigúmmí, innihalda 2 mg af
nikótíni sem nikótín resinat. Nicovel er ætlað reykingamönnum 18 ára
og eldri. Ekki má nota Nicovel ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni
eða einhverju öðru innihaldsefni tyggigúmmísins eða ef þú reykir ekki.
Leitið ráða hjá lækni áður en Nicovel er notað ef: þú hefur nýlega fengið
hjartaáfall eða heilablóðfall, þú hefur fengið ofnæmisviðbrögð (ofsabjúgur)
eða útbrot með kláða (ofsakláði). Einnig ef þú ert með: brjóstverk,
hjartakvilla sem hefur áhrif á hraða eða takt hjartsláttar, ómeðhöndlaðan
háþrýsting, lifrarsjúkdóm, nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil,
æxli í nýrnahettumerg (krómfíklaæxli), magasár eða bólgu í vélinda.
Einstaklingar undir 18 ára aldri ættu ekki að nota Nicovel nema því sé
ávísað af lækni. Viðeigandi skammtur fyrir fullorðna getur haft mikil
eituráhrif eða verið banvænn fyrir lítil börn. Þungaðar konur og konur
með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicovel í samráði við lækni.
Skammtar eru einstaklingsbundnir og valdir út frá nikótínþörf. Yfirleitt
er nóg að nota 8-12 tyggigúmmí á dag. Hámarksskammtur er 24 stykki
á dag. Nánari upplýsingar um notkun er að finna í fylgiseðli lyfsins.
Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: Orifarm Generics A/S. Umboð á Íslandi: Icepharma hf.
Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.
NEY140201