Fréttablaðið - 29.03.2014, Blaðsíða 6
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Nýtt lyf sem verkar bæði gegn
nefstíflu og nefrennsli
Andaðu með nefinu
Nýtt!
MENNTAMÁL Landbúnaðarháskól-
inn á Hvanneyri sendi mennta-
málaráðuneytinu í gær nýja
rekstraráætlun fyrir árin 2014 til
2016 um hvernig eigi að takast á
við erfiða fjárhagsstöðu skólans.
Ágúst Sigurðsson, rektor skól-
ans, segir að staðan sé þröng. „Við
erum að draga saman í rekstri um
70 milljónir á ári. Fjárlagarammi
okkar er 630 milljónir svo það er
engin smá blóðtaka fyrir okkur.“
Haraldur Benediktsson, fyrr-
verandi formaður Bændasamtak-
anna og þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í NV-kjördæmi, fagnaði
því að ekki yrði af sameiningu
Háskóla Íslands og Landbúnað-
arháskólans. Hann og aðrir þing-
menn kjördæmisins funduðu með
yfirstjórn skólans á miðvikudag.
„Á þessum fundi með þingmönn-
um Norðvesturkjördæmis lýstum
við yfir miklum vonbrigðum með
þetta enda viljum við samein-
ast háskólanum og teljum að það
sé best í stöðunni þegar til lengri
tíma er litið. Ég er viss um að
Haraldur Benediktsson vill okkur
vel en okkur greinir á um leiðir til
að takast á við framtíðina.“
Vel hefur tekist til við samein-
ingar í öðrum löndum, svo sem
Danmörku og Finnlandi, að sögn
Ágústs. „Kollegum okkar í þeim
skólum líður bara ágætlega. Það
eru nýir tímar og nýjar áherslur.
Ef það á að verða til nýsköpun og
nýir hlutir verður að hugsa hlutina
upp á nýtt og breyta. Það er ekki
hægt að hjakka í sama farinu um
árabil.“ - ssb
Rekstraráætlun Landbúnaðarháskóla Íslands gerir ráð fyrir sjötíu milljóna króna niðurskurði á næsta ári:
Rektor á Hvanneyri vill sameinast háskólanum
ÁGÚST SIGURÐSSON Rektor LBHÍ er
ósáttur við að fallið hafi verið frá sam-
einingaráformum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL „Það borgar sig í dag
fyrir fólk að greiða niður fasteigna-
lán með séreignarsparnaði. Skatt-
greiðendur framtíðarinnar munu
hins vegar borga reikninginn og svo
hefur fólk minna til ráðstöfunar á
efri árum,“ segir Gylfi Magnússon,
lektor við Háskóla Íslands, um nýtt
frumvarp ríkisstjórnarinnar. Það
gerir ráð fyrir að fólk geti annað
hvort nýtt séreignarsparnað til
íbúðakaupa, eigi það ekki húsnæði,
eða til að greiða niður lán.
Samkvæmt frumvarpinu verður
þak á því hversu háar upphæðir má
nota til þessara hluta og er miðað
við 1,5 milljónir á þriggja ára tíma-
bili á heimili, sama hvor leiðin er
farin.
Nokkur umræða hefur spunnist
um hvort það borgi sig fyrir fólk að
nýta séreignarsparnað sinn til þess-
ara hluta.
Gylfi segir að það sé fundið fé
að gera það því ekki þurfi að greiða
skatt af þessum peningum og í
sama streng tekur Marías Gestsson,
aðjunkt við Háskólann og sérfræð-
ingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands.
„Þar sem fólk greiðir ekki skatt af
þessari upphæð má segja að skatt-
urinn sé ávöxtun,“ segir Marías.
„Ef fólk hefur ekki verið að nýta
sér séreignarsparnaðinn ætti það að
fara að gera það. Það er góð ákvörð-
un. Launþegar leggja fram tvö pró-
sent af tekjum sínum á móti jafnháu
framlagi frá atvinnurekandanum,“
segir Gylfi.
Hann segir að það borgi sig alltaf
að greiða fasteignalánin, verðbólgu-
skot breyti þar engu um.
„Verðbólguskot auka ekki raun-
virði láns heldur fjölgar krónunum
sem menn skulda eða greiða í hverj-
um mánuði, á móti kemur að hver
króna er minna virði,“ segir Gylfi.
Marías segir að þótt það sé skyn-
samlegt að nota skattfrjálsan sér-
eignarsparnað til að greiða niður
lán þá komi það einhvers staðar
niður.
„Stjórnvöld verða að hækka
skatta í framtíðinni eða að spara í
ríkisbúskapnum og það hefur þá
væntanlega í för með sér að ekki
verður hægt að eyða jafn miklu í
heilbrigðis- og skólakerfi svo dæmi
séu tekin,“ segir Marías.
johanna@frettabladid
Næstu kynslóðir
borga reikninginn
Lektor og aðjunkt við Háskóla Íslands segja að stjórnvöld verði að hækka skatta í
framtíðinni til að bæta sér upp tap af skattfrjálsum séreignarsparnaði. Þeir eru sam-
mála um að það borgi sig að greiða niður verðtryggð fasteignalán með sparnaði.
MARÍAS
GESTSSON
GYLFI
MAGNÚSSON
Eyjólfur Lárusson, framkvæmdastjóri Allianz á Íslandi, sagði meðal
annars í Fréttablaðinu í gær að verðtryggð lán gætu hækkað á svip-
stundu og þá væri allt inngreitt, þar á meðal sér-
eignarsparnaðurinn, farinn. Eyjólfur segir að í tilefni
af umræðu, vegna orða hans í blaðinu í gær vilji hann
koma því á framfæri, talandi mannamál, að miðað við
meðalverðbólgu síðastliðinna ára hafi heildarskuld á
verðtryggðu láni vaxið upp í upphaflega stöðu þrátt
fyrir að greitt hafi verið samviskusamlega í fimm ár.
„Ég held að hinn almenni Íslendingur sem hefur verð-
tryggt lán hafi fundið þetta á eigin skinni,“ segir hann.
Jafnframt kvaðst Eyjólfur hvetja alla til að skoða
sína stöðu og vega og meta sín mál út frá sínum eigin
hagsmunum.
Lánið óx í upphaflega stöðu
EYJÓLFUR
LÁRUSSON
SÉREIGNAR-
SPARNAÐUR
Fræðimenn við
HÍ segja skyn-
samlegt að nota
skattfrjálsan sér-
eignarsparnað til
að greiða niður
verðtryggð hús-
næðislán. Þeir
segja hins vegar
að kynslóðir fram-
tíðarinnar borgi
brúsann.
FRÉTTABLAÐIÐ /VILHELM
FJARSKIPTI Síminn býður upp á nýjar
áskriftarleiðir sem eru hannaðar
fyrir snjallsíma. Verðið á símreikn-
ingnum ræðst af gagnamagninu sem
keypt er en lengd og fjöldi símtala og
sms-skilaboða hættir að skipta máli.
Orri Hauksson, forstjóri Símans,
telur að nýjar áskriftarleiðir muni
breyta landslagi fjarskiptamarkað-
arins á Íslandi til frambúðar.
„Aukinn fyrirsjáanleiki einfald-
ar viðskiptavinum að fylgjast með
reikningnum og vangaveltur um
hvað mínútan kostar hætta. Gömlu
pakkarnir verða enn í boði en til
lengri tíma litið held ég að mínút-
ur sem einingar á símreikningnum
muni hverfa,“ segir Orri.
Gagnamagnið mun ráða verðinu,
hægt verður að kaupa pakka sem
kosta 5.990 til 8.990 krónur og greitt
verður fyrir umframgagnamagn.
„Viðskiptavinir fá að vita þegar
þeir eru komnir að hámarkinu. Það
fer svo eftir notkun og mynstri hvers
og eins, hversu mikið fólk halar
niður efni, hve stóran pakka það
þarf.“ - ebg
Síminn svarar breyttu landslagi og lætur gagnamagnið ráða verðinu:
Mínútur hverfa af reikningnum
ORRI HAUKSSON Forstjóri Símans
telur að nýja þjónustan muni breyta
landslagi fjarskiptamarkaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HÁTÍÐ Leyndardómar Suðurlands,
tíu daga leyndardómsfull hátíð,
hófst formlega í gær.
Á hátíðinni verður boðið upp á
um tvö hundruð viðburði og frítt
er í strætó alla dagana.
Ráðherrarnir Sigurður Ingi
Jóhannsson og Ragnheiður
Elín Árnadóttir, ásamt Gunnari
Þorgeirssyni, formanni Sam-
taka sunnlenskra sveitarfélaga,
klipptu á borða á Suðurlandsveg-
inum og opnuðu þar með form-
lega hátíðina. - ebg
Tvöhundruð viðburðir í boði:
Hátíð leyndar-
dóma hafin