Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 32
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
LÍFSHLAUP
1957 Nicholas Edward
Cave fæðist í Warracknabeal,
smábæ í Victoria í Ástralíu.
1966 Byrjar í kór í Holy
Trinity-dómkirkjunni í
Wangaratta.
1970 Rekinn úr miðskólanum
í Wangaratta.
1973 Kynnist Mick Harvey,
Phill Calvert, John Cochi-
vera, Brett Purcell og Chris
Coyne. Þeir stofna hljómsveit
með Nick sem söngvara.
Árið 1977 fær hljómsveitin
nafnið The Boys Next Door
eftir örlitlar mannabreytingar.
Seinna breyttist nafn bands-
ins í The Birthday Party.
1976 Faðir hans, Colin, deyr
í bílslysi.
1977 Hættir í Monash-há-
skóla til að einbeita sér
að tónlist. Á svipuðum
tíma byrjar hann að nota
heróín.
1984 The Birthday
Party hættir. Í kjölfarið
var stofnuð hljóm-
sveitin The Bad
Seeds sem er enn
starfandi.
1986 Heldur tón-
leika á Íslandi með
hljómsveit sinni The
Bad Seeds.
1989 Gefur út sína
fyrstu skáldsögu,
And the Ass Saw the
Angel.
1996 Er guðfaðir Heavenly
Hiraani Tiger Lily, dóttur
rokkarans Michaels Hutch-
ence sem framdi sjálfsmorð
árið 1997. Nick söng lag sitt
Into My Arms af plötunni
Boatman‘s Call í jarðar-
förinni hans.
2002 Heldur sólótónleika á
Hótel Íslandi.
2005 Nick og Warren Ellis
semja tónlist við leikritið
Woyzeck í uppfærslu Vestur-
ports.
2005 Kvikmyndin The
Proposition er frumsýnd.
Nick skrifaði handritið en
leikstjórn var í höndum
Johns Hillcoat.
2006 Nick og Warren Ellis
semja tónlist við leikritið
Hamskiptin í uppfærslu
Vesturports.
2006 Stofnar hljómsveitina
Grinderman með Warren
Ellis, Martyn P. Casey og Jim
Sclavunos. Hún gaf út tvær
plötur– Grinderman árið
2007 og Grinderman 2 árið
2010. Hljómsveitin hætti 2011.
2006 Nick og Warren
Ellis semja tónlistina fyrir
kvikmyndina The Assass-
ination of Jesse James by
the Coward Robert Ford.
2006 Skrifar framhald af
kvikmyndinni Gladiator
að beiðni leikarans Russell
Crowe en myndverið hafnaði
handritinu.
2006 Heldur tónleika með
hljómsveit sinni The Bad
Seeds í Laugardalshöll.
2009 Gefur út sína aðra skáld-
sögu, The Death of Bunny
Munro, sem fjallar um sölu-
mann með kynlífsfíkn.
2010 Nick og Warren Ellis
semja tónlist við leikritið
Faust í uppfærslu Vestur-
ports.
2012 Kvikmyndin Lawless
er frumsýnd en Nick skrifaði
handritið The Wettest
County in the World sem
var notað við gerð myndar-
innar sem var leikstýrt af
John Hillcoat.
2013 Nick Cave og hljóm-
sveit hans The Bad Seeds
halda tónleika á hátíðinni All
Tomorrow‘s Parties á Ásbrú.
Nick Cave státar ekki aðeins af fjölda-mörgum stórkostlegum plötum á ferlin-um sem spannar fjörutíu ár. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir bíómyndir og leikrit, skrifað bækur og honum hefur brugðið fyrir í nokkrum kvikmyndum
í gegnum tíðina. Vinsæl þemu í textaskrifum hans
eru trú, dauði, ást og ofbeldi en lífshlaup hans er
afar skrautlegt. Fyrstu tuttugu ár ferilsins var hann
í heróínmóki og óttaðist að frægðarsól hans myndi
hnigna seint á tíunda áratugnum þegar hann sigrað-
ist á sprautufíkn sinni. Margar sögur hafa gengið um
Nick eftir fyrstu heimsókn hans til Íslands árið 1986
og skapaðist mikið neyðarástand þegar ekkert heróín
fannst á landinu fyrir kauða. Í flestum sögunum, sem
oft hafa birst nafnlausar á prenti hér og þar, er Nick
lýst sem miklum listamanni sem var aðframkominn
af eiturlyfjaneyslu.
Áhyggjur Nicks reyndust á veikum grunni
byggðar því að þótt tónlist hans á síðari árum sé
talsvert frábrugðin því sem aðdáendur hans vönd-
ust snemma á ferlinum stígur hann varla feilspor
þegar kemur að tónsmíðum. Persóna hans hefur
þó ekkert breyst eins og hann sagði frá í viðtali við
The Guardian árið 2005.
„Fólk heldur að maður verði góð manneskja bara
af því að maður hættir að drekka og neyta eitur-
lyfja. Það era algjört kjaftæði.“
Lilja Katrín
Gunnarsdóttir
liljakatrin@frettabladid.is
Nick kvæntist bresku fyrirsætunni Susie Bick
árið 1999 og eiga þau saman tvíburasynina Arthur og Earl
sem fæddust ári síðar. Fyrir átti Nick tvo syni, Luke, þrettán
ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni, blaðakonunni Viviane
Carneiro, og Jethro, einnig þrettán ára, sem hann á með
Beau Lazenby. Jethro starfar í fyrirsætubransanum og hitti
föður sinn ekki fyrr en hann var sjö eða átta ára.
NICK CAVE
UMLUKINN
DULÚÐ
Heimildarmyndin 20.000 Days on Earth er opnunarmynd
hátíðarinnar Reykjavík Shorts&Docs sem hefst 3. apríl. Mynd-
in fjallar um tónlistarmanninn og Íslandsvininn Nick Cave
sem er einn virtasti og hæfileikaríkasti listamaður samtímans.
Fjölskyldumaðurinn
Það kom mörgum aðdáendum
Nicks Cave í opna skjöldu þegar
tilkynnt var að Iain Forsyth og
Jane Pollard væru með heim-
ildarmynd um hann, 20.000
Days on Earth, í bígerð. Mikil
dulúð hefur fylgt þessum
merka listamanni og hefur
hann ávallt haldið einkalífi
sínu fyrir sig.
En 20.000 Days on Earth er
engin venjuleg tónlistar-
heimildarmynd. Í myndinni
spinnur Nick sjálfur senur
um sköpunarferlið sem
hann fer í gegnum í
tónlist sinni og magnar
myndin enn meira upp
þá dulúð sem umlykur
Nick frekar en að veita
innsýn í daglegt líf hans.
Í viðtali við Rolling
Stone segist hann ekki
hafa viljað gera hefð-
bundna tónlistarheim-
ildarmynd.
„Það er mikið af tón-
listarheimildarmynd-
um til. Við horfðum
á sumar þeirra og
þær gáfu okkur
frekar vísbendingu
um hvað við ættum
að forðast,“ segir Nick.
„Ég vildi ekki að ráðist yrði inn
í líf mitt. Flestar tónlistarheim-
ildarmyndir þjóna bara kynn-
ingartilgangi. Ég var tregur til
að gera myndina í byrjun því
ég hafði engan áhuga á að gera
þannig heimildarmynd,“ bætir
Nick við. Í myndinni sést Nick
ræða við sálfræðing en hann
segist aldrei hafa hitt manninn
áður en tökur hófust.
„Hann er freudískur sálgreinir.
Ég hafði aldrei hitt náungann.
Þetta er í raun ekki skrifstofa ein-
hvers. Þetta er myndver. En við
hittumst á settinu og byrjuðum
á samræðum sem vörðu í tvo
daga,“ segir Nick í viðtalinu við
Rolling Stone. Þá talar hann líka
um sína fyrstu kynlífsreynslu í
myndinni með konu sem klæddi
hann upp í kvenmannsföt. Hann
segir það að hluta til satt.
„Þessu er ritstýrt auðvitað en
ritstýring getur skemmt sann-
leikann. Þegar maður situr
með einhverjum og talar við
hann í langan tíma, nánast án
hádegishlés, verður ómögulegt
eftir smástund að passa svörin
sín. Þá segir maður bara „Æi, til
andskotans með þetta.““
Engin venjuleg mynd
Aðrir listamenn um Nick Cave
Hann er
fullkomnunarsinni
Hann efast og hefur
áhyggjur af öllu …
hann er fullkomnunarsinni. Stund-
um er eins og hann vinni of mikið
að hlutum en þrátt fyrir það og
þrátt fyrir vandamál hans með
eiturlyf og svo framvegis hefur
hann aldrei tapað skýrri sýn.
Peter Milne,
ljósmyndari og vinur hans
Kenndi mér
að fara lengra
Hann kenndi
mér að
hvarfla ekki um of frá
mínu innra eðli heldur
að fara lengra, prófa
öðru vísi hluti og missa
ekki sjónar á mínum
innsta kjarna.
Kylie Minogue,
söngkona og vinkona hans
Hrokafullur og
hefur efni á því
Ég heyrði fyrst
í Nick Cave á
sjálfstætt starfandi
útvarpsstöð í Ástralíu
og orðanotkun hans er
hrífandi. Hann er mjög
hrokafullur en hann
hefur efni á því.
Portia de Rossi,
leikkona