Fréttablaðið - 29.03.2014, Síða 38
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
GLÆSILEGAR
HURÐIR
STERKAR OG HLJÓÐEINANGRANDI
-Einfaldar í uppsetningu. Fjölbreytt úrval.
Mælum og gerum tilboð þér að kostnaðarlausu.
Það er ódýrara en þú heldur að skipta um innihurðir.
H
ja
rta
la
g
1 Hvað halda margir um þig sem er alls ekki rétt?
Að ég sé snoðaður af fúsum og
frjálsum vilja þegar ég er í raun
sköllóttur. #Einmitt
2 Hvað kæmi fólki sem kynntist þér mest á óvart?
Virðist oftast koma fólki á óvart
hvað ég er lítill. Er samt 179 cm
en var í sjónvarpi í 6–7 ár með
Sveppa og Pétur, sinn hvorum
megin, og þeir eru vel undir
meðalhæð, virkaði hávaxinn!
3 Hvað kemur út á þér tárunum?
Get orðið mjög meyr í þynnkunni
og tárast yfir myndum eins og La
Bamba og fleirum …
4 Hvað gerir þig pirraðan? Að vera í troðnum klefa eftir
lyftingar eða íþróttir og að bíða
í troðningi fyrir utan bíósal
byrjaður að svitna í úlpunni!
Snertifælni mín spilar stóra rullu
í hvoru tveggja.
5 Hvað er fyndnast í heimi? Árni Ragnar vinur minn
ofurölvi fer langt með það, hann
breytist þá í Blackout Cuz sem
er líklega það fyndnasta sem ég
veit. (Hann er feiminn edrú.)
6 Er líf á öðrum hnöttum? Já, er það ekki? Las reyndar
flott kvót um daginn: „Annað-
hvort erum við ein í veröldinni
eða ekki, hvort tveggja jafn
hræðilegt.“
7 Hvert er fallegasta hljóð sem þú hefur heyrt?
Fullur Old Trafford að fagna
marki Pauls Scholes í vinklinum
gegn Barcelona í undanúrslitum
meistaradeildarinnar 2008! Fékk
að taka þátt í því hljóði.
8 Hvað gerirðu þegar allir aðrir eru sofnaðir?
Horfi á þætti í tölvunni.
9 Í hvaða frægu persónu ertu skotinn?
Jessica Alba mætti alveg detta
í svona Notting Hill-pakka með
mér – ég er þá Hugh Grant.
10 Ef þú mættir taka eina bók, eina plötu og eina bíómynd
með þér eyðieyjuna, hvað yrði
fyrir valinu?
Bókin yrði líklegast Biblían,
ekki því að ég sé svo trúaður,
hún er bara svo löng. Platan
yrði Nevermind með Nirvana og
Dumb and Dumber yrði myndin.
11 Hver er fyrsta minningin þín?
Að langa að vera í fótbolta úti.
12 Hvað verðurðu að gera eftir fimm ár?
Kæmi mér ekki á óvart að ég yrði
kominn meira á bak við mynda-
vélina að hjálpa og leiðbeina
öðrum. En bara vonandi að vinna
eitthvað í kringum fjölmiðla, hef
mjög gaman af því.
13 70 mínútur eða Tekinn? 70 mínútur verða alltaf mitt
uppáhald í fjölmiðlum.
14 Hver var æskuhetjan þín? He-man, Jordan og Cantona.
15 Er ást í tunglinu? Er ég orð-inn svona sybbinn hérna?
Næ þessari ekki alveg …
➜ Kynnir og útvarps-
maður
Auðunn Blöndal er
landsmönnum kunn-
ur fyrir sprell fyrir
framan myndavélina
og hljóðnemann á
FM957. Núna sér
hann um að kynna
hæfileikakeppnina
Ísland Got Talent
sem er í fyrsta sinn
í beinni útsendingu
annað kvöld í opinni
dagskrá á Stöð 2.
Auðunn skaust upp á
stjörnuhimininn árið
2001 sem hjálparkokkur
í þáttunum 70 mínútur
á Popp Tíví.
YFIRHEYRSLAN: AUÐUNN BLÖNDAL FJÖLMIÐLAMAÐUR
He-Man, Jordan og Cantona
æskuhetjurnar
Spennandi íslensk hönnun til að fylgjast með á HönnunarMars
ÖRK Hliðarborð eftir Kristbjörgu Maríu
Guðmundsdóttur. Til sýnis í Kraumi í
Aðalstræti.
ELDLEIFTUR Ljós eftir Jón Helga
Hólmgeirsson vöruhönnuð, hluti af
verkefni Studiobility sem bauð vel
völdum hönnuðum að hanna nýja og
spennandi vörulínu, Selected by Bility.
Er til sýnis í Aurum í Bankastræti.
HYLUR Skrifborð eftir Guðrúnu Valdi-
mars vöruhönnuð. Hægt að skoða
í versluninni Epal.
LÍFFÆRAFRÆÐI LETURS Plaköt eftir
Sigríði Rún, grafískan hönnuð. Fæst í
Spark design space á Klapparstíg.
STAKA Fylgihlutalína eftir Maríu
Kristínu Jónsdóttur vöruhönnuð. Hægt
að skoða í 38 þrepum á Laugaveginum.
App vikunnar að þessu er smáforritið
Foodzy. Um er að ræða sniðugt app
fyrir þá sem v ilja halda utan um
mataræðið og fylgjast með hitaein-
ingunum.
Foodzy er eins konar matardagbók
sem heldur utan um það sem þú
borðar og drekkur og þar getur þú
meðal annars séð hitaeiningarnar
sem þú neytir og borið þær saman
við hitaeiningarnar sem þú brennir.
Foodzy reiknar út hitaeiningarnar,
próteinið og önnur efni sem þú
neytir. Ef þú borðar óhollt lætur
Foodzy þig vita og mælir með að þú
farir í hollari fæðu.
Þú getur fylgst með hvað vinir
þínir eru að borða með því að fylgja
þeim og einnig með því að sjá hvar
þeir eru að tékka sig inn, það er að
segja, á hvaða veitingastaði, því þú
getur tékkað þig inn á staði í appinu.
Foodzy er fáanlegt fyrir stýrikerfi
Apple og Android en ekki fyrir
Windows.
App vikunnar:
FOODZY