Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 42
Brúðkaup LAUGARDAGUR 29. MARS 20144
Það tekur að
lágmarki
klukkutíma
að róa sig
niður. Hins
vegar er ekki
gott að
geyma
vandamálin
í meri en
sólarhring.
Sérfræðingar í brúðkaupum segja að brúðarárið 2014 verði
afar rómantískt, samkvæmt því sem greint er frá í banda-
ríska vefmiðlinum Huffington Post.
Brúðkaupin verða hugljúf og hjartnæm. Það má ganga alla leið í
væmninni, fölbleikt er liturinn og rósin passar vel, eftir því sem Tara Guérard
brúðarsérfræðingur segir. „Það má horfa á rómantíkina í gömlum Hollywood-
myndum þar sem big band-hljómsveit spilar.
Tónlist frá fyrri hluta síðustu aldar á einkar vel við þennan rómantíska stíl.
Skoðið líka kvikmyndina The Great Gatsby til að fá hugmyndir.
Skreytið með rósum og kristalkertastjökum. Blómaskreytingameistarinn
Ariella Chezar sem meðal annars hefur starfað fyrir Hvíta húsið segir að
bóndarós sé blóm ársins. „Hún ilmar
vel og er falleg í blómsveigi og
blómalengjur.“
Boðskortin eiga að
vera fíngerð og
í rómantískum
stíl. Þjónustan í
veislunni á að
vera fáguð.
Brúðar-
tertan á að
vera skreytt
fínlegu
glimmeri.
Að vetrar-
lagi á kakan
að vera með
súkkulaði en
að sumrinu
með sítrónu-
bragði.
Brúðkaup í anda
The Great Gatsby
Sveindís Anna Jóhannesdótt-ir heldur námskeið fyrir verð-andi hjón og sambúðarfólk
sem nefnist: „Í upphafi skal endinn
skoða – hvernig hjónaband/sam-
band vil ég?“ Þar fer hún meðal
annars yfir þau atriði sem ein-
kenna gott hjónaband og ýmislegt
annað sem gott er að hugleiða í upp-
hafi. Innblástur námskeiðanna er
fenginn frá hjónunum John og Julie
Gottman sem reka Gottman-stofn-
unina í Bandaríkjunum, en þau
hafa helgað líf sitt því að rannsaka
hvað einkennir góð hjónabönd.
Fleiri sækja ráðgjöf fyrr
En er algengt að fólk sæki ráðgjöf
í upphafi? „Það eru sem betur fer
æ fleiri sem sjá ástæðu til þess en
sumir koma þó ekki fyrr en allt er
um seinan,“ segir hún.
Á námskeiðinu fer Sveindís yfir
þau atriði sem einkenna góð sam-
bönd. „Við tölum um traust, skuld-
bindingu, aðdáun og umhyggju en
í góðum hjónaböndum tekur fólk
hvort eftir öðru. Það er ekki nóg að
gera það bara í upphafi. Í góðum
hjónaböndum snýr fólk sér líka
hvort að öðru með þau mál sem
snerta hjónabandið. Margar konur
eiga það til dæmis til að ræða það
sem þeim liggur á hjarta varðandi
sambandið í saumaklúbbnum en
hafa kannski aldrei sagt það beint
út við makann,“ segir Sveindís.
Hún segir virðingu meðal lykil-
atriða í góðu hjónabandi og sömu-
leiðis hlustun. „Það er ástæða fyrir
því að við erum með einn munn og
tvö eyru. Stundum er okkur hollt
að hlusta meira og tala minna en
stundum getur það verið öfugt.“
Einkennandi fyrir góð hjónabönd
er ekki síst að fólk kann að leysa
ágreining. „Hann kemur alltaf upp
Í upphafi skal endinn skoða
„Hvernig hjónaband vil ég?“ er spurning sem félags- og fjölskylduráðgjafinn Sveindís Anna Jóhannsdóttir hjá Félagsráðgjafanum
ehf. telur öllum sem eru í giftingarhugleiðingum hollt að velta fyrir sér og svara. Hún segir fólk leita ráðgjafar fyrr en áður.
Það sem meðal annars
einkennir góð hjóna-
bönd er að fólk kann
að leysa ágreining.
MYND/ANDRI MARÍNÓ
og flestir þurfa að læra og temja sér
aðferðir til að takast á við hann. Ef
fólk lærir það ekki er hætta á skiln-
aði. Til að taka á ágreiningi þarf að
hafa í huga að makinn hefur áhrif
hvort sem manni líkar það betur eða
verr. Við þurfum að sætta okkur við
að það er ekki bara ein skoðun sem
ríkir. Það er annar aðili sem þarf
að taka tillit til og hefur áhrif á þá
ákvörðun sem er tekin.“
Sveindís segir mikilvægt að
kunna að tala saman um vanda-
málin og það sem ekki ríkir ein-
hugur um. „Það er mikil gæfa að
geta talað saman á rólegu nót-
unum. Auðvitað kemur það fyrir
alla að missa sig í æsing en þá er
mikilvægt að kunna aðferðir til
að stoppa og róa sig. Sumir þurfa
að fara í annað herbergi, aðrir
út í bílskúr en sumum dugar að
hvíla umræðuna og gera eitthvað
annað. Þess ber að geta að enginn
ætti að setjast æstur undir stýri.
Þá er gott að hafa það í huga að það
tekur að lágmarki klukkutíma að
róa sig alveg niður. Hins vegar er
ekki gott að geyma vandamálin
lengur en í sólarhring.“
Mikilvægt að vanda sig
Sveindís segir mikilvægt að vanda
sig í samskiptum við sína nánustu.
„Okkur hættir til að koma verst
fram við þá sem við elskum mest.
Þá látum við grímuna falla og leyf-
um okkur óbeislaðri framkomu.“
Sveindís mælir með því að fólk
leiti sér hjálpar ef það hefur glímt
við einhvern samskiptavanda í
meira en sex mánuði. „Oft þarf
ekki nema 1-4 viðtöl til að fólki fari
að líða betur og samskipti verði
betri. Ráðgjafinn leysir hins vegar
ekki vandamálin. Ég líki þessu oft
við að vera þjálfari á kantinum.
Hann skipuleggur æfingar og
leggur upp plan en það eru leik-
mennirnir sem skapa nauðsynlega
liðsheild og skora mörkin.“
Sveindís segir mikilvægt fyrir
hvert par að staldra stundum við,
líta fram á veg og ákveða hvert það
vilji stefna. „Það er upplagt að gera
það fyrir brúðkaup en þá hefur
fólk oft verið saman í einhvern
tíma. Á þessum tímamótum getur
verið gott að fara yfir hvaða hefð-
ir og venjur á að viðhafa, kanna
hvaða afstöðu fólk hefur til starfs-
frama, uppeldis, barneigna og ótal
annarra mála.“ - ve
Næstu námskeið Sveindísar eru
23. apríl og 30. maí. Nánari upp-
lýsingar er að finna á
www.felagsradgjafinn.is
Fagnaðu stóra
deginum í Hörpu
Fáðu tilboð: veislur@harpa.is eða 528 5070
Við sjáum um að útfæra brúðkaupsveisluna með þér, eins og þú vilt hafa hana.
Úrvals aðstaða, glæsilegir salir og hagstætt verð — og útsýnið er innifalið.