Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 46
LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Jógvan, sem er einn vinsælasti brúðkaupssöngvari lands-ins, segist búast við að hann
taki lagið fyrir Hrafnhildi á þess-
um stóra degi. Þau eru búin að
vera lengi saman og eiga tvö börn,
Sonur þeirra, Jóhannes Ari Han-
sen, er rúmlega tveggja ára og
dóttirin, Ása María Hansen, er
fimm mánaða. „Giftingin verð-
ur í Hallgrímskirkju. Okkur veitir
ekki af því að hafa stóra kirkju því
gestalistinn er langur,“ segir brúð-
guminn. „Ég á stóran frændgarð
í Færeyjum og margir koma til að
vera viðstaddir brúðkaupið. Hér á
landi hef ég starfað í tíu ár og eign-
ast marga góða vini. Hrafnhildur
á einnig stóra fjölskyldu. Mín ósk
væri að bjóða öllum en það hefði
orðið ansi dýrt. Listinn hljóð-
aði fyrst upp á 270 manns en við
urðum að skera hann niður í tvö
hundruð gesti,“ segir Jógvan.
Þjóðlegir forréttir
„Veislan verður á Hilton-hót-
eli um kvöldið og fyrst ætlum við
að bjóða þjóðlega for-forrétti frá
löndum okkar. Gestir fá meðal
annars að smakka skerpukjöt
frá Færeyjum og hákarl og súra
punga frá Íslandi. Í brúðkaup-
um í Færeyjum er alltaf boðið upp
á svokallaðan hurðasnaps sem
er afhentur þegar gestir ganga í
salinn og svo verður einnig hjá
okkur. Eftir það verður glæsi-
leg matarveisla, dans og gleði og
fullt af tónlistarmönnum og öðru
skemmtilegu fólki,“ segir hann
enn fremur.
Hrafnhildur er búin að finna
rétta brúðardressið en Jóg van
er enn að velta vöngum.
„Ég er varla byrjaður að
pæla í þessum hlutum.
Veit ekki hvort ég verð
í smóking, kjólföt-
um, jakkafötum eða
bara færeyska þjóð-
búningnum,“ segir
hann og hlær en
bætir við að Hrafn-
hildi lítist ekki á
það síðastnefnda.
Bónorð á tónleikum
Þegar hann er spurð-
ur hvort hann hafi farið
á hnén og beðið hennar að
herrasið, svarar hann: „Ég fór
reyndar ekki á skeljarnar. Það
hafði verið lengi í bígerð hjá mér
að biðja hennar en ég beið alltaf
eftir réttu stundinni. Eiginlega var
ég orðinn hálf stressaður á þessu.
Þegar Hrafnhildur gaf mér miða
á tónleika með Michael Bublé í
London síðastliðið sumar vissi ég
að hin fullkomna stund væri að
renna upp. Friðrik Ómar söngvari
og Ingibjörg Kristjánsdóttir fóru
með okkur á tónleikana og urðu
vitni að bónorðinu sem fram fór
þegar Bublé söng uppáhaldslag-
ið okkar, Every thing. Ég var löngu
búinn að kaupa hringana og það
var erfitt að fela þá allan tímann.
Heitt var í London og ég þurfti að
vera léttklæddur sem gerði þetta
enn verra, eiginlega enginn felu-
staður nema nærbuxurnar,“ segir
hann hlæjandi.
„Um mitt lagið stóð ég upp og
bað hennar,“ segir Jógvan og bætir
við að þá hafi fallið nokkur tár hjá
þeim öllum fjórum. „Þetta var há-
tíðleg stund,“ segir hann en
síðan var skálað í kampavíni
eftir tónleikana. „Hrafn-
hildur fékk óáfengt, enda
var hún ófrísk.“
Ást og Með þér
Jógvan segir að nokk-
ur lög séu vinsælli en
önnur í brúðkaup-
um. „Það er sérstakt
að syngja í brúð-
kaupum því þetta er
svo persónuleg stund.
Allir eru glæsilega
klæddir og það mynd-
ast alltaf sérstök stemn-
ing. Ég er oftast beðinn að
syngja lagið Ást eftir Magn-
ús Þór Sigmundsson og Með þér
eftir Bubba Morthens. Í einu brúð-
kaupi var ég beðinn um að syngja
Elvis Presley-lög í kirkjunni en í
það skiptið var brúðguminn mik-
ill aðdáandi hans. Það kemur fyrir
að fólk biðji um lag þar sem textinn
á ekki við svona athöfn og þá bendi
ég á það. Ég aðstoða brúðhjónin
með lög ef þau eru ekki ákveðin og
læt þau hafa viðeigandi lagalista.“
Jógvan segist ekki vera búinn að
velja lögin í sitt eigið brúðkaup. Það
er þó eitt lag sem verður örugglega
flutt en ég get ekki sagt hvaða lag
það er. Veislan verður skemmtileg,
Færeyingar og Íslendingar kunna
að skemmta sér saman. Ég hlakka
mikið til þessa dags og tíminn
líður hratt.“ - ea
Bónorðið fór
fram þegar
Bublé söng
uppáhaldslagið okkar,
Everything.
Bónorð á tónleikum
Michael Bublé
Jógvan Hansen söngvari og unnusta hans, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, ganga í
það heilaga 12. júlí næstkomandi í Hallgrímskirkju. Brúðkaupsundirbúningur
er í fullum gangi og gert er ráð fyrir tvö hundruð gestum í glæsilega veislu.
Hann bað hennar á tónleikum og veislan verður glæsileg. Hún verður haldin á Hilton-
hóteli en athöfnin sjálf fer fram í Hallgrímskirkju. MYND/VALLI
Jógvan og Hrafnhildur með Jóhannes
Ara og Ásu Maríu. Spennandi tímar fram
undan hjá fjölskyldunni. MYND/VALLI
Síðan 1844 hefur Kahla framleitt vandað postulín
sem fer jafn vel í hendi og hillu. Kahla hefur unnið
til fjölda verðlauna og er alltaf við hæfi hvort sem
það er í matarboði með öllum vinahópnum eða yfir
sunnudagskaffinu með ömmu.
laugavegi 47, opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-17 www.kokka.is kokka@kokka.is
Arfur