Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 48
Brúðkaup LAUGARDAGUR 29. MARS 201410
T jull og blúnduermar eru allsráðandi í brúðarkjól-um þetta árið og aug-
ljóst að áhrifa frá brúðarkjól Kate
Middleton sem giftist Vilhjálmi
Bretaprins árið 2011 gætir enn, en
hann var einmitt prýddur síðum
blúnduermum. Sá kjóll þótti inn-
blásinn af brúðarkjól leikkonunn-
ar Grace Kelly sem gekk að eiga
Rainier fursta af Mónakó árið
1956. Kjóll hennar var
mjög áþek kur kjól
Kate en með ögn
hærri kraga.
Fyrir nokkrum
árum réðu ein-
faldir, erma-
lausir sat ín-
brúðarkjólar
ríkjum en nú
er horft til fortíðar og flestir kjólar
skreyttir einhvers konar blúnd-
um. Þær gefa rómantískt og
dálítið gamaldags yfir-
bragð og mun þeim án
efa skjóta upp aftur
og aftur.
- ve
Blúndum prýddir kjólar
Ermalausir satínbrúðarkjólar hafa lengi ráðið ríkjum en nú eru blúndurnar komnar aftur.
Kjóll úr
smiðju
Atelier
Pronovias.
Áhrifa frá
brúðarkjól Kate
Middleton, sem
giftist Vilhjálmi Bretaprins,
árið 2011 gætir enn,
en hennar kjóll þótti
líkjast kjól Grace Kelly
sem giftist Rainier fursta
af Mónakó.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kjóll úr
haustlínu
Kenneth Pool
2014.
Kjóll úr
haustlínu
Anna Maier /
Ulla-Maija.
Tjullkjóll með
blúndum
frá WTOO -
Watters.
Það er margt leyfilegt þegar kemur að brúðargreiðslu. Fléttur eru enn vinsæl-
ar, sömuleiðis sítt, slegið hár með léttum krullum og loks hnútur í hnakka.
Kjóllinn skiptir máli þegar greiðslan er valin, hvort hann er einfaldur eða
mikið skreyttur. Þannig er best að ráðfæra sig við hárgreiðslumeistarann
þegar kjóllinn hefur verið ákveðinn. Slör, kóróna, blóm eða hattur – allt
þetta er gjaldgengt svo framarlega sem það passar kjólnum.
Engin greiðsla er rétt og hún þarf ekki að vera flókin. Samkvæmt banda-
ríska tískutímaritinu InStyle er einfaldleiki ríkjandi í hártísku. Það sást á rauða
dreglinum þegar Óskarsverðlaunin voru afhent. Stjörnurnar á rauða dregl-
inum eru tískuleiðandi, enda hafa þær fengið færustu sérfræðinga til að
draga fram allt það besta í útliti sínu.
Sú sem er nefnd á nafn þegar kemur að því að sækja sér fyrirmynd
er Jessica Alba. Hún er með sítt hár og málar sig lítið. „Ekta brúð-
kaupsútlit,“ segir í blaðinu InStyle.
Brúðargreiðslan 2014
Brúðargreiðslurnar í ár eru látlausar. Mjúkir liðir, fléttur og
snúðar eru hvað mest áberandi.
Greiðslurnar eru látlausar ● Frá brúðarsýningu í New York fyrir árið 2014. Fléttur eru enn
vinsælar ● Brúðarsýning í New York, Margar fyrirsæturnar voru með háan snúð eða snúð í hnakk-
anum. Auðvelt er að setja skraut í hárið með þessari greiðslu eða sleppa því alveg.
Ef þú ætlar að
gifta þig á árinu
skaltu skoða
myndir af leik-
konunni Jessicu
Alba. Hún þykir
hafa brúðarútlit.
Snyrtivörurnar frá Kardashian Beauty
er komin til landsins
Kíktu á www.verdia.is