Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 90

Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 90
Brúðkaup LAUGARDAGUR 29. MARS 201412 Við kynntumst í búninga-partíi þar sem ég var máluð sem svört kona í gordjöss, senegölskum kjól en Erlendur var íklæddur skotapilsi. Það var ást við fyrstu sýn og síðan höfum við ekki sleppt hvort öðru,“ segir Fjóla um örlagaríkt fertugsafmæli sameig- inlegrar vinkonu þeirra Erlends. „Við vissum frá fyrstu stundu að þetta væri stóra ástin í lífinu,“ segir Fjóla, sem átta mánuðum síðar fékk rómantískt bónorð. „Erlendur bað mín á aðfanga- dagskvöld 2012, eftir jólastund- ir með stórfjölskyldunni. Þá batt hann fyrir augu mér og keyrði langt út í buskann, að mér fannst, en reyndist vera akstur upp og niður Öskjuhlíð. Bíllinn stöðvað- ist svo við Hótel Natura þar sem blikandi kertaljós lýstu upp bleiku svítuna og þar kraup Erlendur og bað mín með gullhringa í öskju. Ég játaðist honum auðvitað strax og við áttum jólanóttina í svítunni.“ Brúðarkjóll frá Afríku Undirbúningur að brúðkaupinu hófst fljótt og var brúðkaupsdag- urinn ákveðinn 20. júlí í fyrra. „Við erum bæði hrifin af bún- ingum og sérstaklega heilluð af klæðaburði miðalda,“ segir Fjóla um klæðaburð gestanna sem fengu boð um að mæta í búning- um frá 14. til 18. aldar. „Ég átti kynstrin öll af mið- aldalegu efni í bláum og grænum lit sem ég ætlaði að nota í dúka en endaði með að sauma úr þrettán brúðarmeyjakjóla á vinkonuhóp- inn. Á vini brúðgumans voru svo saumaðar skikkjur með hettum og saman stóðu þau heiðursvörð.“ Fjóla bjó og starfaði í Senegal áður en hún kynntist Erlendi og lét sauma á sig brúðarkjólinn þar. „Í Senegal eru litlar saumastof- ur á hverju horni og afríkst hand- verk óskaplega fagurt. Ég sendi því málin mín út ásamt skýring- armynd og efni og sex vikum síðar kom kjóllinn heim og smellpassaði á mig,“ segir Fjóla um gullfallegan brúðarkjólinn. Erlendur klæddist skyrtu í stíl breskra hefðarmanna á miðöld- um, vesti og gulum buxum. „Skyrtuna saumaði móðir hans heitin fyrir lokaverkefnið í leiklist- arskólanum og í raun merkilegt að hafa átt svo hjartfólgna hluti úr fortíðinni sem hæfðu þema mið- aldabrúðkaupsins. Þannig drukk- um við brúðarskál úr bikurum sem ég gaf foreldrum mínum í brúðkaupsafmælisgjöf, þá tíu ára.“ Hressandi og rómantískt Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson gaf Fjólu og Erlend saman í Reyk- holti en brúðkaupsveislan var haldin á Bifröst. „Brúðkaupsdagurinn var full- kominn og undirbúningur hans endalaust ævintýri,” segir Fjóla. „Þannig fór ég á miðnætti undir Snæfellsjökul að sækja Djúpalóns- perlur fyrir borðmerkingar og Er- lendur útbjó brúðarvöndinn úr blómum úr náttúru Bifrastar.” Þegar athöfnin hófst gengu hettuklæddir menn inn kirkju- gólfið undir þunglamalegri tónlist kantötunnar Carmina Burana. „Það var til gamans gert og fór uggur um kirkjugesti en við tók glaðlegur brúðarmars í f lutningi dóttur brúðgumans og vinkonu hennar á harmóníku og horn.“ Í kirkjunni söng Erlendur þrjú lög til eiginkonu sinnar og sem hjón gengu þau út syngjandi og allir tóku undir: „Líttu á lífsins björtustu hlið“, sem frægt var með Monty Python-genginu. „Athöfnin var bæði hressandi og rómantísk. Ég fann svo vel að ég var að gera rétt og vöknaði um augu þegar presturinn talaði um þýð- ingu hjónabandsins. Þá brynntu margir músum þegar Erlendur söng til mín, en aðallagið var Space Oddity eftir David Bowie þar sem kunnugir vita að ég hef verið Lady Stardust frá unglingsaldri.“ Ástarbarn fætt Brúðkaupsveislan stóð fram á rauðamorgun og kvöddu brúð- hjónin veislugesti á sjöunda tíma morgunsársins. „Upp úr stendur hamingjan og gleði ástvina. Úr brúðkaupinu fórum við í rómantískt sumarhús og áttum þar fáeina hveitibrauðs- daga, en síðar í brúðkaupsferð og dekur til Krítar sem við unnum í brúðkaupsleik Rásar 2.“ Blint bónorð á aðfangadagskvöld Hugblær miðalda sveif yfir vötnum þegar leikarinn Erlendur Eiríksson og Fjóla Einarsdóttir þróunar- og stjórnmálafræðingur gengu í heilagt hjónaband í sumarskrúða borgfirskrar náttúru. Gullbryddaður brúðarkjóll Fjólu var handsaumaður í Senegal. Erlendur og Fjóla með börnum sínum (til vinstri) og veislustjórunum, þeim Brynju Valdísi Gísladóttur leikkonu og Sesselju Thorberg innanhússhönnuði. Rómantíkin sveif yfir vötnum í fögru umhverfi Hreðavatns þar sem Erlendur fór á hnén til að kyssa á hönd Fjólu. Fjólu finnst miklu muna fyrir þau Erlend að vera orðin hjón. „Maður skynjar svo vel að hjónabandið er til lífstíðar og að saman munum við ganga í gegn- um súrt og sætt. Hjónabandinu fylgir líka meiri nánd og öryggis- kennd; það kvikna nýjar tilfinn- ingar og annar hugsunarháttur. Þegar maður hefur svo eignast ást- arbarn í þokkabót erum við orðin sannkölluð fjölskylda,“ segir Fjóla sem á hveitibrauðsdögunum upp- götvaði að hún væri barnshafandi. Fyrir átti hún tvítugan son og Er- lendur fimmtán ára dóttur en í mars fæddist þeim ástarbarnið Eiríkur Sæberg. - þlg EF ÞIG DREYMIR GIFTINGARHRING Giftingarhringurinn er tákn um eilífa ást og má rekja sögu hans allt aftur til Forn-Grikkja. Það er talið tákna hamingju að dreyma giftingarhring. Ef ógift/ur finnur giftingarhring í draumi gæti það þýtt að meiri alvara sé að færast í ástarsamband viðkomandi. Ef gift fólk dreymir að það týni giftingarhring gæti það verið merki um hjónabandserfiðleika. Ef hringurinn finnst aftur í draumnum mun vandamálið vera smávægilegt og auðvelt að leysa. Heimild: www.draumur.is MYNDIR/ANNA ÓLÖF KRISTJÁNSDÓTTIR www.siggaogtimo.is Verð kr. 144.000.- parið BRÚÐKAUPSGJAFIR TILBOÐ - mikið af frábærum tilboðum Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.