Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 90
Brúðkaup LAUGARDAGUR 29. MARS 201412
Við kynntumst í búninga-partíi þar sem ég var máluð sem svört kona í gordjöss,
senegölskum kjól en Erlendur var
íklæddur skotapilsi. Það var ást við
fyrstu sýn og síðan höfum við ekki
sleppt hvort öðru,“ segir Fjóla um
örlagaríkt fertugsafmæli sameig-
inlegrar vinkonu þeirra Erlends.
„Við vissum frá fyrstu stundu að
þetta væri stóra ástin í lífinu,“ segir
Fjóla, sem átta mánuðum síðar
fékk rómantískt bónorð.
„Erlendur bað mín á aðfanga-
dagskvöld 2012, eftir jólastund-
ir með stórfjölskyldunni. Þá batt
hann fyrir augu mér og keyrði
langt út í buskann, að mér fannst,
en reyndist vera akstur upp og
niður Öskjuhlíð. Bíllinn stöðvað-
ist svo við Hótel Natura þar sem
blikandi kertaljós lýstu upp bleiku
svítuna og þar kraup Erlendur og
bað mín með gullhringa í öskju. Ég
játaðist honum auðvitað strax og
við áttum jólanóttina í svítunni.“
Brúðarkjóll frá Afríku
Undirbúningur að brúðkaupinu
hófst fljótt og var brúðkaupsdag-
urinn ákveðinn 20. júlí í fyrra.
„Við erum bæði hrifin af bún-
ingum og sérstaklega heilluð af
klæðaburði miðalda,“ segir Fjóla
um klæðaburð gestanna sem
fengu boð um að mæta í búning-
um frá 14. til 18. aldar.
„Ég átti kynstrin öll af mið-
aldalegu efni í bláum og grænum
lit sem ég ætlaði að nota í dúka en
endaði með að sauma úr þrettán
brúðarmeyjakjóla á vinkonuhóp-
inn. Á vini brúðgumans voru svo
saumaðar skikkjur með hettum og
saman stóðu þau heiðursvörð.“
Fjóla bjó og starfaði í Senegal
áður en hún kynntist Erlendi og
lét sauma á sig brúðarkjólinn þar.
„Í Senegal eru litlar saumastof-
ur á hverju horni og afríkst hand-
verk óskaplega fagurt. Ég sendi
því málin mín út ásamt skýring-
armynd og efni og sex vikum síðar
kom kjóllinn heim og smellpassaði
á mig,“ segir Fjóla um gullfallegan
brúðarkjólinn.
Erlendur klæddist skyrtu í stíl
breskra hefðarmanna á miðöld-
um, vesti og gulum buxum.
„Skyrtuna saumaði móðir hans
heitin fyrir lokaverkefnið í leiklist-
arskólanum og í raun merkilegt
að hafa átt svo hjartfólgna hluti úr
fortíðinni sem hæfðu þema mið-
aldabrúðkaupsins. Þannig drukk-
um við brúðarskál úr bikurum
sem ég gaf foreldrum mínum í
brúðkaupsafmælisgjöf, þá tíu ára.“
Hressandi og rómantískt
Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson
gaf Fjólu og Erlend saman í Reyk-
holti en brúðkaupsveislan var
haldin á Bifröst.
„Brúðkaupsdagurinn var full-
kominn og undirbúningur hans
endalaust ævintýri,” segir Fjóla.
„Þannig fór ég á miðnætti undir
Snæfellsjökul að sækja Djúpalóns-
perlur fyrir borðmerkingar og Er-
lendur útbjó brúðarvöndinn úr
blómum úr náttúru Bifrastar.”
Þegar athöfnin hófst gengu
hettuklæddir menn inn kirkju-
gólfið undir þunglamalegri tónlist
kantötunnar Carmina Burana.
„Það var til gamans gert og fór
uggur um kirkjugesti en við tók
glaðlegur brúðarmars í f lutningi
dóttur brúðgumans og vinkonu
hennar á harmóníku og horn.“
Í kirkjunni söng Erlendur þrjú
lög til eiginkonu sinnar og sem
hjón gengu þau út syngjandi og
allir tóku undir: „Líttu á lífsins
björtustu hlið“, sem frægt var með
Monty Python-genginu.
„Athöfnin var bæði hressandi og
rómantísk. Ég fann svo vel að ég var
að gera rétt og vöknaði um augu
þegar presturinn talaði um þýð-
ingu hjónabandsins. Þá brynntu
margir músum þegar Erlendur
söng til mín, en aðallagið var Space
Oddity eftir David Bowie þar sem
kunnugir vita að ég hef verið Lady
Stardust frá unglingsaldri.“
Ástarbarn fætt
Brúðkaupsveislan stóð fram á
rauðamorgun og kvöddu brúð-
hjónin veislugesti á sjöunda tíma
morgunsársins.
„Upp úr stendur hamingjan
og gleði ástvina. Úr brúðkaupinu
fórum við í rómantískt sumarhús
og áttum þar fáeina hveitibrauðs-
daga, en síðar í brúðkaupsferð og
dekur til Krítar sem við unnum í
brúðkaupsleik Rásar 2.“
Blint bónorð á aðfangadagskvöld
Hugblær miðalda sveif yfir vötnum þegar leikarinn Erlendur Eiríksson og Fjóla Einarsdóttir þróunar- og stjórnmálafræðingur
gengu í heilagt hjónaband í sumarskrúða borgfirskrar náttúru. Gullbryddaður brúðarkjóll Fjólu var handsaumaður í Senegal.
Erlendur og Fjóla með börnum sínum (til vinstri) og veislustjórunum, þeim Brynju Valdísi Gísladóttur leikkonu og Sesselju Thorberg
innanhússhönnuði.
Rómantíkin sveif yfir vötnum í fögru
umhverfi Hreðavatns þar sem
Erlendur fór á hnén til að kyssa á
hönd Fjólu.
Fjólu finnst miklu muna fyrir
þau Erlend að vera orðin hjón.
„Maður skynjar svo vel að
hjónabandið er til lífstíðar og að
saman munum við ganga í gegn-
um súrt og sætt. Hjónabandinu
fylgir líka meiri nánd og öryggis-
kennd; það kvikna nýjar tilfinn-
ingar og annar hugsunarháttur.
Þegar maður hefur svo eignast ást-
arbarn í þokkabót erum við orðin
sannkölluð fjölskylda,“ segir Fjóla
sem á hveitibrauðsdögunum upp-
götvaði að hún væri barnshafandi.
Fyrir átti hún tvítugan son og Er-
lendur fimmtán ára dóttur en í
mars fæddist þeim ástarbarnið
Eiríkur Sæberg. - þlg
EF ÞIG DREYMIR GIFTINGARHRING
Giftingarhringurinn er tákn um eilífa ást og
má rekja sögu hans allt aftur til Forn-Grikkja.
Það er talið tákna hamingju að dreyma
giftingarhring. Ef ógift/ur finnur giftingarhring í
draumi gæti það þýtt að meiri alvara sé að færast í
ástarsamband viðkomandi. Ef gift fólk dreymir að það
týni giftingarhring gæti það verið merki um hjónabandserfiðleika. Ef
hringurinn finnst aftur í draumnum mun vandamálið vera smávægilegt
og auðvelt að leysa. Heimild: www.draumur.is
MYNDIR/ANNA ÓLÖF KRISTJÁNSDÓTTIR
www.siggaogtimo.is
Verð kr. 144.000.- parið
BRÚÐKAUPSGJAFIR
TILBOÐ
- mikið af frábærum tilboðum
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955