Fréttablaðið - 29.03.2014, Page 110
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50TÍMAMÓT
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu, móður, ömmu og systur,
SESSELJU GUNNARSDÓTTUR
Steinási 9, Garðabæ.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi,
deild 11E, einnig heimahlynningu Karítas fyrir frábæra umönnun.
Einnig viljum við þakka öllu því góða fólki sem studdi hana
í veikindum hennar.
Eggert Kristinsson
Hildur Eggertsdóttir og börn
Ástríður Gunnarsdóttir Trausti Gunnarsson
Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu
og heiðruðu minningu
STEINUNNAR J. STEINSEN
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
Sunnuhlíðar fyrir góða umönnun og séra
Braga Skúlasyni fyrir aðstoðina.
Rúnar Steinsen Guðrún Guðmundsdóttir
Steinn Steinsen Ásta María Björnsdóttir
Anna Steinsen Sigurður Már Einarsson
Ragnheiður Steinsen
Rakel Steinsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS JÓNS FINNSSONAR
frá Siglufirði,
Melseli 22, Reykjavík.
Elsebeth Finnsson
Kristinn Gunnarsson Lilja K. Hallgrímsdóttir
Ásta María Gunnarsdóttir
Rafn Gunnarsson
Anna Gunnarsdóttir
Súsanna Gunnarsdóttir Jón Vilhjálmsson
Bylgja Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EIRÍKUR ÁSGEIRSSON
vélvirki,
Vesturbergi 72,
lést í faðmi fjölskyldunnar á gjörgæsludeild
Landspítala við Hringbraut þann 15. mars sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks
deilda 12E og 12B fyrir góða umönnun.
Kristjana B. Þórarinsdóttir Sigurður G. Gunnarsson
Kolbrún Þórarinsdóttir
Bára Þórarinsdóttir
Guðmundur Á. Eiríksson Elínborg W. Halldórsdóttir
Ingibjörg Eiríksdóttir Sigurður Sigurðsson
Anna S. Eiríksdóttir Einar Kr. Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
551 3485 • udo.is
Óli Pétur
út fararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
út fararþjónusta
Davíð
út fararstjóri
Þennan dag árið 1947 hófst kröftugt
Heklugos rétt fyrir klukkan sjö að
morgni. Þá hafði Hekla sofið þyrni-
rósarsvefni í 102 ár. Var líkast því sem
fjallstindurinn lyftist að því er heimildir
herma. Samtímis kváðu við ægilegir
dynkir sem heyrðust næstum um allt
land en nokkru áður en gosið hófst
höfðu fundist jarðskjálftakippir um
mestallt Suðurland.
Fjallið spjó miklu magni af ösku og
vikri yfir landið á fyrsta degi, gos-
mökkurinn náði upp í 30 kílómetra hæð
og aska barst til Bretlands og jafnvel
Finnlands. Vindur stóð af norðri og varð
mest öskufall í innri hluta Fljótshlíðar
og í Vestur-Eyjafjallahreppi.
Sjórinn umhverfis Vestmannaeyjar
varð líka biksvartur af ösku og þar varð
svo dimmt í lofti að öll skip sigldu með
ljósum.
Tveir hraunstraumar runnu niður
fjallið á fyrsta degi, annar norðaustan
af Hekluöxl innri en hinn í austur frá
fjallinu norðanverðu. Auk þess sáust
eldar víðar.
ÞETTA GERÐIST 29. MARS 1947
Hekla vaknaði af værum blundi
Ég er prófessor í
verkfræði og líka
tónlistarmaður,
sem ekki er algeng
samsetning,“ segir
Egi l l Benedikt
Hreinsson sem á
sunnudaginn held-
ur tónleika í Hann-
esarholti ásamt
tríói sínu sem nefn-
ist FLEY. Tilefnið er margþætt, meðal
annars útkoma fræðibókarinnar „End-
urnýjanleg raforka“ eftir Egil sem
kom út seint á síðasta ári. Auk þess eru
þetta baráttutónleikar fyrir samþætt-
ingu lista, vísinda, sköpunar og tækni
í akademísku starfi og fyrir gagn-
kvæmri virðingu og virðisauka í sam-
þættingu þessara greina. „Já, þetta
er allt saman aðskilið í dag, vísindin
sér og listirnar sér og að mínu mati er
það röng stefna,“ segir Egill. „Það á að
tengja þetta miklu meira saman. Það
vantar til dæmis algjörlega listadeild í
Háskóla Íslands þannig að menn gætu
farið á milli deilda og sótt sér það
besta úr báðum greinum. Það er bara
hluti af eðlilegu háskólastarfi. Ég held
að þessi aðskilnaður verði til þess að
það skorti skilning á milli þeirra sem
stunda þessar greinar.“
Egill segist lengi hafa staðið sitt á
hvað í geirum vísindanna og listanna
og hann þekki því þessa gjá af eigin
raun. „Í Háskóla Íslands er enginn
vettvangur fyrir listamenn og það
gengur svo langt að þér er bannað að
stunda einhverja listastarfsemi með
vísindunum. Ég get nefnt það sem
dæmi, án þess ég vilji ræða það frek-
ar, að ég fékk skriflegt bann frá yfir-
mönnum mínum í Háskólanum við því
að stunda píanóleik sem aukastarf.
Þess vegna eru þetta baráttutónleikar
því það gengur náttúrulega ekki að
banna mönnum að spila á píanó.“
Með Agli í tríóinu eru Gunnar
Hrafnsson bassaleikari og Kjart-
an Guðnason trommuleikari og þeir
munu leika sígrænar djassperlur
meðal annars eftir Gylfa Þ. Gíslason,
Dave Brubeck og Oscar Peterson.
Tónleikarnir verða í Hannesarholti
og hefjast klukkan 16.30 á morgun.
fridrikab@frettabladid.is
Berst gegn aðskilnaði
vísinda og lista
Egill Benedikt Hreinsson, prófessor í verkfræði við HÍ, heldur á morgun tónleika til að
berjast fyrir samþættingu vísinda og lista í akademísku starfi .
DJASSTRÍÓIÐ FLEY Með Agli leika þeir Gunnar Hrafnsson og Kjartan Guðnason.
það
gengur
náttúrulega
ekki að
banna mönn-
um að spila á
píanó.