Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 134

Fréttablaðið - 29.03.2014, Side 134
29. mars 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 74 SKIPULEGGUR LÍFIÐ Í KRINGUM FÓTBOLTA Stefán Pálsson, sagnfræðingur og erkinörd, stendur nú í ströngu við að skrifa hundrað bloggpistla um hina ýmsu fótboltaleiki sem hann man eftir. Pistlarnir eru orðnir fjörutíu talsins en Stefán telur sig eiga nóg efni í sextíu pistla til viðbótar. Stefán hefur nú þegar sagt frá því þegar hann missti nærri af eigin brúð- kaupi vegna leiks Víkings og FH og þegar hann dró aldraðan afa sinn með sér á KR-krána Rauða ljónið til að horfa á heimsmeistaramótið árið 1994. - ssb Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu www.lodur.is - Sími 544 4540 Viltu vinna miða á Justin Timberlake? Opið allar helgar á Fiskislóð 29 8:00-19:00 virka daga og 10:00-18:00 um helgar Löður dregur út tvo miða fyrir einn heppinn föstudaginn 4 apríl! Farðu á Facebook-síðu Löðurs og taktu þátt. Þú gætir verið að fara á Justin Timberlake í ágúst. VARABORGARFULLTRÚI VILLIST Í MIÐBÆNUM Diljá Ámundadóttir, frambjóðandi Bjartrar framtíðar til borgarstjórnar- kosninga, rammvilltist á ferðum sínum í Grjótaþorpinu í miðborginni í gær, en það er sennilega ekki oft sem varaborgarfulltrúi villist í heimabænum. Diljá sagði frá þessu á Facebook-síðu sinni. Diljá rankaði við sér í fallegum bakgarði í Kvosinni. Aðspurð sagðist hún vonast til þess að villast oftar og fá þannig tækifæri til að sjá nýjar hliðar á Reykjavík. Heimildir Fréttablaðsins herma að tískumerkið Ella, með hönnuðinn Elínrósu Líndal fremstan í flokki, blási til teitis í kvöld á fyrstu hæð Gamla bíós. Mikil leynd hvílir yfir partíinu en samkvæmt heimildum blaðsins er búið að hand- velja gesti sem þurfa sérstakt vegabréf til að komast inn í teitið. Er þetta partí hugsað sem framhald af tískusýningu Ellu á RFF og eins konar lokahnykkur á herlegheitin. - lkg DULARFULLT PARTÍ „Þegar það lá ljóst fyrir að Broadway í Ármúla myndi loka, ákváðum við að hóa saman eldri og yngri starfsmönn- um, skemmtikröftum og velunnurum á einu veglegu lokakvöldi áður en Broad- way verður lokað endanlega,“ segir Hörður Sigurjónsson, fyrrverandi yfir- þjónn á Broadway, en hann starfaði þar í fimmtán ár. Nú liggur ljóst fyrir að þann 11. apríl næstkomandi verður síð- asta kvöldið sem eitthvað verður um að vera á Broadway. „Það hafa auðvitað einhverjar þúsundir unnið og skemmt á stöðunum þremur þannig það verð- ur eflaust talsvert af fólki. Það komast um 2.500 manns fyrir þannig að það er nóg pláss fyrir almenna gesti og vel- unnara,“ segir Hörður. Broadway var stofnað í Álfabakka 6. nóvember árið 1981 af Ólafi Laufdal og varð fljótlega vinsælasti veitingastaður landsins. „Hótel Ísland var svo opnað í Ármúla árið 1986 en Broadway verður þó áfram í Álfabakka í einhvern tíma. Svo flutti Broadway á Hótel Ísland.“ Á lokakvöldi Broadway kemur fram fjöldi listamanna sem tengjast staðn- um. „Það ætla skemmtikraftar sem skemmt hafa á stöðunum í gegnum árin að koma fram á lokakvöldinu eins og Stjórnin, sem var einmitt húshljóm- sveit á Hótel Íslandi á sínum tíma, Reg- ína Ósk, Bryndís Ásmundsdóttir, Ari Jónsson, Einar Júlíusson, gamlir diskó- tekarar og margir fleiri listamenn,“ segir Hörður um lokakvöldið. Myndum af starfsmönnum í leik og starfi verður varpað á stórt tjald á lokakvöldinu. Broadway hýsti fjölda sýninga, tón- leika og skemmtana og hefur skipað stórt hlutverk í menningarlífi Íslend- inga þau ár sem starfsemin hefur verið í gangi. Þar hafa komið fram listamenn á borð við Tom Jones, Jerry Lee Lewis, Fats Domino, The Shadows, The Strokes, Nick Cave, Rod Stewart og ógrynni fleiri heimsþekktra nafna í tónlistargeiranum. Forsala á þennan merkilega við- burð verður miðvikudaginn 9. apríl og fimmtudaginn 10. apríl. gunnarleo@frettabladid.is Broadway kveður fyrir fullt og allt Skemmti- og veitingastaðurinn Broadway kveður með glæsibrag þann 11. apríl næstkomandi. Á lokakvöldinu ætla gamlir starfsmenn, skemmtikraft ar og velunnarar að hittast í hinsta sinn á Broadway og eiga þar góða stund. Fjöldi listamanna kemur fram þetta kvöld. BJÖRGVIN HALLDÓRSSON ➜ „Ég var skemmtanastjóri á Broadway í mörg ár og tók þar til dæmis á móti mörgum heimsþekktum erlendum skemmtikröft- um. Þetta var rosalega skemmtilegur tími og gaman að taka á móti þessum frægu stjörnum. Ég á margar frábærar minningar, það var til dæmis mjög gaman að syngja með Rod Stewart. Allar sýningarnar sem ég setti upp og tók þátt í eru líka ofarlega í huga eins og sýningarnar Allt vitlaust, Þó líði ár og öld og margar fleiri söngsýningar. Það var algjört þrekvirki að byggja staðinn upp, eftir að Broadway lokar er sárvöntun á svona stöðum, þar sem fólk getur borðað, horft á „show“ og dansað, þetta eru bara orðnir litlir öskubakkar niðri í bæ. Ég hef þó trú á að þetta fari í hringi því ég man að þegar diskóið var við völd, var minna um lifandi flutning og þá voru plötusnúðarnir allsráðandi. Þegar diskóið rann út þá duttu plötusnúðarnir inni í hljóm- sveitirnar. Þetta breytist og fer í bylgjur.“ SIGGA BEINTEINS ➜ „Það er hræðilegt að það þurfi að loka þessu húsi, þetta er eina húsið þar sem hægt er að vera með svona dinner, „show“ og dans- leik á eftir. Þetta hús er svo sérstakt og flott. Það var frábært að vinna fyrir Ólaf Laufdal. Það verður mikil eftirsjá hjá flestu tónlistarfólki sem ég þekki. Ég á margar minningar þaðan og var mikið að spila og syngja í þessu húsi. Ég setti til dæmis upp Tinu Turner tribute, á árunum 2006-2007, það var rosalega skemmtilegt. Svo var Stjórnin húshljómsveit þarna í þrjú ár. Það var mjög eftirminnilegt þegar ég hitti John Travolta og Tom Jones. Það kom mér sérstaklega á óvart hvað Travolta var lítill en hann kom hingað stuttu eftir Grease-ævintýrið. Við í Stjórninni spilum í lokahóf- inu, það verður talið í allt þetta skemmtilegasta og við rifjum gamla prógrammið.“ BROADWAY KVEÐUR Hörður Sigurjónsson er einn þeirra sem skipuleggja lokakvöld á Broadway sem fram fer þann 11. apríl TOM JONES kom fram á Hótel Íslandi í maímánuði árið 1990. JERRY LEE LEWIS kom fram á Broad- way í Mjódd árið 1986. NICK CAVE kom fram á Broadway í desember árið 2002 THE STROKES kom fram á Broadway árið 2003. ROD STEWART var plataður upp á svið á Broadway í Mjódd árið 1985 og tók lagið með Björgvini Halldórssyni. LANDSLIÐIÐ Af sýningu á Brodway, f.v. Gunnar Þórðarson, Björgvin Halldórs- son, Þuríður Sigurðardóttir og Egill Ólafsson. FRÆGIR Á BROADWAY „North pissaði á hann akkúrat þarna.“ KIM KARDASHIAN UM DÓTTUR SÍNA OG TÓNLISTARMANNSINS KANYE WEST ÞEGAR ÞAU SÁTU FYRIR FYRIR VOGUE. ÓLAFUR LAUFDAL, STOFNANDI BROADWAY ➜„Ég hætti fyrir tíu árum en þetta var meiriháttar tími þegar ég byggði upp Broadway. Ég var mennt- aður þjónn og stofnaði Hollywood sem var vinsælasti veitingastaður- inn í bænum. Eftir það byggði ég svo Broadway í Álfabakka, sem tók 1.500 manns og þar komu fram margir frægir skemmtikraftar. Svo kom upp sú staða að mig vantaði stærra pláss og þá byggði ég Hótel Ísland í Ármúla. Þar hafði ég leyfi fyrir 2.200 manns. Ég á frábærar minningar og það var gaman að hitta svona mikið af heimsfrægum skemmtikröftum. Þegar ég hætti með reksturinn þá var mjög mikið að gera. Sonur minn, Arnar Laufdal tók við rekstrinum og það gekk mjög vel. Við vorum alltaf með stærstu árshátíðirnar en eftir hrunið urðu margar árshátíðir minni. Það var alltaf nóg að gera þegar við vorum með þetta. Reksturinn var í fínu lagi þegar ég hætti, en ég ætlaði að taka því rólega og gerði það í eitt til tvö ár en svo fór að byggja hús í Grímsnesi og er nú með Hótel Grímsborgir.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.