Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 2
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SKIPULAGSMÁL „Hugsunin er að endurheimta gróður og upphaf- lega ásýnd Landmannalauganna sjálfra,“ segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti Rangár- þings ytra, um fyrirhugaða sam- keppni um deiliskipulag Land- mannalauga. Rangárþing ytra hefur tvisvar fengið styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna samkeppn- innar; þriggja milljóna króna styrk í fyrra og tíu milljóna króna styrk í ár. „Ég reikna með að verulegur meirihluti af þessum tíu milljón- um fari í verðlaunafé og við vilj- um fá hugmyndir sem víðast að því betur sjá augu en auga,“ segir Guð- mundur. Þörfin á að deiliskipuleggja Landmannalaugar er afar knýjandi að sögn Guðmundar. „Þarna er ekki viðunandi aðstaða eins og er til að taka á móti þeim fjölda sem hefur verið og það hefur ekki verið hægt að byggja neitt upp vegna þess að deiliskipulag vantar.“ Í rammaskipulagi fyrir hálend- ið norðan Mýrdalsjökuls er gert ráð fyrir að meginþjónustan með tjaldstæði og gistiskálum færist út fyrir Landmannalaugasvæðið á stað sem heitir Sólvangur, þremur til fjórum kílómetrum frá náttúru- vættinu. „En þá er verið að tala um að inni í Laugunum sjálfum verði upp- lýsingar, gestastofa og búningsað- staða til þess að fara ofan í laug- ina,“ útskýrir Guðmundur. Oddvitinn játar því að skiptar skoðanir séu um fyrirkomulag- ið þótt engar „viðamiklar athuga- semdir“ hafi komið fram þegar rammaskipulagið var samþykkt. Ferðafélag Íslands eigi mikla hags- muni með gistiskála og salernis- hús í Landmannalaugum. Grunn- hugmyndin sé að slík þjónusta fari mögulega í Sólvang. „Meginhugsunin er að halda svæðinu sem ósnortnustu þannig að fegurð og andblær staðarins njóti sín sem best. En það verður áfram tekið á móti fólki í Land- mannalaugum, hugmyndin er alls ekki að því verði hætt eða fólki meinaður aðgangur,“ segir oddvit- inn sem vonast til að samkeppninni verði ýtt úr vör í sumar. „Það er mikilvægt að nýta síð- ari hluta sumarsins þegar allt er orðið greiðfært þannig að fólk sem ætlar að taka þátt í samkeppn- inni geti skoðað svæðið sem best,“ segir Guðmundur. Félög arkitekta og landslagsarkitekta muni eiga fulltrúa í dómnefnd auk þess sem samstarf verði við Umhverfisstofn- un. „Það verður reynt að hafa gott yfirbragð og góðan faglegan blæ á þessu öllu saman.“ gar@frettabladid.is Gistiaðstaða flutt frá Landmannalaugum Gert er ráð fyrir að tjaldstæði og gistiskálar verði færð nokkra kílómetra frá Land- mannalaugum í fyrirhugaðri samkeppni um skipulag svæðisins. Þörfin er knýjandi og við viljum hafa Landmannalaugar ósnortnar, segir oddviti Rangárþings ytra. LANDMANNALAUGAR Aðstaðan í Landmannalaugum er ekki viðunandi, segir odd- viti Rangárþings ytra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jón Þór, eruð þið þá á svepp- um eftir allt saman? „Nýjustu rannsóknir segja að það sé bráðhollt fyrir geðheilsuna.“ Jón Þór Ólafsson er þingmaður Pírata, sem hafa kvartað undan heilsubresti vegna myglusvepps á skrifstofum sínum á Alþingi. Megin- hugsunin er að halda svæðinu sem ósnortn- ustu þannig að fegurð og andblær staðarins njóti sín sem best. Guðmundur Ingi Gunnlaugsson oddviti Rangárþings ytra LÖGREGLUMÁL Fimmmenningarnir sem sakaðir eru um að hafa nauðg- að sextán ára stúlku í samkvæmi aðfaranótt 4. maí síðastliðins eru allir vistaðir í einangrun á Litla- Hrauni. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að pilt- arnir séu í einangrun vegna rann- sóknarhagsmuna. „Það segir sig sjálft að við grípum ekki til íþyngj- andi úrræða, og allra síst þegar börn eiga í hlut, nema ríkir rannsóknar- hagsmunir séu til staðar.“ Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir einangr- unina ekki brjóta gegn Barnasamn- ingi Sameinuðu þjóðanna. „Ákvæði samningsins kveða fyrst og fremst á um það að fangar á barnsaldri skuli ekki vera vistaðir ásamt fullorðn- um föngum. Í þessu tilviki er um að ræða gæsluvarðhaldsúrskurð og vegna rannsóknarhagsmuna er þeim gert að vera í einangrun. Þá eiga ákvæði Barnasáttmálans ekki við. Út af fyrir sig er því ekki unnt að gera neina athugasemd við þetta.“ Þórarinn Viðar Hjaltason sál- fræðingur, sem meðal annars hefur unnið á Litla-Hrauni, segir að einangrun geti tekið mjög á fólk en einstaklingar séu misvið- kvæmir fyrir áhrifum einangrun- arinnar. „Í raun og veru er gæslu- varðhald streituvaldandi,“ segir Þórarinn. „Væntanlega hefur þetta meiri áhrif á þetta unga einstak- linga.“ Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir mönn- unum. - ssb Fjórir af fimm sem grunaðir eru um hópnauðgun í samkvæmi á laugardag eru ekki orðnir átján ára: Börn eru höfð í einangrun á Litla-Hrauni GÆSLUVARÐHALDS KRAFIST Lögregla hafði hraðar hendur þegar málið var kært og krafðist gæsluvarðhalds yfir mönnunum nær strax. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL STJÓRNSÝSLA Fjöldi manns mætti í innanríkis- ráðuneytið í gær til að mótmæla meðferð á Ize- kor Osazee, hælisleitanda frá Nígeríu. Izekor var fangelsuð í rúma sjö klukkutíma á mánudag en til stendur að vísa henni úr landi. „Þetta er búið að ganga allt of lengi,“ segir Hjalti Hrafn Hafþórsson, einn skipuleggjenda mótmælanna, um tildrög þeirra. „Fólki er sópað úr landi og aldrei tekið tillit til aðstæðna þeirra.“ Mótmælin hófust klukkan tólf við lögreglustöð- ina á Hverfisgötu en þaðan héldu mótmælendur yfir í innanríkisráðuneytið. Að sögn Hjalta voru um þrjátíu manns í hópnum þegar þangað kom. Lögregluþjónar voru á staðnum og kallaður var til liðsauki og liðsmenn úr sérsveit lögreglunnar. Mótmælendur yfirgáfu vettvanginn á öðrum tím- anum. Hjalti segir að mótmælin hafi farið friðsamlega fram. „Það voru læti í okkur, vissulega, en aldrei nein ógnun.“ Izekor var handtekin á mánudagsmorgun þegar hún kom á lögreglustöð til að sinna tilkynningar- skyldu sinni. Henni var sleppt úr haldi eftir að hafa setið í fangaklefa í rúmlega sjö klukkustund- ir en brottvísun hennar úr landi hefur verið frest- að. - sáp, bá Um þrjátíu mótmælendur mættu í innanríkisráðuneytið um eittleytið í gær: Mótmæltu meðferð á Izekor TEKIST Á Kallaður var til liðsauki vegna mótmæla í innan- ríkisráðuneytinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KOSNINGAR Fallist yfirkjörstjórn í Kópavogi á að afhenda umboðs- manni Sjálfstæðisflokksins afrit af meðmælendalistum annarra flokka hafa Dögun og umbóta- sinnar í Kópavogi og Næstbesti flokkurinn ákveðið að láta reyna á þá afstöðu fyrir æðra stjórn- valdi og dómi. Yfirkjörstjórn tekur málið fyrir í dag. Verði samþykkt að afhenda listana verður sú ákvörð- un kærð til innanríkisráðuneytis og síðan höfðað flýtimeðferðar- mál fyrir Héraðsdómi Reykja- ness ef ráðuneytið hnekkir ekki ákvörðun yfirkjörstjórnar. - jme Kosningadeilur í Kópavogi: Í hart verði list- arnir afhentir ORKUMÁL Landsnet hefur sótt um framkvæmdaleyfi vegna Suður- nesjalínu 2 til sveitarfélaganna Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar og Voga. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist um mitt þetta ár og þeim ljúki í árslok 2015, fyrir utan frágangs- vinnu sem verði lokið um mitt ár 2016. Orkustofnun hefur veitt Lands- neti leyfi til að reisa og reka 220 kílóvolta háspennulínu frá Hamranesi í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis. Landnet vill hefja framkvæmdir sem fyrst. -jme Landsnet sækir um leyfi: Suðurnesjalína tvö tilbúin 2016 VINSÆLIR Bæjarstjórn Hafnarfjarðar þakkaði Pollapönkurum fyrir jákvætt og frá- bært framlag sitt áður en tónleikar hófust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TÓNLIST Eurovision-fararnir í hljómsveitinni Pollapönk stigu á svið á Thorsplani í heimabæ sínum Hafnarfirði í gær. Hljómsveitin lenti í fimmtánda sæti í keppninni sem fór fram í Kaupmannahöfn um helgina. Fjöldi fólks mætti til að hlýða á lagið Enga fordóma og fleiri slag- ara. Það var önnur hafnfirsk Eurovision-stjarna, Jóhanna Guðrún, sem hitaði upp fyrir kappana. - bá Hljómsveitin Pollapönk hélt tónleika á Thorsplani í gær: Komnir heim í Hafnarfjörðinn SPURNING DAGSINS FISKIKÓNGURINN HÖFÐABAKKA 1 v/Gullinbrú SÍMI 555 2800 FISKIKÓNGURINN S0GAVEGI 3 SÍMI 587 7755 Reyktur Rauðmagi og Súr Hvalur www.fiskikongurinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.