Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.05.2014, Blaðsíða 4
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 UNGVERJALAND Fyrrverandi inn- anríkisráðherra Ungverjalands var í gær dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir stríðsglæpi, samkvæmt frétt BBC. Hinn 92 ára Bela Biszku er sagður hafa skipað öryggissveitum að hefja skothríð á óbreytta borgara í uppreisninni árið 1956. 49 manns létu lífið. Kommúnískri ríkisstjórn lands- ins var steypt af stóli í uppreisn- inni, sem var brotin á bak aftur með innrás Sovétmanna stuttu síðar. Biszku er fyrsti fyrrver- andi leiðtogi kommúnista í land- inu sem dreginn er fyrir dóm. - bá Lét skjóta óbreytta borgara: Dæmdur fyrir stríðsglæpi AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Protron 500 27.5” Diskabremsur, dempari, 24 gíra Tilboð kr. 79.995.- KÖNNUN Þrjú framboð sem bjóða fram í fyrsta skipti í sveitar- stjórnarkosningunum á Reykja- nesi fá samtals 38,8 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa af ellefu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar Frétta- blaðsins. Fylgi Sjálfstæðisflokksins er hrunið samkvæmt könnuninni. Flokkurinn fær 30,8 prósent atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa, en fékk 52,8 prósent í kosningun- um árið 2010 og sjö bæjarfulltrúa. Samfylkingin tapar einnig tals- verðu fylgi frá síðustu kosning- um. Um 19,6 prósent ætla að kjósa flokkinn nú, sem skilar Samfylk- ingunni tveimur bæjarfulltrúum. Fylgi flokksins hefur minnkað um þriðjung frá kosningum, þegar flokkurinn fékk 28,4 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar einnig um þriðjung, úr 14 prósentum í 9,3 prósent. Flokk- urinn heldur þrátt fyrir það sínum eina bæjarfulltrúa. Stærst nýju framboðanna er Frjálst afl, klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum. Framboðið fær 18,6 prósent atkvæða sam- kvæmt skoðanakönnun Frétta- blaðsins, og tvo bæjarfulltrúa. Píratar fá samkvæmt könnun- inni 10,4 prósent atkvæða og einn mann kjörinn. Þá fær Bein leið 9,8 prósent atkvæða og einn bæj- arfulltrúa. Miðað við þessar niðurstöður eru einu möguleikarnir á tveggja flokka stjórn samstarf Sjálfstæð- isflokks við annaðhvort Sam- fylkinguna eða Frjálst afl. Verði gerð tilraun til að mynda stjórn án aðkomu Sjálfstæðisflokksins þurfa svo gott sem öll önnur fram- boð að taka saman höndum, þótt eitt framboðanna þriggja sem fá einn bæjarfulltrúa gæti orðið út undan án þess að það stöðvi mynd- un meirihlutans. brjann@frettabladid.is Fylgi Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ hrunið Ný framboð velta meirihlutanum í Reykjanesbæ og fá samtals fjóra bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fylgi Sjálfstæðisflokks hrynur úr 53 prósentum í 31 prósent og Samfylkingin tapar um þriðjungi af fylgi flokksins. STUÐNINGUR VIÐ STJÓRNMÁLAFLOKKA Frjálst afl Sjálfstæðis- flokkurinn Samfylkingin PíratarBein leiðFramsóknar- flokkurinn 18 ,6 % 9, 3% 14 ,0 % 52 ,8 % 28 ,4 % 30 ,8 % 19 ,6 % 9, 8% 10 ,4 % Kosningar 29.5.2010 Könnun 12.5.2014 Vi km ör k 2, 8% 2, 1% 3, 3% 2, 9% 2, 2% 2, 2% Fjöldi bæjarfulltrúa Fréttablaðið kannaði fylgi flokka í Reykjanesbæ í síðustu viku en birti ekki niðurstöður könnunarinnar. Ástæðan var sú að starfsmaður 365 miðla varð uppvís að því að brjóta verklagsreglur við gerð könnunarinnar. Starfsmaður- inn talaði inn á talhólf að minnsta kosti eins einstaklings sem lent hafði í úrtaki könnunarinnar og lét eins og hann svaraði fyrir hann. Málið er litið afar alvarlegum augum innan 365 og var ákveðið að hætta gerð könnunarinnar og eyða þeim svörum sem hafði verið aflað. Starf- manninum hefur verið sagt upp störfum vegna alvarlegs trúnaðarbrests. Rækilega var farið yfir allt verklag við gerð skoðanakannana vegna málsins. Fyrri könnun Fréttablaðsins ónýt AÐFERÐAFRÆÐIN Hringt var í 1.126 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki mánudaginn 12. maí. Svarhlutfallið var 71 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlut- fallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitar- stjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálf- stæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tóku 66,6 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is Sveitarstjórnarkosningar 2014 Reykjanesbær 1,5 milljónir tonna af kolum hafa verið flutt inn til Ís- lands frá og með árinu 2000. Minnst rúm 85.000 tonn en mest árið 2007, eða 139.568 tonn. Soff ía Sveinsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá HLÝNAR FYRIR NORÐAN Í dag má búast við skúrum fram eftir degi en það léttir til er líður á daginn, fyrst suðaustan til. Vindur verður yfirleitt hægur fram að helgi og það hlýnar heldur á norðanverðu landinu. 5° 3 m/s 6° 4 m/s 10° 6 m/s 9° 6 m/s 3-8 m/s en strekk- ingur við SA-strönd- ina Fremur hægur vindur. Gildistími korta er um hádegi 18° 30° 14° 18° 29° 11° 13° 13° 13° 24° 18° 24° 21° 28° 22° 12° 14° 15° 8° 3 m/s 8° 8 m/s 7° 4 m/s 9° 5 m/s 10° 2 m/s 11° 2 m/s 4° 4 m/s 11° 9° 4° 5° 12° 8° 11° 6° 8° 5° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FÖSTUDAGUR Á MORGUN ÚKRAÍNA, AP Uppreisnarmenn sátu fyrir hermönnum í austanverðri Úkraínu í gær, drápu sex þeirra og særðu átta. Þetta fullyrti talsmað- ur Úkraínuhers. Árásin var gerð skammt frá borginni Kramatorsk í Donetsk-héraði, þar sem uppreisn- armenn hafa lýst yfir sjálfstæði í kjölfar kosninga um helgina. Frank-Walter Steinmeier, utan- ríkisráðherra Þýskalands, hélt til Úkraínu í gær til að hvetja ráða- menn þar til viðræðna við upp- reisnarmenn, í samræmi við friðaráætlun Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu. Rússnesk stjórnvöld hafa sömuleiðis hvatt til þess að Úkraínustjórn og upp- reisnarmenn fallist á áætlunina. Úkraínustjórn hefur verið ófá- anleg til viðræðna við uppreisnar- mennina og hefur stuðning Vest- urlanda sem fordæma kosninguna um síðustu helgi. Rússar styðja hins vegar uppreisnarmennina og segja Úkraínustjórn ekki síður ólöglega en uppreisnina í austur- hluta landins. - gb Mannskæð átök halda áfram í Austur-Úkraínu þrátt fyrir tilraunir til sátta: Hermenn vegnir úr launsátri UPPREISNARMENN Í LUHANSK Bæði í Luhansk og Donetsk lýstu uppreisnar- menn yfir sjálfstæði á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DANMÖRK Frá 2009 til 2013 komu um 100 þúsund útlendingar til Danmerkur til að setjast þar að. Samkvæmt frétt Jótlandspóstsins komu jafnmargir frá vestrænum löndum og frá öðrum löndum. Danski þjóðarflokkurinn vill takmarka innflutning með strangari innflytjendalöggjöf. Jafnaðarmannaflokkurinn segir ekki þörf á að herða reglur. Nú þegar sé viðmiðunin að danskt samfélag geti boðið þeim sem koma aðlögun. - ibs Fjöldi innflytjenda: 100 þúsund til Danmerkur KJARADEILUR Yfirstjórn Iceland- air og flugmenn greinir á um launahækkanir innan fyrirtækis- ins. Í fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna er því haldið fram að laun æðstu yfirmanna hafi hækkað mikið á síðustu árum. Í fréttabréfinu kemur fram að árslaun forstjóra Icelandair Group hafi verið 44,2 milljónir í fyrra og hafi hækkað um 13 prósent frá 2010. Laun forstjóra Icelandair námu 36,7 milljónum og höfðu hækkað um 60,5 prósent á sama tímabili. Björgólfur Jóhannsson, for- stjóri Icelandair, segir í bréfi til starfsmanna, að flugmenn fari ekki með rétt mál. Grunn- laun stjórnenda hafi ekki hækk- að umfram samningsbundnar launahækkanir. Þá segir hann að af 100 launhæstu starfsmönnum fyrirtækisins séu 92 flugmenn. - jme Deilt um launahækkanir: Flugmenn 92 af 100 launahæstu EFNAHAGSMÁL Stærstur hluti gjaldeyriseigna slitabús Lands- bankans (LBI) er vistaður á bankareikningum erlendis og undanþága vegna útgreiðslu þeirra hefur ekki áhrif á greiðslu- jöfnuð landsins. Krónuvandinn svokallaði er ekki fyrir hendi. Ekki þarf að skipta krónum í erlendan gjald- eyri eins og hjá Kaupþingi og Glitni. Eignir LBI eru aðallega gjaldeyrir. Eignirnar urðu til fyrir hrun og gjaldeyrishöft. LBI þarf und- anþágu frá höftum til að greiða út kröfur þótt eignirnar séu erlendis því LBI er íslenskur lögaðili. - þþ Eignir LBI vistaðar erlendis: Ekki áhrif á greiðslujöfnuð NEYÐARÁSTAND Sjúkraliðar og aðstandendur við námumunnan seint í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP TYRKLAND, AP Rúmlega 150 eru sagðir látnir eftir sprengingu í kolanámu í Soma í Tyrklandi í gær. Rúmlega tvö hundruð menn voru í gær fastir neðanjarðar. Sprengingin átti sér stað tvo kíló- metra undir yfirborði jarðar. Taner Yildiz, orkumálaráð- herra Tyrklands, kom til Soma í gær til að stýra björgunaraðgerð- um á svæðinu. Fyrirtækið Komur Isletmeleri, sem á námuna, segir að það sé algjört forgangsmál að bjarga þeim sem enn eru á lífi úr námunni. - bá Mannskætt slys í Tyrklandi: Hundruð föst neðanjarðar BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.