Fréttablaðið - 14.05.2014, Page 22

Fréttablaðið - 14.05.2014, Page 22
 | 4 14. maí 2014 | miðvikudagur Í dag lýkur þriggja daga tækniráð- stefnu LS Retail, ConneXion 2014, í Hörpu í Reykjavík. Von var á því að á fi mmta hundrað manns sæktu viðburðinn heim og hlýddu á erindi fjölda innlendra og erlendra sér- fræðinga. Erlendir gestir eru sagð- ir um 300 frá 50 löndum. Meðal þess sem fjallað hefur verið um er hvernig á næstu árum sé að vænta meiri og örari breytinga í smásöluverslun en áður hafi sést, líkt og fram kom í máli aðalfyrirles- ara ráðstefnunnar, ráðgjafans, rit- höfundarins og fjölmiðlamannsins kanadíska Doug Stephens. Hann er sérfræðingur í þróun smásöluversl- unar og breytingum í kauphegðun neytenda samfara örri tækniþróun. Stephens spáir því að breytingar næsta áratugar jaðri við byltingu í smásöluverslun. „Horfum við upp á dauða smásöluverslunarinnar eða stórkostlega endurfæðingu og upp- haf gullaldar í verslun?“ er spurn- ing sem eftir honum er höfð. „Um þetta hefur umræðan snúist og held- ur áfram að gera. Eitt er þó víst, verslun framtíðarinnar verðu mjög ólík því sem nú þekkist.“ Á ráðstefnunni átti einkum að fjalla um þarfi r í smásölu- og veit- ingarekstri, svo sem hvernig fyrir- tæki geti betur ræktað persónulegt samband við viðskiptavini. Til að standa sig á þeim vettvangi þurfi að innleiða nýjustu tækni. Þá var fjallað um nýjustu rannsóknir á sviði kauphegðunar fólks sem nýtir sér tækni tölva og snjallsíma í æ ríkari mæli við leit og kaup á vöru og þjónustu. - óká Von var á 300 erlendum gestum frá 50 löndum á ConneXion 2014-tækniráðstefnuna í Hörpu í Reykjavík: Funda um breytingar í verslun Í HÖRPU Sveinn Áki Lúðvíksson, sölustjóri LS Retail, afhendir gesti nafn- spjald á ConneXion 2014-tækniráð- stefnunni. MYND/LS RETAIL Rekstrarvörur - vinna með þér Flugvélaframleiðandinn Air- bus fagnaði því í byrjun vik- unnar að þá voru liðin 20 ár frá fyrstu þátttöku vélar félagsins í MOZAIC- verkefninu (e. Measure- ment of Ozone by Airbus in-ser- vice Aircraft) þar sem farþegavél- ar í áætlunarfl ugi eru notaðar til þess að mæla meðal annars styrk ósonlagsins. Í tilkynningu félags- ins segir að með þátttöku sinni vilji það undirstrika ákvörðun Airbus um að styðja við og efl a vísindarannsóknir á sviði lofts- lagsmála. „20 árum eftir að MOZAIC- verkefnið hófst taka sjö breið- þotur Airbus (sex A340-300- vélar og ein A330-þota) þátt í mælingum á hverjum degi og um heim allan, með stuðningi fl ug- félaganna sem verkefnið styðja, Lufthansa, China Airlines, Air France, Iberia, Cathay Pacifi c og Air Namibia,“ segir í tilkynn- ingu félagsins. Fram kemur að í dag notist öll reiknilíkön á sviði loftslagsmála og veðurfars við gögn frá MOZAIC og IAGOS- verkefninu, sem hófst 1993 til að stilla af niðurstöður sínar. „Þakka má þátttöku okkar og öfl - ugu samstarfi við fl ugfélög, rann- sóknarstofur og stofnanir að vís- indasamfélagið hefur mun betri skilning á háloftunum og lofts- lagsbreytingum,“ er haft eftir Rainer Von Wrede, yfirmanni deildar hönnunar, rannsókna og þróunar hjá Airbus. Þau gögn sem safnað er, þar með taldar rauntímaupplýsing- ar sem notaðar eru við gerð veð- urspáa og spáa um loftslag og loftgæði, eru yfi rfarnar og bætt við gagnabanka MOZAIC/IAGOS, en að þeim hafa alþjóðlega vís- indasamfélagið og stefnumark- andi stofnanir frjálsan aðgang. Til þessa hefur mælingum úr yfi r 41.000 farþegafl ugferð- um verið bætt við gagnabanka MOZAIC/IAGOS frá því að fyrstu gögnin fengust úr fl ugi A340-þotu Air France frá Cara- cas til Bógótá í ágúst 1994. - óká Nokkur flugfélög hafa safnað upplýsingum um loftslag í háloftunum: Ósonstyrkur mældur í ferðum farþegavéla Í TOULOUSE Þota sett saman í einni af verksmiðjum Airbus. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ Meirihluti 300 stærstu fyrirtækja landsins stefnir á fjárfestingar á árinu 2014 eða 77 prósent fyrir- tækja. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrstu könnun ráð- gjafarsviðs Deloitte á meðal fjár- málastjóra stærstu fyrirtækja á Íslandi. Tilgangur könnunarinnar er að sýna viðhorf fjármálastjóra til stöðu fyrirtækja og efnahags- umhverfi sins og er ætlun Deloitte að framkvæma hana hálfsárslega. Þrátt fyrir áætlanir um fjárfest- ingar á þessu ári sýna niðurstöður könnunarinnar að fjármálastjórar gera ekki ráð fyrir aukinni skuld- setningu en 50 prósent fyrirtækja áætla að skuldsetning verði óbreytt en 34 prósent þeirra áætla að draga úr skuldsetningu. Það samræmist áliti fjármálastjóra um að íslensk fyrirtæki séu of skuldsett. Aðspurðir um hagkvæmni fjár- mögnunarleiða telur meirihluti fjármálastjóra að útgáfa hluta- fjár og skuldabréfa sé hagkvæm en að lántaka hjá bönkum sé óhag- kvæm. Framboð á lánsfé sé til staðar en það sé dýrt. Þó áætla fjármálastjórarnir ekki útgáfu nýrra skuldabréfa eða hlutabréfa á næstunni. Fyrirtæki virðast samkvæmt könnuninni ætla að leggja áherslu á stækkun með innri vexti á næstu tólf mánuðum, lækkun kostnaðar, minnkun skuldsetningar, aukningu sjóðsstreymis og koma með nýjar vörur. Helmingur svarenda telur að hagnaður íslenskra fyrirtækja muni standa í stað á árinu 2014 í samanburði við síðasta ár en 38 prósent þeirra telja að hagnaður muni aukast. Þeir gera ekki ráð fyrir að auka áhættu í efnahags- reikningum fyrirtækja á þessu ári. Meirihluti fjármálastjóranna er bjartsýnn um hagvaxtarhorfur á Íslandi til næstu tveggja ára en stór hluti telur að hagvöxtur muni standa í stað. Spurt var um mat fjármála- stjóra á Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands og töldu 63 prósent þeirra að vísitalan myndi hækka nokkuð á árinu. Aðspurðir um stýrivexti Seðlabanka Íslands telur yfi rgnæf- andi meirihluti þeirra stýrivextina of háa. Af þeim fjármálastjórum sem svöruðu könnuninni eru 30 prósent í smá- eða heildsölu, 18 prósent í þjónustu eða ráðgjöf og 11 prósent í banka-, fjármála-, trygginga- eða byggingarstarfsemi. Telja íslensk fyrirtæki vera of skuldsett Deloitte gerði könnun á meðal fjármálastjóra 300 stærstu fyrirtækja landsins en þar kemur fram að ekki er gert ráð fyrir aukinni skuldsetningu og bjartsýni ríkir um hagvaxtarhorfur á landinu til næstu tveggja ára. BJARTSÝNIR Meirihluti íslenskra fjármálastjóra er bjartsýnn um hagvaxtarhorfur til næstu tveggja ára. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Ætla að leggja áherslu á stækkun með innri vexti á næstu tólf mánuðum, lækkun kostnaðar, minnkun skuldsetningar, aukningu sjóðsstreymis og koma með nýjar vörur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.