Fréttablaðið - 14.05.2014, Síða 34

Fréttablaðið - 14.05.2014, Síða 34
KYNNING − AUGLÝSINGVeiði MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 20146 Útivistar- og veiðiverslunin Veiði-vörur hefur um nokkurra ára skeið boðið veiðimönnum lands- ins upp á fjölbreytt úrval veiðivara fyrir allar tegundir veiði. Verslunin býður upp á sérlega glæsilegt úrval af veiðibúnaði fyrir stangaveiði að sögn Matthíasar Þórs Hákonarsonar, framkvæmdastjóra versl- unarinnar. „Stærsta vörumerkið okkar er Vision sem er finnskt gæðamerki. Þetta merki er raunar stærsti framleiðandi og söluaðili á Norðurlöndum og býður upp á langbreiðasta vöruúrvalið. Við seljum mikið úrval frá þeim af stöngum, hjólum, línum, vöðlum, jökkum, töskum og bara öllu því sem viðkemur stangaveiði. Auk þess bjóðum við upp á mikið úrval smá- hluta frá þeim.“ Veiðivörur bjóða ekki einungis upp á vörur fyrir vana veiðimenn heldur líka byrjendur. „Við erum einnig með mikið úrval af vörum frá undirmerki Vision sem heitir Keeper. Það er einnig mjög gott og vandað vörumerki sem býður upp á allt það helsta fyrir veiðimanninn en á aðeins hagstæðara verði. Það má því segja að hér sé boðið upp á allt fyrir stangaveiðina í ólíkum vöru- og verð- flokkum en gæðin eru alltaf í fyrirrúmi hjá okkur. Verðið hér er tiltölulega lágt miðað við gæðin.“ Nýjar vörur Meðal nýrra vara sem Veiðivörur leggja áherslu á í sumar eru nýju tvíhendurn- ar frá Vision. „Þessi tvíhenda, sem ber nafnið Tool, var valin besta nýja tví- hendan í veiðiblaðinu virta Trout and Salmon nýlega. Þessi stöng er frekar hröð tvíhenda sem kom okkur mikið á óvart. Hún lítur öðruvísi út en aðrar tvíhendur og virðist ráða við hvaða flugur sem er.“ Matthías nefnir einnig nýja vöðluskó frá Vision sem heita Loikka. Þeir eru af- rakstur fimmtán ára vöruþróunar hjá Vis ion. „Þetta eru langbestu skór sem við höfum prófað og höfum við prófað þá marga. Nú er búið að koma í veg fyrir öll þessi vandamál sem tilheyra vöðluskóm en samt eru þeir með þeim léttari sem eru í boði. Þeir eru með nýjum gúmmí- botni sem gefur gott grip.“ Að lokum nefnir Matthías nýtt flugu- veiðihjól frá Vision sem heitir Vario- verse. „Þetta er eina hjól sinnar tegundar í heiminum. Það hefur einstakt bremsu- kerfi á hjólinu og er algjörlega einstakt í sinni röð þegar kemur að léttleika og ein- faldleika búnaðarins.“ Veiðivörur bjóða upp á gott úrval sil- ungaflugna sem allar eru hnýttar hér- lendis af innlendum fagmönnum. „Þetta eru gæðaflugur sem eru mjög vinsæl- ar. Það er notað mikið af útfjólubláu efni þannig að þær lýsast upp í sólarljósinu.“ Í dag er Veiðivörur með tvær verslan- ir. Sú eldri er staðsett á Akureyri en síð- asta sumar var ný verslun opnuð við Síðu- múla í Reykjavík. „Við keyptum veiðibúð- ina Hrygnuna síðasta sumar og opnuðum verslun þar. Um leið fengum við umboðið fyrir Vision-vörurnar og getum nú boðið þær til sölu í báðum verslunum okkar.“ Allar nánari upplýsingar um vörur verslunarinnar má finna á www.veidi- vorur.is. Metnaðarfull veiðiverslun Fjölmargar nýjar veiðivörur eru í boði hjá versluninni Veiðivörum fyrir sumarið. Verslunin býður upp á mikið úrval stangaveiðivara þar sem finnska gæðamerkið Vision er í fyrirrúmi. Veiðivörur reka tvær verslanir, eina á Akureyri og aðra í Reykjavík. Gott úrval veiðivara fyrir bæði vana veiðimenn og byrjendur. Veiðivörur bjóða upp á mikið úrval veiðivara frá finnska gæðamerk- inu Vision. MYND/STEFÁN Hér í Hólá og Laugarvatni er eingöngu villtur silungur; feitur, fallegur og ákaflega bragðgóður,“ segir Elsa Svandís Pét- ursdóttir, sem ásamt eiginmann- inum Skúla Haukssyni hefur verið ábúandi í Útey I í Bláskógabyggð frá árinu 1980. „Þegar við settumst að í Útey fyrir 34 árum fórum við strax til veiða í vötnunum. Þá kom fyrir að einstaka veiðimaður renndi í hlað og ósk- aði eftir leyfi til veiða en fljótt flaug fiskisagan og alltaf verður vinsælla fyrir fjölskyldur í fríi og ferðamenn að renna fyrir fisk í landi Úteyjar.“ Útey I á veiðirétt í hluta Laugar- vatns og að hluta á bökkum Hólár. „Í nágrenni Laugarvatns er stór sumarbústaðabyggð og margir sem vilja renna fyrir fisk eða kaupa sér nýjan silung á grillið og í pottana eða reyktan ofan á brauð. Sama fólkið kemur aftur og aftur, nýir gestir bæt- ast við og nú koma í æ meiri mæli er- lendir veiðimenn.“ Í Útey hefur ávallt verið góð veiði og nú um mundir er mikið um urr- iða. Þegar hlýnar í veðri tekur svo bleikjan við. „Við opnuðum 1. apríl og þá komu tveir til veiða. Annar fékk tvo fiska en hinn átta; allt urriða úr Hólá,“ segir Elsa. Veiðileyfi eru seld heima á bænum og er áin mjög skemmtilegt veiði- svæði. „Þeir sem koma til veiða eru mjög ánægðir. Fólk ræður hvort það sleppir fisknum eða veiðir sér til matar og ef það bítur ekki á erum við með nýveiddan silung til sölu. Þá fá börn undir fjórtán ára að veiða án aukagjalds með fullorðnum.“ Elsa og Skúli veiða í net úr Laugar- vatni og Apavatni og selja nýjan sil- ung heima á bæ og í verslanir, hótel og veitingahús í héraðinu. Þá selja þau reyktan silung í verslanir um allt land. „Um leið og ís fer af vötnunum á vorin byrjum við að veiða. Silungur- inn er vel rauður á hold og mjög ljúf- fengur grillaður og steiktur eða mat- reiddur á annan hátt,“ segir Elsa um silunginn, sem er flakaður og seldur ferskur. Um þessar mundir eru tuttugu ár síðan þau hjónin tóku í notkun reykhús í Útey. Þar reykja þau árið um kring rómaðan Úteyjarsilung en einnig reykja þau fisk fyrir veiði- menn eftir óskum. „Reyktur silungur frá Útey þykir sælgæti og er galdurinn fólginn í af- bragðs hráefni og vönduðum vinnu- brögðum. Hráefnið skiptir mestu og það hvernig saltað er og verkað. Við höfum náð verulega góðum tökum á verkuninni og fjölskyldan hjálpast að ef með þarf; meira að segja barna- börnin sem koma í sveitina til ömmu og afa á sumrin.“ Elsa og Skúli reykja silung á þrjá vegu; með taði, birki og heitreykingu. „Heitreyktur fiskur er reyksoðinn og einstaklega ljúffengur. Reyktan sil- ung er svo hægt að nota í ótal margt annað en að sneiða ofan á brauð. Sá heitreykti er til dæmis hnossgæti í pastarétti og með salatblaði og pip- arrótarsósu er kominn fínasti forrétt- ur,“ segir Elsa sem er ekki komin með leiða á Úteyjarfisknum. „Mér finnst hann alltaf jafn góður og í uppáhaldi er sá taðreykti en bóndanum þykir sá birkireykti betri.“ Veiðileyfi í Útey gilda bæði í Laug- arvatni og Hólá og kostar dagur- inn 2.700 krónur. Hægt er að kaupa sumarkort á 17.000. Ný flök eru seld heima á bæ yfir sumartímann en líka í eftirtöld- um verslunum: Versluninni Borg, Grímsnesi, Samkaup/Strax og Gallerí inu á Laugarvatni. Sjá nánar á utey.is. Pastasalat með silungi 280 g spaghetti eða núðlur 200 g mozzarellaostur 120 g heitreyktur silungur (má líka nota birki- eða taðreyktan) 1 stk. agúrka 1 búnt basilíka ólífuolía og salt Sjóðið pastað „al dente“ og sigt- ið. Skerið silung, agúrku og ost í litla bita og blandið saman við kalt past- að ásamt olíudreitli og saltið eftir smekk. Rífið eða klippið basilíku- laufin yfir. Fljótt flýgur fiskisagan í Útey Á bænum Útey I við Laugarvatn verður nýveiddur silungur að sælgæti í reykhúsinu. Í landi Úteyjar er einnig sívinsæll veiðistaður í Hólá og Laugarvatni og hægt er að kaupa veiðileyfi, nýveiddan silung og reykt hnossgæti heima á hlaði. Hjónin Elsa og Skúli. Hér eru silungaflök í salti fyrir reykingu. Á sumrin koma barnabörnin til ömmu og afa í Útey. Hér er Alex Skúli með afa sínum. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.