Fréttablaðið - 14.05.2014, Síða 58

Fréttablaðið - 14.05.2014, Síða 58
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30 FÓTBOLTI „Þetta var það sem við lögðum upp með – við ætlum að vera harðir í leiknum og láta finna fyrir okkur,“ segir Elías Már Ómarsson, framherji Kefla- víkur, í samtali við Fréttablaðið um 2-0 sigurinn á Breiðabliki í þriðju umferð Pepsi-deildar karla í fót- bolta á mánudagskvöldið. Elías átti stórleik fyrir Keflavík og skoraði bæði mörk liðsins en hann er leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu fyrir frammistöðu sína á Nettó-vellin- um á mánudagskvöldið. „Það var bara baráttan í liðinu og liðsheildin. Það gekk allt sem við lögðum upp með. Varnarlínan var virkilega sterk og síðan nýttum við færin,“ segir Elías Már aðspurður hvað hann var ánægðastur með í leiknum. Hann kemur inn á varnarleikinn sem hefur verið sterkur hjá Keflavík í sumar. Liðið fékk á sig 47 mörk síðasta sumar, næstflest í deildinni á eftir ÍA sem féll, en er aðeins búið að fá á sig eitt mark núna og því hefði auðveldlega verið hægt að komast hjá. „Það hefur verið farið vel yfir varnar- leikinn og hann er núna virkilega sterk- ur hjá okkur, sem er mjög gott. Það er líka mjög góður mórall í liðinu og liðs- heildin öflug,“ segir Elías Már. Alveg sama um spárnar Keflavík var almennt ekki spáð góðu gengi í Pepsi-deildinni. Flestir spáðu því við fallsvæðið en sérfræðingarnir í Pepsi-mörkunum gengu svo langt að spá liðinu falli. Þessum spám eru Keflvíking- ar nú að troða upp í menn. „Okkur er eiginlega alveg sama um þetta. Við vitum alveg hvað við getum og við ætlum ekkert að falla. Við ætlum að vera í efri hlutanum í deildinni og pælum ekkert í þessu. Menn munu bara sjá þetta í lok tímabils- ins. Við verðum ekki á meðal neðstu liða,“ segir Elías Már. Kristján Guð- mundsson, þjálfari liðsins, er að gera virkilega góða hluti með Kefla- vík eins og síðast þegar hann var þar við stjórnvölinn. Kristján og Kefla- vík virðast einfald- lega passa saman en hvað gerir hann svona góðan í Bítla- bænum? „Hann kemur bara með sterkan móral inn í liðið. Hann er frábær karakter og virkilega góður þjálfari,“ segir Elías Már en Kristján er skipulagður þjálfari og leggur leiki Keflavíkur afar vel upp, eins og sést hefur í fyrstu þremur umferðunum. „Kristján vinnur heimavinnuna sína vel. Hann fer rækilega yfir hin liðin og sýnir okkur klippur þar sem farið er yfir hvað við þurfum að gera og hvað við eigum ekki að gera. Við hlustum á hann í einu og öllu,“ segir Elías Már. Atvinnumennska er draumurinn Elías Már skoraði tvö mörk í 16 leikjum í deild- inni í fyrra en er nú kominn með tvö mörk í tveimur leikjum. Hefur hann sett sér ein- hver persónuleg takmörk fyrir sumarið? „Ég stefni bara á að spila mikið og spila vel fyrir Keflavík. Mörkin eru bara aukaatriði. Ég vil bara ná sem bestum árangri með liðinu,“ segir Elías Már, sem er nú búinn að skora tvö ár í röð á móti Breiðabliki. „Mér er ekkert illa við þá. Þetta er bara algjör tilviljun. Ég verð núna að fara að skora á móti einhverj- um öðrum líka,“ segir hann og hlær. Þessi ungi og efnilegi framherji er fæddur árið 1995 og var með U19 ára liðinu í sumar sem fór í milliriðlaund- ankeppni EM. Draumurinn hjá honum, eins og svo mörgum ungum spilurum, er að komast í atvinnumennsku. „Allt frá því að ég byrjaði í fótbolta hefur stefnan verið sett á atvinnumennsku og vonandi gerist það einhvern tím- ann,“ segir Elías sem hefur lagt mikið á sig í vetur til að vera í sem bestu standi fyrir Pepsi-deildina og er að uppskera. „Ég tók mér frí í skólanum þessa önn því ég ætlaði að einbeita mér að sumrinu og reyna að spila vel. Ég fer á hverjum degi með vini mínum, Theodór Guðna (Halldórssyni), á aukaæfingar og í ræktina. Við vinnum mikið í þessu saman og styðjum hvor annan alveg hundrað prósent,“ segir Elías Már Ómarsson. tom@frettabladid.is Sama um allar spár Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk og spilaði mjög vel þegar Kefl avík vann Breiðablik, 2-0. Hann er leikmaður umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. BARA GEGN BLIKUM Öll fjögur mörk Elíasar Más Ómarssonar í efstu deild hafa komið á móti Breiðabliki. HANDBOLTI „Þessi ótrúlega stemn- ing hérna gefur okkur svo mikið að þú trúir því ekki. Ég hef farið út um allan heim og þetta er með því magnaðra sem ég hef upplifað,“ sagði skælbrosandi þjálfari ÍBV, Gunnar Magnússon, eftir magn- aðan 27-20 sigur ÍBV á Haukum í Eyjum í gær. Stórkostlegir áhorfendur í Eyjum mynduðu eina eftirminni- legustu stemningu seinni ára í íslenskum íþróttum og þessir stuðningsmenn áttu stóran þátt í sigrinum. Þessi úrslit þýða að liðin verða að mætast í hreinum úrslitaleik um titilinn að Ásvöllum á fimmtudag. Í fyrri hálfleik bar kappið feg- urðina ofurliði og staðan aðeins 8-9 í hálfleik. Dómarar leiksins, Gísli Hlynur Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson, áttu ekki sinn besta dag. Þeir gáfu eitt glórulaust rautt spjald og misstu síðan algjör- lega tökin á leiknum. Að missa Jón Þorbjörn af velli með rautt og svo Sigurberg í síðari hálfleik vegna meiðsla hafði eðli- lega sín áhrif á leik Hauka en þó er ólíklegt að nokkurt lið hefði getað stöðvað ÍBV í þeim ham sem liðið var í. Þeir spiluðu ótrúlega vörn í síðari hálfleik og keyrðu svo af afli yfir Haukana sem áttu engin svör. „Það voru forréttindi að taka þátt í þessum leik. Þetta eru góðir dómarar en þeir gera mistök eins og leikmenn. Við vorum óánægðir með margt rétt eins og Hauk- ar,“ segir Gunnar en hann bíður spenntur eftir oddaleiknum. „Þetta er draumur fyrir okkur og ef við náum að taka brot af þessari stemningu með okkur á Ásvelli þá er allt hægt. Ég hef ótrúlega trú á þessum drengjum sem búa yfir miklum styrk og kar- akter.“ - hbg Haukar kafsigldir í Eyjum ÍBV tryggði sér oddaleik í ótrúlegri stemningu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. EYJASIGUR Það var mögnuð stemning í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær. Odda- leikurinn í rimmunni fer fram á fimmtudag. MYND/ÓMAR GARÐARSSON SPORT Kortið gildir í líkamsrækt og sund í Sundlaug Kópavogs og Salalaug. Hægt er að fara í aðrar GYM heilsustöðvar utan Kópavogs gegn greiðslu aðgangseyris* í sund á viðkomandi stað. Sundlaug Kópavogs / sími 570 0470 Íþróttamiðstöð Versalir / sími 570 0480 www.gymheilsa.is heilsaGYM Sundlaug KópavogsSalalaug FRÍTT ER Í ALLA HÓPTÍMA FYRIR KORTHAFA Stundaskrá getur breyst án fyrirvara og tímar fallið niður. Hóptímar verða í sumarfríi í júlí fram í ágúst. SUMARTILBOÐ Í LÍKAMSRÆKT OG SUND Á AÐEINS 14.990 KR. Kortið gildir í þrjá mánuði. TILBOÐIÐ GILDIR AÐEINS Í MAÍ MÁNUÐI 2014 HVER OG EINN FÆR SÉRSNIÐNA ÆFINGAÁÆTLUN OG KENNSLU Á TÆKIN BRASILÍUMENN hafa unnið flesta heimsmeistaratitla í sögunni (1958, 1962, 1970, 1994, 2002) en það eru aftur á móti Þjóðverjar sem hafa oftast endað í öðru sæti á HM (1966, 1982, 1986, 2002). Báðar þjóðir hafa verið í efstu tveimur sætunum á sjö af nítján heimsmeistaramótum sögunnar því Þjóð- verjar hafa unnið HM þrisvar (1954, 1974, 1990) og Brasilíumenn hafa tvisvar endað í 2. sæti (1950, 1998). Brasilía og Þýskaland hafa hins vegar ekki komist í úrslitaleikinn síðan að þau mættust í úrslita- leiknum 2002. Þjóðverjar hafa þó endað í þriðja sæti undanfarnar tvær keppnir og eru eina þjóðin sem hefur unnið yfir tíu verðlaun á HM (3 gull, 4 silfur, 4 brons). HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU 29 DAGAR Í FYRSTA LEIK

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.