Fréttablaðið - 14.05.2014, Side 62

Fréttablaðið - 14.05.2014, Side 62
14. maí 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34 „Það eru auðvitað ýmsar skegg- toganir um þetta en mér finnst Conchita ógeðslega flott,“ segir Guðrún Mobus Bernharðs en hún ákvað að skarta alskeggi til heið- urs hinni austurrísku Conchitu Wurst, sem sigraði Eurovison- keppnina um liðna helgi. Guðrún, sem er 34 ára gömul, hefur verið ófeimin við að skarta skeggi und- anfarin ár enda sprettur það á eigin spýtur. „Mér fannst skegg- vöxturinn óþægilegur til að byrja með, það var mikil pressa á mér og margir gerðu ráð fyrir því að ég væri í hormónameðferð eftir að ég leyfði skegginu að vaxa,“ segir Guðrún. Hún fór í leisermeðferð sem lauk fyrir um það bil þremur árum í von um að útrýma skegg- vextinum. „Vöxturinn minnkaði eftir meðferðina en í dag leyfi skegginu að vaxa og dafna og skammast mín ekki neitt.“ Guðrún er ánægð með að sig- urvegari Eurovision komi úr annars konar flóru. „Mér finnst þetta frábært, því sigur Conchitu opnar augu fólks fyrir því að fólk er ekki bara svart og hvítt. Við erum misjöfn eins og við erum mörg.“ Hún segist þó finna fyrir jákvæðum viðbrögðum frá fólki hér á landi. „Svona er samt lífið og tilveran, ég bara fæddist svona og það er ástæðan fyrir því að ég er með skegg.“ Eins og fyrr segir litaði hún skegg sitt með eyeliner og mál- aði til að gera það greinilegra til heiðurs Conchitu. „Mig langaði bara að gera þetta og sá sem tjáir sig um mitt persónulega útlit á niðrandi máta og er ekki náinn mér eins og fjölskylduvinur og þess háttar, á í raun bara bágt myndi ég segja,“ segir Guðrún. „Mér finnst frábært hvað Íslendingar eru orðnir jákvæðir og opnir og tilbúnir að fræðast um næsta í stað þess að bindast fordómum, enda eru fordómar heftandi, eins og Pollapönkarar gera sér fyllilega grein fyrir. Ég er stolt af þeim,“ útskýrir Guð- rún. gunnarleo@frettabladid.is Mér finnst frábært hvað Íslendingar eru orðnir jákvæðir og opnir og tilbúnir að fræðast um næsta í stað þess að bindast fordómum, enda eru fordómar heftandi, eins og Pollapönkarar gera sér fyllilega grein fyrir. Ég er stolt af þeim. Guðrún Mobus Bernharðs Goodfellas. Sameinar allt sem góð mynd þarf að hafa; leikstjórn, leikara, góða sögu og umfram allt frábærar samræður. Árni Björn Helgason, yfirmaður erlendrar framleiðslu hjá Sagafilm. BESTA BÍÓMYNDIN „Það eru meiri líkur en minni á að þeir komi hingað í haust,“ segir Snorri Þórisson, forstjóri fram- leiðslufyrirtækisins Pegasus. Ef allt gengur eftir aðstoðar Pegasus tökulið sjónvarpsþáttanna Game of Thrones á Íslandi þegar fimmta þáttaröðin verður tekin upp í vetur. Ef verður af komu tökuliðsins verð- ur þetta í fjórða sinn sem það sækir landið heim til að taka upp hluta af þessari vinsælu sjónvarpsseríu. Verið er að leita að tökustöðum fyrir þáttaröðina og líkur eru á að þeir verði svipaðir hér á landi og í fyrra þegar hluti af fjórðu seríu var tekinn upp. Þá fóru tökur meðal annars fram við Stekkjagjá á Þing- völlum, á Hengilssvæðinu og í Þjórsárdal. „Það er verið að skoða tökustaði en ekkert er klárt að svo stöddu,“ segir Snorri. Fjölmargir Íslendingar hafa komið að framleiðslu þáttanna og hafa margir þeirra, til að mynda starfsmenn í búninga- og förðun- ardeildum, fengið áframhaldandi starf hjá framleiðendum Game of Thrones á erlendri grundu. „Við reynum að vera með sama starfsfólkið í tökunum. Það er ágætt því það kemur yfirleitt sama fólk að utan og þá þarf ekkert að kynna starfsfólkið sérstaklega,“ segir Snorri. Hann telur komu tökuliðs- ins til landsins hafa mikla þýðingu fyrir íslenskan kvikmyndabransa. „Þetta er góð viðbót fyrir kvikmyndagerðarmenn því tökuliðið kemur yfirleitt á þeim tíma þegar er frekar lítið að gera í þessum bransa hér heima.“ - lkg Game of Thrones aft ur til Íslands Tökulið þáttanna tekur að öllum líkindum upp fi mmtu seríu á landinu í vetur. GRÍÐARLEGA VINSÆL Fjórða serían af Game of Thrones er nú í sýningu. ➜ Rúmlega tvær milljónir manna horfðu á fyrsta þátt í fyrstu seríu þegar hann var frumsýndur árið 2011 ➜ Á milli sex og sjö milljónir horfa á hvern þátt í seríu 4 ➜ 42% áhorfenda eru konur ➜ Þátturinn hefur hlotið ein Golden Globe-verðlaun, ein BAFTA-verðlaun og tíu Emmy- verðlaun Stolt af skegginu sínu Guðrún Mobus Bernharðs skartar skeggi ófeimin. Fyrst fannst henni skeggvöxtur- inn óþægilegur en nú leyfi r hún skegginu að vaxa og skammast sín ekkert fyrir það. SÁTT MEÐ SKEGGIÐ Guðrún Mobus Bernharðs litaði skeggið og málaði til heiðurs Conchitu Wurst, sigurvegara Eurovision. MYND/EINKASAFN „Hann er nú með hefðbundinn og þægilegan kröfulista en hann vill fá banana og verða þeir að hafa þroskast í sjö og hálfa viku,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finn- björnsson spurður út í kröfulista breska tónlistarmannsins Toms Odell sem heldur tónleika í Hörpu 26. júlí næstkomandi. „Hann fer fram á fleiri ávexti og, að fá góðan mat að borða fyrir tón- leika og munum við fúslega verða við þeirri beiðni,“ segir Guðbjartur. Miðasala á tónleikana gengur vel og er lítið magn af miðum eftir. „Mér skilst að það séu um 1.200 miðar seldir þannig að það er ekki mikið eftir.“ Tom Odell skaust upp á stjörnuhimininn á síð- asta ári þegar hann gaf út plötuna Long Way Down og hefur meðal annars hitað upp fyrir Elton John á tónleikum. „Hann er að fara að hita upp fyrir Neil Young á tónleikum í Hyde Park í London í sumar,“ segir Guðbjartur. Þá hefur hann á tónleikum sínum einnig leik- ið ábreiður þekktra laga Bítlanna eins og Oh Darling og Get Back. Heyrst hefur að Eyþór Ingi og Atóm- skáldin muni sjá um upp- hitun á tónleikum Odells í Hörpu. „Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hver sér um upphitun en það kemur í ljós á næstunni.“ - glp Odell heimtar banana baksviðs Breski tónlistarmaðurinn Tom Odell er með heldur óvenjulegan kröfulista en hann fer fram á að fá sjö og hálfs vikna gamla banana áður en hann stígur á svið. KLÁR Á KLAKANN Tom Odell fer ekki fram á neinar rósir baksviðs en vill þó fá þroskaða banana. MYND/EINKASAFN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.