Fréttablaðið - 24.05.2014, Blaðsíða 20
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 20
Frá því að nýr meirihluti
tók við um mitt kjörtíma-
bil má segja að skipt hafi
verið um gír í Kópavogi.
Í raun má segja að í tíð
síðasta meirihluta hafi
Kópavogur verið í hand-
bremsu. Það er að mörgu
leyti skiljanlegt því það
er flókið að vera með
fjögurra flokka meiri-
hluta þar sem ólík sjón-
armið og andstæðir
kraftar eru sífellt að tak-
ast á. Með tilkomu nýs meirihluta
var strax hafist handa við að koma
hreyfingu á hlutina. Það tókst og
voru greinileg merki um viðhorfs-
breytingu í bænum á fyrstu dögum
meirihlutans. Við tók tímabil þar
sem bærinn og atvinnulífið tóku
höndum saman. Þess má víða sjá
merki í bænum þar sem endur-
reisn byggingamarkaðarins hófst
í Kópavogi. Nú þegar hefur verið
flutt inn í fjölmörg hús og íbúðir
sem byrjað var á fyrir einungis
tveimur árum.
Kröftug uppbygging
Við munum halda áfram kröftugri
uppbyggingu íbúðahverfa sem var
hrundið af stað þegar nýr meirihluti
tók við en um leið verður áfram
lögð áhersla á niðurgreiðslu skulda.
Allar tekjur af lóðaúthlutunum
munu fara í niðurgreiðslu skulda.
Það er mjög mikilvægt að halda sig
við þá stefnu því þar sparast 70-100
milljónir króna á ári af hverjum
milljarði sem við greiðum upp.
Þetta eru miklir fjármunir, ekki síst
þegar horft er yfir heilt kjörtímabil.
Þessa peninga er hægt að nota til að
bæta þjónustuna við bæjarbúa. Við
munum einnig halda áfram á braut
skatta- og gjaldalækkana.
Helsta áherslumál okkar
á næsta kjörtímabili er að
gera skólana okkar enn þá
betri. Við munum halda
áfram á þeirri braut sem við
höfum markað og skilað góðum
árangri. Við munum horfa til allra
skóla og skólastiga. Við munum
auka fjölbreytni í dægradvölinni
og beita okkur fyrir því að heima-
námið verði hluti af daglegu starfi
dægradvalar. Við munum leggja
áherslu á að skólarnir okkar séu
í fremstu röð og nýti sér kosti
upplýsingatækninnar. Kópavog-
ur er íþróttabær Íslands og á síð-
ustu árum hafa verið byggðir upp
sterkir innviðir. Nú horfum við
enn frekar inn á við og tvöföld-
um íþróttastyrki barna og tryggj-
um að Kópavogur verði áfram í
fremstu röð.
Á kjörtímabilinu sem nú er að
ljúka hefur okkur tekist að snúa
vörn í sókn. Við horfum björtum
augum til framtíðar. Verum þess
minnug að traust fjármálastjórn
með lækkun skulda bæjarsjóðs og
lækkun gjalda er ekki sjálfgefin.
Við verðum að vinna markvisst
að framgangi Kópavogs og það
verður best gert með markvissum
vinnubrögðum. Gylliboð stjórn-
málaflokka mega ekki verða til
þess að við beygjum af þeirri leið
sem mörkuð hefur verið síðustu
tvö árin.
➜ Verum þess minnug
að traust fjármála-
stjórn með lækkun
skulda bæjarsjóðs og
lækkun gjalda er ekki
sjálfgefi n.
Traust fjármála-
stjórn, grunnur
framtíðar
Yfir gjaldkerastúkunum í
Íslandsbanka í Lækjargötu
er stórt auglýsingaplakat.
Á myndinni er ung stúlka
í júdógalla í íþróttasal. En
hún er ekki í júdó heldur í
símanum, hún starir á skjá-
inn og er að gera eitthvað
– hún er ekki hér, hún er
annars staðar. Samtíminn í
hnotskurn.
Auglýsingin er ekki við-
vörun frá Lýðheilsustofnun heldur
hvatning frá bankanum sem sam-
þykkir þessa staðalímynd, hann vill
að séum ekki hér heldur í símanum,
að nota appið þeirra. Við lifum í ríku
samfélagi þar sem næstum allir á
aldrinum 10 til 50 ára ganga um
með 100.000 króna leikfang í hend-
inni, litla tölvu sem er líka sími og
lítur út eins og svartur spegill. Þetta
er magnað tæki sem er sítengt við
stafrænan alheim af öllu og engu,
góðu og slæmu – við dýrkum tækið
og dáum og verðum alltaf að eiga
nýjustu útgáfuna því að
við viljum ekki dragast
aftur úr, verða púkó, missa
af einhverju sem við erum
samt ekki alveg viss um
hvað er.
Við hittumst á kaffihúsi
en tölum varla við vini
okkar, við störum í svarta
spegilinn – kíkjum í það
minnsta reglulega á hann,
og alveg örugglega miklu
oftar en við höldum eða viljum við-
urkenna. Við laumumst til að kíkja
á hann á fundum, í bílnum, í bíó, alls
staðar og hvar sem er. Til að gá að
hverju, vitum við það? Börnin okkar
fylgjast með okkur stara í spegilinn.
Við veitum þeim minni athygli, þau
verða pirruð, þau gera okkur pirruð
og á endanum réttum við þeim sím-
ann svo að við fáum smá frið. Þau
eru afskipt og verða síðan ofvirk af
of mikilli örvun.
Við erum líka að verða ofvirk,
höldum ekki athyglinni nema í
fáeinar sekúndur, missum þráðinn
og okkur fer að leiðast – allt verð-
ur að vera stutt og sniðugt, í lit og
með hljóði. Við tökum myndir til að
sanna að við höfum gert þetta, verið
þar, en það sem við gerðum var bara
að taka mynd og við vorum ekki
þar heldur í símanum. Við mötum
Netið af upplýsingum um okkur, við
höldum að við séum í leik en það er
verið að leika með okkur. Við flökk-
um milli samfélagsmiðla, lækum,
sérum, gerum eitthvað sniðugt,
njósnum og skoðum kettlingamynd-
bönd – við fjarlægjumst annað fólk,
við verðum smám saman andfélags-
leg því að samskiptahæfnin dofnar,
við erum einangruð inni í svarta
speglinum, kunnum ekki lengur
kurteisi, sýnum ekki tillitssemi og
verðum alltaf sjálfhverfari og sjálf-
hverfari þangað til að við hverfum
inn í sjálf okkur. Erum við í alvör-
unni viðstödd eigið líf? Eigum við
okkur líf? Eða erum við horfin inn í
svarta spegilinn?
Svarti spegillinn
Það geta flestir sammælst
um að Reykjavík er frábær
borg. Einnig geta flest-
ir sammælst um að það
er gott að búa í velferðar-
samfélagi þar sem hugsað
er um náungann. Þeir sem
verða fyrir atvinnumissi fá
atvinnuleysisbætur og fólk
sem ekki á rétt á atvinnu-
leysisbótum getur fengið
fjárhagsaðstoð frá sveitar-
félaginu. Þessi fjárhagsað-
stoð er þó ekki í takti við
raunveruleikann. Okkur í
Dögun finnst að fjárhagsaðstoðin
mætti vera hærri. Þeir sem hafa
enga atvinnu eða þurfa af öðrum
ástæðum að þiggja fjárhagsaðstoð
frá Reykjavíkurborg eiga mjög erf-
itt með að láta enda ná saman.
Margir geta það hreinlega ekki.
Það er sér í lagi afar erf-
itt fyrir einstæða foreldra
að lifa af fjárhagsaðstoð.
Húsaleiga í borginni er há
og margir sem eru í eigin
húsnæði þurfa að greiða
háar fjárhæðir mánaðar-
lega af húsnæðislánum.
Skuldugir fasteignaeigend-
ur sem vilja selja húsnæði
sitt og fara á leigumark-
að hætta sér ekki til þess
eins og staðan er í dag.
Barnafólk berst í bökkum
og í Reykjavík þurfa for-
eldrar t.d. að borga fyrir skóla-
máltíðir barna sinna, sem ekki var
áður. Það má segja að reikningar
hrannist upp hjá þeim sem hafa úr
litlu að moða. Dögun í Reykjavík
lítur ekki undan þeirri staðreynd
að aukin fátækt er raunveruleiki
fjölda fólks í borginni. Það er skýrt
markmið Dögunar í Reykjavík að
koma betur til móts við lágtekju-
fólk.
Tekjutengja á frístundakort
Það þarf að bregðast við bráða-
vanda á húsnæðismarkaði. Dögun
í Reykjavík vill að Félagsbústöðum
hf. verði falið að byggja 300-400
bráðabirgðaíbúðir í borginni strax
eftir kosningar. Dögun vill einnig
að fjárhagsaðstoð til foreldra dugi
fyrir framfærslu heimilisins með
tilliti til fjölda barna. Einnig vill
Dögun í Reykjavík að frístunda-
kortið verði tekjutengt þannig að
börn frá efnaminnstu heimilun-
um fái mestan styrk. Stefna Dög-
unar í Reykjavík er velferðar- og
fjölskyldustefna. Meiri jöfnuð og
minna mas, X-T.
Meiri jöfnuð og minna mas
STJÓRNMÁL
Ármann Kr.
Ólafsson
bæjarstjóri
í Kópavogi
SAMFÉLAG
Stefán Máni
rithöfundur
VELFERÐ
Eva Guðrún
Gunnbjörnsdóttir
menningarmiðlari,
í 12. sæti á lista
Dögunar í Reykjavík
Við kunnum vel að meta endurtekningar…
Sendibílar ársins 2013 og 2014
Einn sigur er glæsilegur árangur, tveir sigrar eru
enn betri! Ford er fyrsti framleiðandinn til að vinna
titilinn Sendibíll ársins - International Van of the
Year tvö ár í röð. Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu
finnum við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
FORD TRANSIT CONNECT
FR
Á 2.382.470 ÁN VSK
FORD TRANSIT CUSTOM
Ford Transit Connect, EcoBoost bensín 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,6 l/100 km. CO2 losun 129 g/km. Verð með bensínvél frá 2.990.000 m/vsk.
Ford Transit Connect, 1,6TDCi dísil 75 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,4 l/100 km. CO2 losun 115 g/km. Verð með dísilvél frá 3.250.000 m/vsk.
Ford Transit Connect með 1,6TDCi dísilvél og Start-Stop spartækni uppfyllir þau skilyrði sem þarf til að fá frítt í stæði í miðbæ Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
Ford Transit Custom, 2,2TDCi dísil 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,9 l/100 km. CO2 losun 183 g/km. Verð frá 4.390.000 m/vsk.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Transit Custom Transit Connect
FR
Á 3.498.008 ÁN VSK
KOMDU OG PRÓFAÐU SENDIBÍLA ÁRSINS
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
KR.
KR.
ford.is