Fréttablaðið - 24.05.2014, Page 43
GENGIÐ AÐ ELLIÐAÁM
Náttúruganga verður frá Gerðubergssafni í dag kl.
14. Gangan er leidd af náttúrufræðingum og hefur
sérstakt þema. Gengið verður niður að Elliðaám.
Boðið hefur verið upp á göngur um helgar í næsta
nágrenni bókasafna sem öll eiga það sameigin-
legt að vera í nálægð við fjölskrúðuga náttúru.
FINNUR
MIKINN MUN
Erna finnur
mikinn mun
á sér eftir að
hafa dvalið á
Heilsuhótelinu.
Hún hefur farið
þangað árlega
undanfarin ár.
MYND/VÍKUFRÉTTIR
Erna Árnadóttir hefur farið árlega á Heilsu-hótel Íslands síðastliðin fimm ár og er alltaf jafn ánægð með dvölina þar. „Það er alltaf jafn
notalegt að koma á Heilsuhótelið. Starfsfólkið er
frábært og yndislegt og ég hitti alltaf skemmtilegt
fólk þar. Ég verð bara eins og ný úr kassanum á
eftir.“
Hefðbundin meðferð á Heilsuhótelinu tekur tvær
vikur. Dagskráin er einföld og byggist á ákveðnu
mataræði, þar sem aðaluppistaðan er grænmeti og
ávextir, súpur og safar, heilbrigð hreyfing, sog æða-
og bólgueyðandi nudd, gufuböð, hvíld og slökun.
„Ég hef nýtt mér þjónustuna sem er í boði á hótel-
inu. Á síðasta námskeiði var til dæmis boðið upp á
jógatíma klukkan sjö á morgnana, sem mér fannst
alveg frábært. Það er toppurinn á tilverunni að geta
byrjað daginn á þennan hátt. Einnig var ég dugleg
að nýta mér innrauða klefann, sem mér finnst ein-
staklega gott að fara í. Hitinn í honum vinnur vel á
öllum bólgum í líkamanum og ég bókstaflega fann
þær hverfa úr mjöðmunum á mér en ég er með slit
í mjöðmum. Fyrirlestrarnir eru líka frábærir og ég
hef lært mikið af því að hlusta á þá. Í fyrsta skiptið
sem ég fór tók ég ekki allt inn, það er svo mikið af
upplýsingum sem eru gefnar þarna en smátt og
smátt hef ég orðið meðvitaðri um hvað ég læt ofan
í mig,“ segir Erna og brosir.
Hún segist hafa breytt um lífsstíl að ákveðnu
leyti eftir að hafa dvalið á Heilsuhótelinu. „Ég er
hætt að nota hvítt hveiti og hvítan sykur. Ég hef
líka oftar hætt við að fá mér eitthvað sem er ekki
gott fyrir mig eftir að ég fékk aukna vitneskju um
mataræðið og finn að mér líður betur eftir að hafa
bætt það. Það er svo auðvitað aukabónus að hafa
lést um nokkur kíló við dvölina á Hótelinu.“
Erna segist skilja af hverju allir séu að fara á
Heilsuhótelið. „Mér líður alltaf svo vel eftir að hafa
farið þangað og mæli með því fyrir alla. Svo hittist
það þannig á að það er alltaf skemmtilegt fólk þar
á þeim tíma sem ég hef verið þar, ég held að það sé
bara skemmtilegt fólk sem velur að fara þangað,“
segir hún og hlær.
EINS OG NÝ KONA
HEILSUHÓTEL ÍSLANDS KYNNIR Erna Árnadóttir lætur vel af dvöl sinni á
Heilsuhóteli Íslands enda hefur hún farið þangað fimm sinnum.
Næstu námskeið við
Heilsuhótel Íslands
Heilsunámskeið, tvær vikur
6. - 20. september, örfá pláss laus
3. - 17. janúar 2014, vinsæll tími
Munið að panta tímanlega
Sími: 512 8040www.heilsuhotel.is
6.-20. júní, vinsæll tími
Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu?
Kynntu þér spennandi nám sem býður upp á mörg tækifæri og möguleika
Innritun lýkur . maí
STARFSTENGT FERÐAFRÆÐINÁM
Ferðamálaskólinn sími: 594 4020
Ævintýralegur
starfsvettvangur
FERÐAMÁLA
SKÓLINN
WWW.MK.IS
Við skutlum Júlíu heim
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Júlíu