Fréttablaðið - 24.05.2014, Síða 82
24. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
ÞESSA FALLEGU
MYND TEIKNAÐI
Elísa Ýr, nemandi í 3.
bekk Seljaskóla.
Kennari: Stafaðu orðið rúm.
Drengur: Rúmm.
Kennari: Slepptu öðru m-inu.
Drengur: Hvoru?
Nonni minn, hvað ertu að gera með þessa mýflugu?
Ég ætla að gefa mömmu hana.
Af hverju í ósköpunum?
Nú, þú segir að hún geri alltaf úlfalda úr mýflugu!
Af hverju er litla systir þín að gráta?
Vegna þess að ég vildi ekki gefa henni af namminu mínu.
Er nammið hennar búið?
Já, hún var líka hágrátandi á meðan ég borðaði það.
Brandarar
Langaði þig alltaf að verða
vísindamaður? Ég hef alltaf verið
svakalega forvitinn.
Hvað fannst þér skemmtileg-
ast að læra í skólanum? Mér
fannst skemmtilegast í smíðum
og íslensku. Í smíðum vegna þess
að þá fékk maður að sjá hvernig
hlutir eru búnir til og íslensku
vegna þess að þá fékk maður að
sjá hvernig orð eru búin til.
Hefurðu aldrei lent í neinu slysi
þegar þú ert að gera tilraunir?
Þegar ég var að taka upp þættina
mína klifraði ég upp Perluna með
ryksuguhönskum. Á leiðinni aftur
niður var ég orðinn svo þreyttur í
höndunum að ég missti takið– á
Perlunni miðri– en sem betur fer
var Hjálparsveit skáta í Reykjavík
með mig í öryggislínu og bjargaði
mér.
Hvað þarf maður að borða til
að verða svona gáfaður? Ég held
ég sé alls ekki gáfaðri en nokkur
annar– ég er alltaf að hitta bæði
krakka og fullorðið fólk sem eru
miklu klárari en ég. Hins vegar
finnst mér ægilega gaman að elda
– enda eru það mikil vísindi– og þá
sérstaklega svokallaðar armadilló-
kartöflur, sem eru undirbúnar
og bakaðar eftir kúnstarinnar
reglum.
Eru mamma þín og pabbi aldrei
pirruð á tilraununum þínum?
Nei, ég held ekki. Ég er nefnilega
afar duglegur að taka til eftir mig
– sem er regla númer eitt þegar
maður gerir tilraunir!
Ef krakka langar til að verða
vísindamenn þegar þau verða
stór hvað eiga þau þá að gera?
Lykillinn er að finna eitthvað
sem þú hefur áhuga á og demba
þér á bólakaf í það– hvort sem
það heitir stærðfræði, eldflauga-
smíðar eða bollubakstur. Ef þú
hefur áhuga á því sem þú ert að
gera verður allt miklu auðveldara.
Hver er skemmtilegasta tilraun-
in sem þú hefur gert? Í fyrra bjó
ég til 700 lítra af slími og sökkti
mér á bólakaf í það. Ég held að
það sé uppáhaldstilraunin mín–
nema þegar það þurfti að spúla
mig með slöngu þegar ég kom
upp úr því, auðvitað.
Hvaða tilraun í bókinni er best
að byrja á ef maður hefur aldrei
gert tilraun áður? Það er tilraun
í bókinni sem heitir „Tryllta jafn-
vægistilraunin“ og er fullkomin
fyrir nýja vísindamenn. Þú þarft
ekkert nema sjálfa/n þig og smá
pláss. Þetta er tilraun sem sýnir
þér að það er hægara sagt en gert
að halda jafnvægi þegar þú lokar
augunum og hvers vegna það ger-
ist. Prófaðu bara.
Stattu á öðrum fæti með opin
augun og prófaðu svo að loka
þeim í smá stund. Jafnvægið fer
út um gluggann!
Hvort er skemmtilegra að vera
með sjónvarpsþátt eða skrifa
bók? Þetta er í raun svolítið líkt,
því áður en þú leikur í þætt-
inum þarftu að skrifa hann. Og
eftir að þú hefur skrifað bókina
ferðastu um og lest upp úr henni.
Ég ætla að segja að þetta sé jafn
skemmtilegt.
Verðurðu aftur í sjónvarpinu
næsta vetur? Já, svo sannar-
lega! Við erum nú þegar byrjuð
að taka upp nýjar og ótrúlega
spennandi tilraunir. Ég ætla ekki
að gefa neitt upp, en ég get þó
sagt ykkur að himingeimurinn
kemur við sögu í einni þeirra– í
miklu návígi!
Þá er ég líka þessa dagana að
lesa mér til um risapöddur …
Klifraði upp Perluna
Ævar vísindamaður er búinn að gefa út nýja bók, Umhverfi s Ísland í 30
tilraunum! Hann er líka á fullu að taka upp sjónvarpsþætti fyrir næsta vetur og
gera nýjar tilraunir. Og svo er hann að lesa um risapöddur …
ÆVAR VÍSINDAMAÐUR MYND/LALLI SIG
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
97
„Jæja þá, sudoku gáta,“ sagði Kata glottandi. „Nú er ég orðin svo góð í að
leysa sudoku að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa
hana,“ bætti hún við. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“ sagði hann.
„Til er ég.“ Lísaloppa var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg
til í keppni. „Við glímum öll við hana og þá kemur í ljós hversu klár þú ert
orðin,“ sagði hún. „Allt í lagi,“ sagði Kata. „En ég vara ykkur við, ég er orðin
mjög klár,“ sagði hún montin.
Heldur þú að þú getir leyst þessa sudoku gátu hraðar en Kata?
4 6 3 5 7
7 5 9 4
1 2 7 9 6
3 6 1 7 5
9 7 5 3
5 8 3 1 6
2 9 6 1 3
3 1 4 5
8 3 5 4 2