Fréttablaðið - 13.08.2014, Blaðsíða 4
13. ágúst 2014 MIÐVIKUDAGUR| fRéttIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
sVonA eRUM VIÐ
SPARAÐUVASKINN
Fram til 31. ágúst gefum við afslátt
sem nemur virðisaukaskattinum
af öllum okkar eldhúslínum.
Kvik Reykjavík:
Suðurlandsbraut 16. Sími 5880500
Allir eiga að geta eignast flott eldhús
125 súluungar voru skráðir í veiðiskýrslur árið 2012.
Árið 2001 voru þeir 1.196 talsins.
sAMfélAGsMál „Það er eins og
innflytjendur eigi ekki að fá að tjá
skoðun sína á málefnum sínum,“
segir Anna Kristinsdóttir, mann-
réttindastjóri Reykjavíkurborgar.
Í gær kynnti mannréttindaráð
Reykjavíkur greiningu á haturs-
orðræðu sem Bjarney Friðriks-
dóttir, doktorsnemi í Evrópuráð-
gjöf, vann fyrir ráðið. Þar kemur
fram að Íslendingar bregðast harð-
ar við ef innflytjandi hefur sig í
frammi um málefni innflytjenda
en þegar íslenskur talsmaður gerir
það.
Samkvæmt greiningunni ber
talsvert á ummælum sem ein-
kennast af kynþáttafordómum í
umræðunum á íslenskum frétta-
netmiðlum. Algengast er að slík
ummæli séu sett fram í garð
múslima. Skemmst er að minn-
ast morðhótunar sem Salmann
Tamimi kærði, fyrrverandi for-
maður Félags múslima á Íslandi,
en sá ósómi leit dagsins ljós í
umræðunni um byggingu mosku
í Reykjavík. Einnig eru algeng
ummæli sem einkennast af þjóð-
ernishyggju og ný-rasisma, sam-
kvæmt greiningunni.
Bjarney hafði úr nægu að moða
því hún las tæp fimmtán þúsund
ummæli og var aðeins fjórðungur
þeirra skrifaður af konum.
Reykjavík er nú í aðlögunarferli
til að fylla flokk Evrópuráðsins
yfir alþjóðlegar borgir eða Inter-
cultural city eins og verkefni ráðs-
ins er kallað. Alls eru sextíu borg-
ir á þeim lista og svo Reykjavík
komist á hann verður hún meðal
annars að standast úttekt sem eft-
irlitsmenn ráðsins munu gera og
eru þeir væntanlegir á haustmán-
uðum. Þeir munu kanna hvernig
borgin sinnir innflytjendum.
Efnisflokkarnir sem skoðaðir
voru í greiningunni voru flótta-
fólk, fólk af erlendum uppruna
eða innflytjendur, bygging mosku
í Reykjavík, jafnrétti kynjanna,
femínismi, kynferðislegt ofbeldi
og hinsegin fólk. jse@frettabladid.is
Harðar brugðist við
orðum innflytjenda
Mannréttindastjóri undrast ekki að innflytjendur veigri sér við að blanda sér í
umræðuna um innflytjendamál. Greining á hatursorðræðu leiðir í ljós að hart er
brugðist við orðum þeirra. Algengast að fordómafull ummæli falli í garð múslima.
fRá bænAstUnD MúslIMA Svo virðist sem innflytjendur eigi ekki að fá að tjá
skoðanir sínar á málefnum innflytjenda. fRéttABLAðIð/VILHELm
Jákvætt
l Upplýst fólk tekur jafnan til
varna fyrir minnihlutahópa
þegar fordómafull ummæli eru
sett fram.
l Reykjavík er í tilraunaverkefni
með Intercultural city og
því munu eftirlitsmenn frá
Evrópuráðinu gera úttekt á því á
haustmánuðum hvernig borgin
þjónar innflytjendum.
neikvætt
l fólki af erlendum uppruna virðist
ekki eiga að líðast að hafa gagn-
rýna rödd í samfélaginu.
l fordómafull ummæli, sem rætur
eiga að rekja til staðalímynda, eru
algeng, einkum gegn múslimum.
l Þeir sem láta slík ummæli falla
virðast ekki þekkja takmörk
tjáningarfrelsisins.
l Nokkrir halda úti vefsíðum þar sem
haturs- og hræðsluáróðri er beint
gegn múslimum, óspart notað í um-
ræðunni um byggingu mosku.
GReInInG á hAtURsoRÐRæÐU
spánn, Ap Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin,
WHO, hefur komist að þeirri niðurstöðu að sið-
ferðilega réttmætt sé að nota lyf, sem enn eru
á tilraunastigi, á sjúklinga sem smitast hafa
af ebóluveirunni.
Einungis tveir Bandaríkjamenn og einn
Spánverji hafa til þessa fengið að njóta góðs
af lyfjum, sem hugsanlega gætu hjálpað ebólu-
smituðum. Spánverjinn lést í gær en Banda-
ríkjamennirnir tveir eru sagðir vera á batavegi.
Afríkubúar hafa hins vegar enn engin lyf
fengið, þrátt fyrir að veiran hafi á þessu ári lagt
meira en þúsund manns að velli í fjórum Afríku-
ríkjum: Gíneu, Síerra Leóne, Líberíu og Nígeríu.
„Ef til eru lyf sem gætu bjargað manns-
lífum, eins og tilraunir á dýrum benda til,
eigum við þá ekki að nota þau til þess að
bjarga mannslífum?“ spyr Marie-Paule
Kieny, aðstoðarframkvæmdastjóri stofnunar-
innar. Hins vegar tók hún fram að ekki mætti
vekja falskar vonir um að fundin væri örugg
leið til þess að lækna ebólu: „Það er alls ekki
svo,“ sagði hún á blaðamannafundi á Spáni
í gær.
Sumir sérfræðingar telja engan veginn
ljóst að þróun nýrra lyfja eða bóluefna sé
komin það langt að þau geti skipt sköpum í
baráttunni við ebólu. - gb
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir réttmætt að nota tilraunalyf gegn ebólu:
Meira en þúsund manns hafa látið lífið
bARIst VIÐ ebólUnA Heilbrigðisstarfsmaður á
sjúkrahúsi í Síerra Leóne skoðar ebólusmitaða sjúk-
linga. fRéttABLAðIð/AP
stJóRnsýslA Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið vill taka
skýrt fram að Framkvæmda-
sjóður ferðamannastaða er innan
fjárheimilda. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu á vef ráðu-
neytisins.
Í tilkynningunni segir að nýút-
komin skýrsla um fjárreiður rík-
issjóðs taki ekki tillit til aukafjár-
veitingar sem ríkistjórnin veitti,
um 380 milljóna króna, auk tæp-
lega 200 milljóna sem sjóðurinn
átti ósnertar frá fyrra ári. - sa
Ráðuneytið svarar fyrir sig:
Telur sjóðinn
innan heimilda
Soffía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
hæGt KólnAnDI Í dag verður yfirleitt hæg N-átt eða hafgola. Í nótt snýst vindur í
suðvestlægar áttir en áfram verður hægviðri að mestu. Á föstudag hvessir heldur er
líður á daginn, fyrst NV-til. Áfram hlýjast S- og SV-til en kólnar lítillega í veðri.
8°
3
m/s
10°
6
m/s
14°
2
m/s
12°
7
m/s
Hæg
SV-átt
austantil
en 7-13
m/s V-til.
Hæg
breytileg
átt í
fyrstu,
hvessir
síðdegis.
Gildistími korta er um hádegi
26°
33°
20°
21°
20°
22°
18°
22°
22°
27°
22°
30°
32°
36°
22°
24°
21°
20°
11°
3
m/s
12°
9
m/s
9°
5
m/s
9°
6
m/s
8°
4
m/s
9°
5
m/s
6°
6
m/s
14°
11°
10°
8°
12°
11°
13°
12°
13°
10°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
frankfurt
friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
peKInG, Afp Oft verður hitinn nær óbærilegur í Peking í Kína yfir sum-
arið og fer stundum upp í fjörutíu gráður.
Undanfarin ár hafa hitabylgjur gengið reglulega yfir borgina og
önnur héröð landsins, með þeim afleiðingum að fólk lætur lífið eða
þarf að leggjast inn á spítala vegna hitans. Þetta sumarið er engin
undantekning í Peking en hitinn hefur farið allt upp í 37 stig. Peking
er eins og gufuklefi og hefur fólki verið ráðlagt að halda sig innan-
dyra. Þeir sem þurfa að mæta í vinnu reyna að kæla sig niður eins og
öryggis vörðurinn á myndinni sem stendur í loftkældu glerbúri. - ebg
Hitinn getur náð fjörutíu gráðum í hitabylgjum í Kína:
Óbærilegur hiti í Peking
Í GleRbúRI Í stað þess að standa í sólinni eða í heitri kompu stendur öryggisvörður
í Peking í loftkældu glerbúri vegna þess mikla hita sem er í Kína þessa dagana.
NORdIcPHOtOS/AfP
MAnnRéttInDAMál Ríflega þús-
und Íslendingar hafa ákveðið að
sýna stuðning í verki við mann-
réttindar- og frelsisbaráttu Pal-
estínumanna og kaupa ekki ísra-
elskar vörur.
Á Facebook-síðu hópsins, Við
kaupum ekki vörur frá Ísrael, er
safnað saman upplýsingum um
vörur frá Ísrael sem seldar eru
á Íslandi, hvar þær fást, sem og
upplýsingum um alþjóðleg fyrir-
tæki sem styðja aðgerðir Ísraels-
manna. - ebg
Þúsund sýna stuðning í verki:
Sniðganga
vörur frá Ísrael