Fréttablaðið - 01.10.2014, Side 12
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12
HONG KONG, AP Mótmælendur í Hong
Kong hafa krafist þess að leiðtogi
borgarinnar fundi með þeim. Ef
hann vill það ekki hafa þeir hótað
frekari mótmælaaðgerðum.
Leiðtoginn, Leung Chun-ying,
sagði í gær að Kínverjar ætluðu
ekki að víkja frá ákvörðun sinni
um að takmarka kosningaúrbæt-
ur í borginni, sem er miðpunktur
fjármála í Asíu. „Ef Leung Chun-
ying mætir ekki á Almenningstorg-
ið fyrir miðnætti held ég að óum-
flýjanlegt sé að fleira fólk komi út
á göturnar,“ sagði Alex Chow, tals-
maður nemendanna. Hann sagði
að þeir væru að íhuga ýmsa kosti í
stöðunni, þar á meðal að mótmæla
á stærra svæði, krefjast verkfalls
verkamanna og hugsanlega setjast
að í byggingu í eigu stjórnvalda.
Búist er við auknum fjölda mótmæl-
enda á þjóðhátíðardegi Kínverja í
dag og talið er að þeir verði í heild-
ina um 100 þúsund. Xi Jinping, for-
seti Kína, hét því í þjóðhátíðarræðu
sinni að styðja þétt við bakið á hag-
sæld og stöðugleika í Hong Kong.
Hann sagði að stjórnvöld í Peking,
höfuðborg Kína, teldu að Hong Kong
myndi „skapa enn betri framtíð
fyrir hina stóru fjölskyldu móður-
landsins“.
Stjórnvöld í Kína hafa for-
dæmt mótmælin í Hong Kong, sem
mennta- og háskólanemendur hafa
staðið fyrir, og segja þau ólögleg.
Enn sem komið er hafa þau ekki
gripið inn í og hafa því látið hin hálf-
sjálfstæðu stjórnvöld í Hong Kong
takast á við vandann. Eftir að Leung
Chun-ying hafnaði kröfum nemenda
dró úr vonum um skjótfengna lausn
á deilunni, sem hefur staðið yfir í
sex daga. Mótmælendur hafa lokað
götum víða í Hong Kong og hefur
þurft að loka mörgum skólum og
skrifstofum af þeim sökum. Lög-
reglan notaði táragas og piparúða
á mótmælendur um síðustu helgi
en hefur ekki beitt sömu aðferðum
síðan þá, enda urðu þær síður en svo
til að draga úr mótmælunum.
„Við erum ekki hrædd við óeirða-
lögregluna, við erum ekki hrædd
við táragas, við erum ekki hrædd
við piparúða. Við förum ekki í burtu
fyrr en Leung Chun-ying segir af
sér. Við ætlum ekki að gefast upp,
við munum þrauka áfram,“ hrópaði
Lester Shum, einn af leiðtogum mót-
mælenda, yfir mannfjöldann.
freyr@frettabladid.is
Fáðu 20% afslátt af NOKIAN dekkjum
og styrktu Bleiku slaufuna um leið
Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega
hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða.
ein öruggustu dekk sem völ er á
ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum
breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Bíldshöfða 5a, Rvk
Jafnaseli 6, Rvk
Dalshrauni 5, Hfj
Aðalsímanúmer
515 7190
Opnunartími:
Virka daga kl. 8-17
Laugardaga: sjá MAX1.is
Fáðu ráðgjöf frá sérfræðingum MAX1. Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is
MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum út október
og hluti söluágóða rennur til Krabbameinsfélagsins.
Eru dekkin þín lögleg?
Kynntu þér nýja reglugerð
um mynstursdýpt á MAX1.is
Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta)
MAX1 &
DANMÖRK Helle Thorning-Schmidt,
forsætisráðherra Danmerkur,
segir mikilvægara að Danir sem
eru atvinnulausir komist aftur út
á vinnumarkaðinn heldur en að
útlendingum verði gert auðveldara
að fá vinnu í Danmörku.
Í ræðu á fundi með dönskum
atvinnurekendum í gær sagði for-
sætisráðherrann að kæmu útlend-
ingar með rétta fagmenntun til
Danmerkur gætu þeir átt þátt í að
auka efnahagslega velsæld í land-
inu. - ibs
Helle Thorning-Schmidt:
Atvinnulausir
Danir í forgang
Vilja fund með leiðtoga Hong Kong
Mótmælendur í Hong Kong krefjast fundar með Leung Chun-ying leiðtoga borgarinnar. Hann segir Kínverja ekki gefa neitt eftir.
REGNHLÍFAR GEGN PIPARÚÐA Óeirðalögreglan beitir piparúða gegn mótmæl-
endum eftir að þúsundir þeirra höfðu lokað aðalgötunni sem liggur að miðstöð
fjármálahverfisins í Hong Kong. Mótmælendurnir notuðu regnhlífar til að verjast
úðanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mótmælendurnir vilja að dregin verði til baka ákvörðun kínverskra
stjórnvalda um að dómnefnd þurfi að samþykkja alla frambjóðendur í
fyrstu beinu kosningunum í Hong Kong sem eru fyrirhugaðar árið 2017.
Kínverjar tóku við stjórn Hong Kong af Bretum árið 1997 og kvað sam-
komulag þeirra á um „eitt land, tvö kerfi“. Það átti að tryggja þessari fyrr-
verandi nýlendu Breta aðskilið laga- og hagkerfi í anda vestrænna ríkja.
➜ Samkomulag um „eitt land, tvö kerfi“
WASHINGTON, AP Julia Pierson, yfir-
maður leyniþjónustu Bandaríkj-
anna, viðurkenndi að stofnunin
hefði brugðist skyldum sínum eftir
að maður vopnaður hnífi komst
óáreittur inn í Hvíta húsið og hljóp
um helming þess áður en hann var
yfirbugaður.
„Þetta er óásættanlegt,“ sagði
Pierson, þegar hún var yfirheyrð
af þingnefnd í Washington vegna
atviksins. Hún lofaði því að fara yfir
starfshætti stofnunarinnar og hvers
vegna henni tókst ekki að stöðva
manninn fyrr. Pierson gekkst við
ábyrgð á því sem gerðist og sagði
að þetta myndi ekki gerast aftur.
Hún hefur verið harðlega gagn-
rýnd vegna atviksins. „Ég vildi
óska að þú hefðir verndað Hvíta
húsið eins og þú varðir mannorð þitt
hérna í dag,“ sagði fulltrúi demó-
krata við yfirheyrsluna. Skömmu
áður en hinn vopnaði maður stökk
yfir girðinguna við Hvíta húsið báru
tveir einkennisklæddir starfsmenn
leyniþjónustunnar kennsl á hann frá
fyrri samskiptum sínum við hann.
Þeir töluðu samt ekkert við hann og
létu yfirmenn sína ekki vita af því
að maðurinn væri á svæðinu. Hann
hafði verið stöðvaður 25. ágúst með
litla exi skammt frá girðingu Hvíta
hússins.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
var ekki í Hvíta húsinu, þegar mað-
urinn ruddist þangað inn og ekki
heldur fjölskylda hans. - fb
Maðurinn sem komst óáreittur inn í Hvíta húsið:
Leyniþjónustan
brást skyldum sínum
VIÐ YFIR-
HEYRSLUNA
Julia Pierson
viðurkenndi að
leyniþjónustan
hefði brugðist
skyldum
sínum við
verndun Hvíta
hússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NOREGUR Sextán manns voru hand-
teknir í Ósló í gær í aðgerðum yfir
100 lögreglumanna gegn skipu-
lagðri fíkniefnasölu. Í kjölfar leitar
á um þrjátíu stöðum fengu barna-
yfirvöld fimmtíu til 100 tilkynn-
ingar, að því er segir á vef norska
ríkisútvarpsins. Börn munu hafa
verið send út til að selja eða verið í
fylgd með foreldrum við sölu fíkni-
efna. Lögreglan lagði hald á fíkni-
efni, skotvopn og háar peningaupp-
hæðir. Flestir hinna handteknu eru
norskir ríkisborgarar. - ibs
Fíkniefnasalar handteknir:
Hald lagt á
skotvopn og fé
Við erum ekki hrædd
við óeirðalögregluna, við
erum ekki hrædd við
táragas, við erum ekki
hrædd við piparúða
Leung Chun-ying, leiðtogi mótmælenda
HEILBRIGÐISMÁL „Það mætir ekki
nema tæplega helmingur þeirra
kvenna sem eru boðaðar í leit að leg-
hálskrabbameini,“ segir Ragnheið-
ur Haraldsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélags Íslands.
Félagið auglýsir nú eftir þeim
konum sem ekki hafa látið sjá sig í
tilefni af árlegu árveknis- og fjár-
öflunarátaki Krabbameinsfélags
Íslands, kenndu við Bleiku slaufuna.
„Það má segja að allir aldurs-
flokkar mæti illa en verst þess-
ar yngstu. Við gerðum könnun til
þess að reyna að skoða hvers vegna
konur koma ekki. Aðalástæðan var
framtaksleysi og frestunarárátta,“
segir Ragnheiður en allar konur á
aldrinum 23 til 65 ára eru boðaðar í
skoðun á þriggja ára fresti.
Ragnheiður telur leitina afar mik-
ilvæga. „Það greinast 1.800 frum-
sýni með frumubreytingum en um
tvær konur látast á hverju ári úr
þessum sjúkdómi. Það er talið að
það bjargist um tuttugu konur á ári
vegna leitarinnar,“ segir Ragnheið-
ur. - ih
Um tuttugu konum er bjargað ár hvert með leit að leghálskrabbameini:
Þær yngstu mæta verst í skoðun
BLEIKT Þjóðmenningarhúsið verður
lýst bleiku ljósi í október vegna átaks
Krabbameinsfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR